Þingsályktunartillaga um millidómstig BBI skrifar 7. desember 2012 18:47 Þorgerður Katrín.
Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, lagði í gær fram þingsályktunartillögu um stofnun millidómstigs í einkamálum og sakamálum. Lagt er til að innanríkisráðherra stuðli að því að frumvarp um millidómstigið verði samið og það verði lagt fram ekki síðar en 10. september á næsta ári. Lagt er til að stuðst verði við niðurstöður tveggja starfshópa sem skiluðu annars vegar skýrslum árið 2008 og hins vegar árið 2011. Báðir komust að því að æskilegt væri að stofna millidómstig hérlendis til þess að létta álagi af Hæstarétti og bæta íslenskt réttarfar að öðru leyti. Ísland er eitt Norðurlanda með tveggja dómstiga kerfi þar sem héraðsdómstólar dæma í málum á neðra stigi og Hæstiréttur á æðra stigi. Annars staðar á Norðurlöndunum er millidómstigi skotið þar á milli og er því m.a. ætlað að endurmeta munnlega framburði en æðsti dómstóllinn hefur aðeins fordæmisgefandi hlutverk. Starfshópur innanríkisráðherra sem skilaði skýrslu á síðasta ári taldi rétt að dómarar yrðu 15 á millidómstiginu og störfuðu í fimm deildum. Í kjölfarið mætti fækka dómurum við Hæstarétt enda myndi málum sem rata til Hæstaréttar fækka umtalsvert ef millidómstig væri sett á stokk. Í greinargerð er bent á að almenn samstaða sé um mikilvægi þess að koma á fót millidómstigi meðal allra þeirra sem koma að réttarkerfinu hér á landi, dómara, lögfræðinga og ráðherra. Einnig er bent á að íslenska dómkerfið kosti hlutfallslega um 40-47% af kostnaði við dómkerfi hinna Norðurlandanna.
Mest lesið Faðir tveggja nemenda í skólanum sá sem skaut árásarmanninn Erlent Dæmi um að búnar séu til „gervikennitölur“ fyrir börn Innlent „Fylgjumst grannt með framvindu mála“ Innlent Varaði við nýju Rússlandi Pútíns Erlent Ástvinir þeirra sem létust í flugslysinu bíða enn Erlent Talsmaður Trumps rekinn eftir brösuglega byrjun Erlent „Fyrir neðan siðgæðiskröfur sem maður gerir til alþingismanna“ Innlent Handtekinn fyrir að ausa fúkyrðum yfir hóp fólks Innlent Aðgengið gott en gefur ekki upp synjanirnar Innlent Rýnt í stöðuna í Úkraínu: Trump hleypir öllu í bál og brand, aftur Erlent Fleiri fréttir „Fylgjumst grannt með framvindu mála“ Dæmi um að búnar séu til „gervikennitölur“ fyrir börn Handtekinn fyrir að ausa fúkyrðum yfir hóp fólks Aðgengið gott en gefur ekki upp synjanirnar „Eigum ekki að bíða eftir alvarlegu atviki“ Jafnlaunavottunin afnumin en starfsfólkinu fækkar ekki Halla kjörin fyrsti varaforseti ASÍ Varar við að biðraðir í Keflavík geti fækkað flugleiðum Ekki ástæða til að rýma bankann Allt virðist mega ef BDSM-orðið er notað „Ég ætla ekki að fara í nein orðaskipti við Jón“ Sjö ára dómur Nýr forseti ASÍ, umdeildur sýknudómur og snjöll markaðsbrella Sakar ráðherra um fordóma og „hvíta forréttindablindu“ Ljósleiðaraslit á stofnstreng Mílu milli Akraness og Lambhaga „Fyrir neðan siðgæðiskröfur sem maður gerir til alþingismanna“ Allt að 40 offituaðgerðir hjá Klíníkinni fyrir áramót Georg Páll er næsti forseti ASÍ Hvetur Veðurstofuna til að brjóta odd af oflæti sínu Gróft kynlíf en ekki nauðgun samkvæmt klofnum Landsrétti Ungbörn áfram bólusett gegn RS-veiru Sögulegur dómur fyrir námsmenn í Hæstarétti Handtekinn fyrir hótanir og vopnalagabrot Nálgist neyðarástand Lentu aftur í óförum „Bara 15. október og við erum auðvitað uggandi yfir vetrinum“ „Auðvitað er þessi atburðarás ekki mjög sameinandi“ Tillaga um að fækka varaforsetum naumlega felld Ögurstund fyrir framtíð Eflingar innan ASÍ Hefur kvartað yfir stuðningsleysi í flokknum Sjá meira