Sæbjörg sædd af Úranusi og bar ljóssægráskjöldótta kvígu 15. nóvember 2012 15:20 Það er ljóst að nýfædd kvíga mun gleðja börnin með nærveru sinni.
Kýrin Sæbjörg sem býr ásamt tveimur öðrum kúm og einum uxa í fjósinu í Fjölskyldu- og húsdýragarðinum bar ljóssægráskjöldóttri kvígu aðfaranótt 8. nóvember síðastliðinn. Í tilkynningu frá Fjölskyldu- og húsdýragarðinum segir að Sæbjörg var sædd með sæði úr nautinu Úranusi sem er brandbaugóttur að lit. Síðustu vikurnar fyrir burð er kýrin ekki mjólkuð, hún er í svokallaðri geldstöðu. Eftir burð fer mjólkurferlið í gang og kallast fyrsta mjólkin sem kemur úr kúnum broddur. Mikilvægt er að kálfurinn fái broddinn því í honum er mikið af efnum sem eru nauðsynleg ónæmiskerfi kálfsins, mótefni gegn alls konar sjúkdómum. Afganginn af broddinum geta bændur nýtt sér til matar með því að hita broddmjólkina þar til hún hleypur og myndar búðing. Þetta kallast ábrystir og eru sérlega góðar með kanilsykri. Næstu daga fær kvígan nýborna reglulega mjólk í pela sem dýrahirðar garðsins sjá um að mjólka úr Sæbjörgu með mjaltatækjunum. Mjaltir eru tvisvar á dag, fyrri mjaltir um klukkan 7 á morgnana og seinni mjaltir á opnunartíma klukkan 16:30. Kýrin Brák sem einnig býr í fjósi Fjölskyldu- og húsdýragarðsins á tal í desember og fær nýborna kvígan þá leikfélaga. Þriðja kýrin sem heitir Fló á tal í byrjun árs 2013.
Mest lesið Biður Jón afsökunar Innlent Lést eftir alvarlegt slys á Gæsavatnaleið Innlent „Vitum ekki hvaða skrímsli er verið að skapa“ Innlent Landtökumenn réðust á evrópska erindreka Erlent Barn og fullorðinn létu lífið þegar bíl var ekið inn á knattspyrnuvöll Erlent Vara við „perragleraugum“ Innlent Leggi línuna að samþykki veiti rétt til að stórskaða fólk Innlent Ari nýr formaður Ungra vinstri grænna Innlent Komi til greina að nýta gervigreind í námsgagnagerð Innlent Bakar til góðs næsta sólarhringinn Innlent Fleiri fréttir Biður Jón afsökunar „Vitum ekki hvaða skrímsli er verið að skapa“ Komi til greina að nýta gervigreind í námsgagnagerð Ari nýr formaður Ungra vinstri grænna Farið að hvessa: „Veðrið er ekkert svo slæmt en ekkert sérstakt heldur“ Lést eftir alvarlegt slys á Gæsavatnaleið Engin yfirsýn hvort það séu Tik Tok-myndbönd eða klám sem eigi að geyma Leggi línuna að samþykki veiti rétt til að stórskaða fólk Vara við „perragleraugum“ Þyrlan kölluð út vegna slyss á hálendinu Kannast ekki við lýsingar Jóns Bakar til góðs næsta sólarhringinn Þakplötur að losna af íþróttahúsi í Grundarfirði Skoða viðbrögð við rannsókn á Ölgerðinni Minna á útgáfu nafnskírteina vegna rannsóknar lögreglu Eldur í lyftara í álverinu í Straumvík Tveir reyndu að flýja lögreglu á fótum eftir eftirför „Fylgjumst grannt með framvindu mála“ Dæmi um að búnar séu til „gervikennitölur“ fyrir börn Handtekinn fyrir að ausa fúkyrðum yfir hóp fólks Aðgengið gott en gefur ekki upp synjanirnar „Eigum ekki að bíða eftir alvarlegu atviki“ Jafnlaunavottunin afnumin en starfsfólkinu fækkar ekki Halla kjörin fyrsti varaforseti ASÍ Varar við að biðraðir í Keflavík geti fækkað flugleiðum Ekki ástæða til að rýma bankann Allt virðist mega ef BDSM-orðið er notað „Ég ætla ekki að fara í nein orðaskipti við Jón“ Sjö ára dómur Nýr forseti ASÍ, umdeildur sýknudómur og snjöll markaðsbrella Sjá meira