Kjósa um sameiningu Garðabæjar og Álftaness Karen Kjartansdóttir skrifar 22. september 2012 13:02
Skuldir og skuldbindingar Álftaness sem voru 7,2 milljarðar í árslok 2009 fara niður í 3,2 milljarða í lok þessa árs verði af sameiningu sveitarfélagsins við Garðabæ. Íbúar kjósa um málið í október. Bæjarstjórnir Garðabæjar og Sveitarfélagsins Álftaness hafa báðar komist að þeirri niðurstöðu að það sé skynsamlegur kostur að sameina þessi tvö sveitarfélög. Íbúar beggja sveitarfélaga fá að kjósa um málið 20. október. Verði af sameiningunni fær sveitarfélagið nafnið Garðabær þótt vitanlega haldist örnefnið Álftanes áfram óbreytt. "Garðabær er sterkt vörumerki ef svo má segja og með sterka ímynd en nafnið er líka sögulegt því bærinn dregur nafn sitt af jörðinni Görðum á Álftanesi," segir Gunnar. Gunnar Einarsson, bæjarstjóri Garðabæjar, segir sameininguna hagkvæman kost. Skuldastaða Álftnesinga muni engin áhrif hafa á núverandi álögur eða þjónustustig fyrir íbúa í Garðabæ verði af sameiningunni. Verði af sameiningu fari skuldir Álftnesinga niður í 3,2 milljaða en þær voru 7,2 þegar staðan var hvað verst í upphafi efnahagshrunsins. "Skilyrðið fyrir því að hægt sé að ná þessu niður í 3,2 milljaða er að sveitafélögin sameinist því þá koma peningar frá jöfnunarsjóði og frá ríkinu og með þá fjármuni er búið að semja við lánadrottna um þessa skuldastöðu," segir Gunnar. En hvaða hag hefur ríkið af sameiningunni? "Þegar Álftanes fer í þrot tekur fjárhagsstjórn við rekstrinum og það var ljóst að sveitarfélag með 2500 sveitarfélag með svo miklar skuldir sem þá voru gat ekki rekið sig. Ríkið setti þá skilyrði að ef aðstoð ætti að berast þaðan yrði það að sameinast stærra sveitarfélagi því þetta væri ekki hagkvæm rekstraeining." Skipulagsvald á svæðinu vegur auk þess þungt í þessu máli. "Síðast en ekki síst, sem er mikilvægasta atriðið að mínu mati, er að Garðbær hefur þá skipulagsvald út á Álftanesið. Við eigum þá ekki hættu á að annað sveitarfélag, til dæmis Reykjavík, sem hefði skipulagsvaldið ef Álftanes myndi sameinast því sem mun væntanlega gerast hafni fólk sameiningunni. Þá gæti maður séð fyrir sér að menn færu að velta fyrir sér flugvelli á Lönguskerjum og svo framvegis og það myndi ég ekki vilja sjá," segir Gunnar. Hægt er að kynna sér tillögurnar nánar á síðunni okkarval.is.
Tengdar fréttir Skynsamlegt að sameina Garðabæ og Álftanes Bæjarstjórnir Garðabæjar og Sveitarfélagsins Álftaness hafa báðar komist að þeirri niðurstöðu að það sé skynsamlegur kostur að sameina þessi tvö sveitarfélög. Þess vegna ákváðu þær í júní sl. að mæla með því að kosið verði um sameiningu þeirra. Sú kosning fer fram 20. október næstkomandi í báðum sveitarfélögunum. Bæjarstjórnirnar voru sammála um að sameining sveitarfélaganna væri hagkvæmur kostur hvort sem horft væri til menningarlegra, skipulagslegra eða rekstrarlegra þátta. 22. september 2012 06:00 Skuldir Álftaness minnka Skuldir og skuldbindingar Álftaness voru 7,2 milljarðar í árslok 2009 en verður komin í 3,2 milljarða í lok þessa árs verði af sameiningu sveitarfélagsins við Garðabæ. 22. september 2012 10:28 Mest lesið Umferðarteppa á Hellisheiði vegna umferðaróhapps Innlent „Þetta er algjörlega óafsakanlegt hjá einu af ríkustu löndum í heimi“ Innlent Búið að opna Holtavörðuheiði aftur Innlent „Við erum að svara kalli tímans“ Innlent Þrjú kynferðisbrot á tónleikasvæðinu til rannsóknar Innlent Sektuðu í grennd við Símamótið Innlent Mælirinn segir 33 gráður Innlent „Gefa löggjafanum og lögreglunni fingurinn og fólkinu í landinu líka“ Innlent „Þetta mál er náttúrulega bara einn harmleikur“ Innlent Gular viðvaranir og allt að tuttugu og sjö stig Veður Fleiri fréttir „Gefa löggjafanum og lögreglunni fingurinn og fólkinu í landinu líka“ Sektuðu í grennd við Símamótið „Við erum að svara kalli tímans“ Búið að opna Holtavörðuheiði aftur Umferðarteppa á Hellisheiði vegna umferðaróhapps Á fimmta tug barna vilja sækja skóla í Grindavík „Þetta er algjörlega óafsakanlegt hjá einu af ríkustu löndum í heimi“ Hvalur skaut up kollinum í Hólmavík Mælirinn segir 33 gráður „Af og frá“ að Ísland framselji löggjafarvaldið með inngöngu Atvinnulausum í byggingariðnaði fjölgar gríðarlega Þrjú kynferðisbrot á tónleikasvæðinu til rannsóknar Brotist inn og peningaskápur tekinn Þrír gistu í fangageymslu og töluvert um fölsuð skilríki Hitabylgjur, fullveldi og Megas Þrír handteknir grunaðir um líkamsárás Heilbrigðiseftirlitið ekki áður séð mengun í fjörunni við vinnslustöð Hvals Unnið að hrunvörnum við Holtsnúp Hluti af þriðja vinningi lenti á Íslandi Stutt í að beint flug til Kína fari í sölu Ríkissaksóknari telur að Margrét eigi ekki að fá að áfrýja til Landsréttar Túlka verði niðurstöðurnar af varfærni Breiðholtsbrú opin fyrir umferð Vonar að verslanir hafi lært af reynslunni Rannsaka kynferðisbrot og líkamsárás á Landsmóti Gefur engin fyrirheit um lækkun áfengisgjalda Kynferðisbrot á Hólum og gular viðvaranir Konan sem fannst meðvitundarlaus í tjaldi látin „Ef þú ætlar austur verður þú að fara norðurleiðina“ „Þetta mál er náttúrulega bara einn harmleikur“ Sjá meira
Skynsamlegt að sameina Garðabæ og Álftanes Bæjarstjórnir Garðabæjar og Sveitarfélagsins Álftaness hafa báðar komist að þeirri niðurstöðu að það sé skynsamlegur kostur að sameina þessi tvö sveitarfélög. Þess vegna ákváðu þær í júní sl. að mæla með því að kosið verði um sameiningu þeirra. Sú kosning fer fram 20. október næstkomandi í báðum sveitarfélögunum. Bæjarstjórnirnar voru sammála um að sameining sveitarfélaganna væri hagkvæmur kostur hvort sem horft væri til menningarlegra, skipulagslegra eða rekstrarlegra þátta. 22. september 2012 06:00
Skuldir Álftaness minnka Skuldir og skuldbindingar Álftaness voru 7,2 milljarðar í árslok 2009 en verður komin í 3,2 milljarða í lok þessa árs verði af sameiningu sveitarfélagsins við Garðabæ. 22. september 2012 10:28