Hildur snúin aftur á Facebook 27. nóvember 2012 11:40
Femíniski aðgerðarsinninn, Hildur Lilliendahl, er snúin aftur á Facebook eftir að henni var úthýst af samskiptavefnum fyrir mánuði síðan en þá birti hún skjáskot af orðum manns sem heitir Stefán Heiðar Erlingsson á Facebook síðu sinni. Ummælin birtust upphaflega á Facebook-reikningi Stefáns en þar sagði hann Hildi vera einu konuna sem hann gæti hugsað sér að bakka aftur yfir og stöðva bílinn ofan á líkama Hildar og skilja faratækið eftir í handbremsu. Í ljós reglna um að það sé í raun ekki leyfilegt að birta skjáskot af ummælum fólks nema með sérstöku leyfi þá var Hildi úthýst af vefnum. Málið vakti mikla athygli hér á landi, en meðal annars tók Eva Hauksdóttir upp hanskann fyrir Hildi, en hún hefur hingað til verið á öndverðu meiði varðandi baráttuaðferðir femínsta. En um málið skrifaði Eva: „Reglurnar eru væntanlega settar í þeim tilgangi að vernda notendur gegn ýmisskonar misnotkun. Hugmyndin er varla sú að auðvelda pólitískar ofsóknir en með því að refsa þeim sem birta persónulegar árásir af þessu tagi, snúast reglurnar gegn markmiði sínu." Málið vakti einnig athygli fyrir utan landsteinana. Þannig birti breska dagblaðið Daily Telegraph grein um málið. Þar var spurt þeirrar spurningar hvort það væri ekki undarlegt að viðkomandi megi birta svona ummæli án afleiðinga, en sá sem verður fyrir barðinu á þeim, er refsað fyrir það eitt að vekja athygli á árásinni. Umdeilt myndaalbúm Hildar, Karlar sem hata konur, hefur einnig vakið mikla athygli erlendis, en í greininni í Telegraph kemur fram að fyrir skömmu hafi heimasíðunni everydaysexism verið komið á laggirnar í sama tilgangi og albúm Hildar. Þá tók blaðið einnig viðtal við Hildi í hlutanum sem kallast í lauslegri þýðingi, undrakonan (e. Wonder woman).Viðtalið í heild sinni má lesa hér. Til gamans má geta að fyrsta færsla Hildar eftir mánaðarlangt bann var myndbrot úr dönsku þáttunum Matador. Sjálf skrifaði Hildur: „Af því tilefni að FB-banni undirritaðrar hefur verið aflétt býð ég ykkur upp á eitt allra eftirminnilegasta atriðið úr hinum frábæru þáttum Matador. Mads hefur komist að því að Daniel sonur hans er hommi, fleygt honum á dyr og snúið við honum baki. Ingeborg konu hans, sem er snilldarlega leikin af Ghitu Nørby, er stórkostlega misboðið. Tár og gæsahúð." Myndbandið má sjá hér fyrir ofan fyrir áhugasama.
Mest lesið Faðir tveggja nemenda í skólanum sá sem skaut árásarmanninn Erlent Dæmi um að búnar séu til „gervikennitölur“ fyrir börn Innlent „Fylgjumst grannt með framvindu mála“ Innlent Varaði við nýju Rússlandi Pútíns Erlent Ástvinir þeirra sem létust í flugslysinu bíða enn Erlent Talsmaður Trumps rekinn eftir brösuglega byrjun Erlent „Fyrir neðan siðgæðiskröfur sem maður gerir til alþingismanna“ Innlent Handtekinn fyrir að ausa fúkyrðum yfir hóp fólks Innlent Aðgengið gott en gefur ekki upp synjanirnar Innlent Rýnt í stöðuna í Úkraínu: Trump hleypir öllu í bál og brand, aftur Erlent Fleiri fréttir „Fylgjumst grannt með framvindu mála“ Dæmi um að búnar séu til „gervikennitölur“ fyrir börn Handtekinn fyrir að ausa fúkyrðum yfir hóp fólks Aðgengið gott en gefur ekki upp synjanirnar „Eigum ekki að bíða eftir alvarlegu atviki“ Jafnlaunavottunin afnumin en starfsfólkinu fækkar ekki Halla kjörin fyrsti varaforseti ASÍ Varar við að biðraðir í Keflavík geti fækkað flugleiðum Ekki ástæða til að rýma bankann Allt virðist mega ef BDSM-orðið er notað „Ég ætla ekki að fara í nein orðaskipti við Jón“ Sjö ára dómur Nýr forseti ASÍ, umdeildur sýknudómur og snjöll markaðsbrella Sakar ráðherra um fordóma og „hvíta forréttindablindu“ Ljósleiðaraslit á stofnstreng Mílu milli Akraness og Lambhaga „Fyrir neðan siðgæðiskröfur sem maður gerir til alþingismanna“ Allt að 40 offituaðgerðir hjá Klíníkinni fyrir áramót Georg Páll er næsti forseti ASÍ Hvetur Veðurstofuna til að brjóta odd af oflæti sínu Gróft kynlíf en ekki nauðgun samkvæmt klofnum Landsrétti Ungbörn áfram bólusett gegn RS-veiru Sögulegur dómur fyrir námsmenn í Hæstarétti Handtekinn fyrir hótanir og vopnalagabrot Nálgist neyðarástand Lentu aftur í óförum „Bara 15. október og við erum auðvitað uggandi yfir vetrinum“ „Auðvitað er þessi atburðarás ekki mjög sameinandi“ Tillaga um að fækka varaforsetum naumlega felld Ögurstund fyrir framtíð Eflingar innan ASÍ Hefur kvartað yfir stuðningsleysi í flokknum Sjá meira