Viðskiptavinir Dróma skora á ráðherra Jóhanna Margrét Gísladóttir skrifar 23. nóvember 2012 18:38
Viðskiptavinir Dróma segja sig verða fyrir misrétti að fá ekki sama aðgang að banka og aðrir og skora á stjórnvöld að sjá til þess að lánasöfn þeirra fari til bankastofnunar með hagsmuni af eðlilegum viðskiptum til frambúðar. Fulltrúar viðskiptavina Dróma, afhentu ríkisstjórninni í morgun undirskriftarlista og ákall til stjórnvalda um að lánasöfn þeirra verði flutt úr þrotabúinu og til bankastofnunar, þeir gagnrýna samviskuleysi og óbilgirni Dróma gagnvart lántakendum. „Því Drómi er ekki banki og ekki með leyfi til að reka banka, það er þrotabú og við fáum einfaldlega ekki þá fyrirgreiðslu hjá Dróma sem við sættum okkur við, okkur finnst þetta vera misrétti í aðgangi að banka," sagði Sigurður Sigurðarson, viðskiptavinur Dróma. Arion Banki tók við innistæðum viðskiptavina SPRON og Frjálsa fjárfestingabankans á sínum tíma og er þar að auki stærsti kröfuhafi Dróma og afhentu viðskiptavinirnir fulltrúum Arion einnig í dag áskorun þess efnis að bankinn sýni viðskiptavinum Dróma jafnræði. Sigurður segir fulltrúa ríkisstjórnarinnar hafa tekið vel í þeirra erindi en málið sé augljóslega flókið. „Arion Banki á svo að segja allar kröfur á hendur Dróma og hafa lýst yfir vilja sínum að taka yfir lánasafnið en einhverra hluta vegna nást ekki samningar um það, það er svo skrítið að Arion banki situr beggja vegna borðsins en getur ekki samvið við sjálfa sig," sagði Sigurður. Atvinnuvegaráðherra sagði að loknum ríkisstjórnarfundi í morgun að verið væri að reyna að flýta vinnu við mat á eignasafni Dróma sem stendur yfir og þegar því sé lokið verði vonandi hægt að færa það inn í Arion banka þar sem innlánin fóru þangað. „Ég held að allir viðurkenni að þessi leið sem þarna var farin, sem fjármálaeftirlitið fór í þessu tilviki hefur ekki reynst vel og það er miklu betra að fara sameiginlega með báðar hliðar eins og hefur verið gert nema í þessu tilviki," sagði Steingrímur J. Sigfússon.
Mest lesið Kjaravaktin: Samkomulag í höfn á elleftu stundu Innlent Margrét Löf í sextán ára fangelsi en heldur föðurarfinum Innlent Veitingamaður sektaður um tvö hundruð milljónir Innlent Fjármálaráðherra flautaður niður af sviði Innlent Bein útsending: Forsætisráðherra boðar til blaðamannafundar Innlent Ráðherra lét henda þeim út þegar rætt var um Heiðarfjall Innlent Þetta eru aðgerðirnar sem fara á í Innlent Konan sem var borin út er látin Erlent „Ég fagna því að þessu leikriti sé lokið“ Innlent Ekki rétt sem Halla segir Innlent Fleiri fréttir Máttu tæma lónið „Varpar skugga á skólasamfélagið í heild“ „Ég fagna því að þessu leikriti sé lokið“ Þetta eru aðgerðirnar sem fara á í Ók lyfjaður á gangandi vegfaranda Bein útsending: Forsætisráðherra boðar til blaðamannafundar Dagskrá aflýst í dag og óljóst hvernig ræðukeppnin fer fram Loftslagstilraun hefst í Hvalfirði á næstu dögum Margrét Löf í sextán ára fangelsi en heldur föðurarfinum Veitingamaður sektaður um tvö hundruð milljónir Ekki rétt sem Halla segir Hefja formlegar viðræður um myndun nýs meirihluta Íslensk nóbelsverðlaun og erfið staða framhaldsskólanna Vill fækka borgarfulltrúum um átta Lögreglan leitar upplýsinga um rispaða bíla Fjármálaráðherra flautaður niður af sviði Kristrún reyni að hafa milligöngu í deilunni Ekki eigi að refsa fólki fyrir að hafa stutt á milli barna Nemendur í Reykjavík koma best út úr PISA Kristrún og Þorgerður sækja ekki Hringborð norðurslóða Kjaravaktin: Samkomulag í höfn á elleftu stundu Draumur reiðhjólaviðgerðarmannsins rættist Áreitti tíu ára stúlku ítrekað í fjóra daga Kveikja og slökkva á ljósastaurum vegna bilunar Bein útsending: Fjármálaráðstefna sveitarfélaga 2026 Hafi ekki „fært sig eina litla tommu“ Ráðherra lét henda þeim út þegar rætt var um Heiðarfjall Kjaftshögg, blys og hrákur á VÍ - MR Samþykktu að slíta kjarasamningum Niðurrif hafið á Laugasól Sjá meira