Innlent

Sæbjörg sædd af Úranusi og bar ljóssægráskjöldótta kvígu

Það er ljóst að nýfædd kvíga mun gleðja börnin með nærveru sinni.
Það er ljóst að nýfædd kvíga mun gleðja börnin með nærveru sinni.
Kýrin Sæbjörg sem býr ásamt tveimur öðrum kúm og einum uxa í fjósinu í Fjölskyldu- og húsdýragarðinum bar ljóssægráskjöldóttri kvígu aðfaranótt 8. nóvember síðastliðinn.

Í tilkynningu frá Fjölskyldu- og húsdýragarðinum segir að Sæbjörg var sædd með sæði úr nautinu Úranusi sem er brandbaugóttur að lit. Síðustu vikurnar fyrir burð er kýrin ekki mjólkuð, hún er í svokallaðri geldstöðu.

Eftir burð fer mjólkurferlið í gang og kallast fyrsta mjólkin sem kemur úr kúnum broddur. Mikilvægt er að kálfurinn fái broddinn því í honum er mikið af efnum sem eru nauðsynleg ónæmiskerfi kálfsins, mótefni gegn alls konar sjúkdómum. Afganginn af broddinum geta bændur nýtt sér til matar með því að hita broddmjólkina þar til hún hleypur og myndar búðing. Þetta kallast ábrystir og eru sérlega góðar með kanilsykri.

Næstu daga fær kvígan nýborna reglulega mjólk í pela sem dýrahirðar garðsins sjá um að mjólka úr Sæbjörgu með mjaltatækjunum.

Mjaltir eru tvisvar á dag, fyrri mjaltir um klukkan 7 á morgnana og seinni mjaltir á opnunartíma klukkan 16:30. Kýrin Brák sem einnig býr í fjósi Fjölskyldu- og húsdýragarðsins á tal í desember og fær nýborna kvígan þá leikfélaga. Þriðja kýrin sem heitir Fló á tal í byrjun árs 2013.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×