Elsti sonur Warrens Buffet vill rækta maís á Íslandi HJH skrifar 17. nóvember 2012 12:19 Warren Buffet. Sonur hans vill rækta maís á Íslandi
Howard Buffet, elsti sonur Warren Buffet eins ríkasta manns í heimi, kannar nú möguleikann á maísrækt hér á landi. Ef það gengur eftir hefur hann áhuga á að kaupa hér land og hefja jarðrækt Howard er stofnandi Howard G. Buffet góðgerðarsjóðsins sem vinnur að mannúðarmálum víða um heim og hefur meðal annars þau markmið að efla ræktun og matvælaframleiðslu þar sem fátækt er mikil. Hann kom hingað til lands í síðustu viku ásamt tveggja manna föruneyti en það er Bændablaðið sem greinir frá þessu. Það var doktor Ólafur R. Dýrmundsson, landnýtingarráðunautur Bændasamtaka Íslands sem hitti Howard og fylgarfólk hans á fimmtudaginn í síðustu viku, grunlaus um hvaða fyrirmenni þarna voru á ferð. „Ég uppgötvaði það ekki fyrr en morguninn eftir. Mér fannst gott að tala við hann og ég fann að hann hafði góða þekkingu á landbúnaði og ræktun," segir Ólafur. Howard var hér á landi til að kynna sér landbúnað og möguleika í jarðrækt og hvaða áhrif loftslagsbreytingarnar munu hafa á norðurslóðum. „Hann vék aðeins að ræktun hér á landi, möguleikum á því og var að spyrja mig um landið hérna. Talaði mikið um jarðveginn og ég fann að hann hafði mjög góða þekkingu á þessu öllu. Hann sagðist hafa áhuga á maísrækt hér en það væri erfitt, maís hefði aðeins verið prófaður hérna en það væri eiginlega of kalt, sumarhitinn væri ekki mikill," segir Ólafur. „Hann vildi semsagt fara í það núna að kanna hvort að það væru til einhver afbrigði, annað hvort frá Norður Evrópu eða Ameríku, sem væri hugsanlega hægt að prófa. Ég spurði hann þá að því hvort að hann væri þá ða hugsa sér að taka á leigu land hérna undir þetta en þá sagðist hann frekar vilja kaupa það. Ég sagði honum að það gætu verið vissir vankantar á því en að það væri hægt að koma honum í samband við ýmsa aðila og fagmenn líka. Þannig að það sem við gerum er bara að sjá hvað gerist og ef við getum eitthvað aðstoðað þá gerum við það náttúrulega," segir doktor Ólafur R. Dýrmundsson að lokum.
Mest lesið Lést eftir alvarlegt slys á Gæsavatnaleið Innlent Dæmi um að búnar séu til „gervikennitölur“ fyrir börn Innlent „Fyrir neðan siðgæðiskröfur sem maður gerir til alþingismanna“ Innlent Vara við „perragleraugum“ Innlent Rýnt í stöðuna í Úkraínu: Trump hleypir öllu í bál og brand, aftur Erlent Sögulegur dómur fyrir námsmenn í Hæstarétti Innlent „Fylgjumst grannt með framvindu mála“ Innlent Sjö ára dómur Innlent Talsmaður Trumps rekinn eftir brösuglega byrjun Erlent Faðir tveggja nemenda í skólanum sá sem skaut árásarmanninn Erlent Fleiri fréttir Biður Jón afsökunar „Vitum ekki hvaða skrímsli er verið að skapa“ Komi til greina að nýta gervigreind í námsgagnagerð Ari nýr formaður Ungra vinstri grænna Farið að hvessa: „Veðrið er ekkert svo slæmt en ekkert sérstakt heldur“ Lést eftir alvarlegt slys á Gæsavatnaleið Engin yfirsýn hvort það séu Tik Tok-myndbönd eða klám sem eigi að geyma Leggi línuna að samþykki veiti rétt til að stórskaða fólk Vara við „perragleraugum“ Þyrlan kölluð út vegna slyss á hálendinu Kannast ekki við lýsingar Jóns Bakar til góðs næsta sólarhringinn Þakplötur að losna af íþróttahúsi í Grundarfirði Skoða viðbrögð við rannsókn á Ölgerðinni Minna á útgáfu nafnskírteina vegna rannsóknar lögreglu Eldur í lyftara í álverinu í Straumvík Tveir reyndu að flýja lögreglu á fótum eftir eftirför „Fylgjumst grannt með framvindu mála“ Dæmi um að búnar séu til „gervikennitölur“ fyrir börn Handtekinn fyrir að ausa fúkyrðum yfir hóp fólks Aðgengið gott en gefur ekki upp synjanirnar „Eigum ekki að bíða eftir alvarlegu atviki“ Jafnlaunavottunin afnumin en starfsfólkinu fækkar ekki Halla kjörin fyrsti varaforseti ASÍ Varar við að biðraðir í Keflavík geti fækkað flugleiðum Ekki ástæða til að rýma bankann Allt virðist mega ef BDSM-orðið er notað „Ég ætla ekki að fara í nein orðaskipti við Jón“ Sjö ára dómur Nýr forseti ASÍ, umdeildur sýknudómur og snjöll markaðsbrella Sjá meira