Segir barnabörnin hafa þjáðst af illum öndum 8. desember 2012 12:09 Fólki var á Íslandi þegar andarnir eiga að hafa verið særðir úr börnunum.
Íslenskur maður, sem Sunnudagsblað Morgunblaðsins ræddi við, fullyrðir að tvö barnabörn sín hafi verið andsetin af illum öndum. Maðurinn, sem kemur ekki fram undir nafni í viðtalinu, segir að hann hafi notið liðsinnis íslensks manns, sem hafi rekið andana úr börnunum, fyrir um tveimur árum síðan. Það er óhætt að segja að viðtalið við manninn sé hrollvekjandi. Maðurinn lýsir því þannig að hann hafi farið ytra til þess að aðstoða dóttur sína, einstæða tveggja barna móður, við að flytja á milli staða. Í viðtalinu kemur ekki fram í hvaða landi konan býr, en hún býr í dreifbýli í landi í Evrópu, sem er kallað Holland í greininni. Börnin tvö, stúlka og drengur, voru fimm og þriggja ára gömul þegar atvikið átti sér stað samkvæmt frásögninni. Fyrstu teikn um að undarlegir hlutir væru að gerast á heimilinu að sögn mannsins, sem er kallaður Bjarni í viðtalinu, var þegar hann veitti því eftirtekt að dóttir hans, móðir barnanna, var með hvítt bitfar á bol sínum. Líkt og einhver skepna hefði glefsað í hana. Þessu til sönnunar má finna mynd í blaðinu af bitfarinu. Í kjölfarið fóru börnin að umbreytast. Stúlkan fór að vakna grátandi á næturnar og var óhuggandi. Og þá vill Bjarni meina að kviður stúlkunnar hafi gengið í bylgjum, en sjálfur taldi hann og dóttir hans að stúlkan væri að fá krampa. Kettinum á heimilinu stóð einnig stuggur af stúlkunni. Fleiri sérkennileg atvik bættust við. Þannig fóru undarlegir hlutir að heyrast, óútskýrð þensluhljóð í húsinu, en kallað var á pípulagningarmann sem fann ekkert athugavert við pípulagnir hússins að sögn Bjarna. Ástandið stigmagnast og stúlkan virðist vera í verra ásigkomulagi heldur en drengurinn. Þannig lýsir Bjarni því, sem virðist vera mjög trúaður maður, að stúlkan hafi brugðist mjög illa við tilraunum hans til þess að fara með bænir. Þá hafi hún skipað honum að halda kjafti þegar hann fór með faðirvorið í hljóði nálægt henni. Svefnvenjur barnanna breyttust algjörlega. Þau sváfu í örfáar klukkustundir að sögn Bjarna en sátu þess utan hljóð í rúmum sínum. Þá lýsir Bjarni augum þeirra þannig að sjáöldrin haf verið útþanin og augun gulleit. Frásögnin nær svo hámarki þegar Bjarni fer með fjölskylduna á uppáhaldsveitingastað barnanna í Hollandi. Þar umbreytist stúlkan algjörlega, gengur nokkurnveginn sturluð á milli borða, rekur út úr sér tunguna og sýndi fólki á víxl þumalfingurinn eða djöflahornin. Bjarni lýsir því svo á leiðinni til heim af veitingahúsinu hafi stúlkan verið orðin óþekkjanleg í framan. Að lokum kom fjölskyldan aftur til Íslands, þar sem Bjarni komst í kynni við mann, sem segist áður tekist á við slíkar óværur. Einnig er rætt við hann í viðtalinu í Sunnudagsblaðinu, en þar segist hann hafa rekið út tvo illa anda úr stúlkunni með bænum. Bæði börnin eru í lagi í dag samkvæmt Bjarna. Hann fullyrðir einnig að þau hafi ekki orðið fyrir neinum skaða vegna hinna meintu andsetningar. Maðurinn sem særði andana út segir í viðtali við blaðið að tilfellið sé ekki það fyrsta sem hann tekst á við, né það versta Blaðið má nálgast hér.
Mest lesið Hrindir af stað söfnun fyrir föður drengsins Innlent Árekstur á Suðurlandsbraut Innlent Frumkvæðisvinna lögreglu að loka fjórum afhendingarstöðum Innlent Brenndu rangt lík Erlent Noregur hyggst innleiða samfélagsmiðlabann Erlent Tilhæfislaus líkamsárás í annað sinn og enginn kom til aðstoðar Innlent Leita í rústum íbúðahúsa Erlent Jarðskjálfti við Kleifarvatn Innlent Röð stunguárása í neðanjarðarlestinni Erlent Ísrael viðurkennir sjálfstæði Sómalílands fyrst allra landa Erlent Fleiri fréttir Sjálfvirkir lyfjaskammtarar borgi sig tvöfalt til baka Tilhæfislaus líkamsárás í annað sinn og enginn kom til aðstoðar Keyptu aðstoð vegna leiðréttingar landsframlags og hringferðar ráðherra Frumkvæðisvinna lögreglu að loka fjórum afhendingarstöðum „Fara þarf í raunverulegar aðgerðir“ Hrindir af stað söfnun fyrir föður drengsins Kjartan sækist ekki eftir endurráðningu sem bæjarstjóri Landeldi í vexti og lögregla lokar áfengisverslunum Árekstur á Suðurlandsbraut Ekki talinn tengjast aukinni eldvirkni Handteknir grunaðir um framleiðslu fíkniefna Jarðskjálfti við Kleifarvatn Lögreglumenn eltu lausa hesta Lögregla lokaði Smáríkinu og Nýju vínbúðinni Stöðvuðu menn í ofbeldishug við landamærin Piltur skilinn eftir ber að ofan og skólaus eftir hrottafengna árás Dæmdur fyrir líkamsárás í matsalnum Engir ælupokar notaðir, þetta var núllpokaflug Hafði komið sér fyrir á háalofti hótels Tap upp á 130 milljónir og neikvætt eigið fé upp á aðrar 26 Umferðin róleg í kirkjugörðunum Töpuðu tæpum hundrað milljónum Milljónir í sekt fyrir að bakka á konu Þörf á að skerpa á verklagi spítalans í heimilisofbeldismálum Engin jólamessa vegna rafmagnsleysis Klæðning fauk af Stjórnsýsluhúsinu og skemmdi bíla Gleðileg jól, kæru lesendur Einn fluttur á sjúkrahús eftir bílslys Skiluðu hagnaði á kosningaári Hátíðarveisla á kaffistofu Samhjálpar: „Það er ró og friður yfir fólki“ Sjá meira