Aukin útgjöld tryggja ekki endilega gæði Þorbjörn Þórðarson skrifar 23. september 2012 13:54 Guðbjartur Hannesson, velferðarráðherra. Mynd/Stefán Karlsson
Guðbjartur Hannesson, velferðarráðherra, segir að Landspítalinn mælist með mjög góða mælingu á öllum þjónustuþáttum þrátt fyrir niðurskurð undanfarinna ára. Ráðherrann segir að öryggi og gæði þjónustu verði ekki endilega tryggð með auknum útgjöldum til spítalans. Alls hefur Landspítalinn skorið samtals niður um 32 milljarða króna frá árinu 2007. Í ályktun fundar Læknafélags Reykjavíkur og Félags almennra lækna er lýst áhyggjum af versnandi ástandi á spítalanum. Talað er um vaxandi álag, vanmat á störfum fagfólks og erfiðar vinnuaðstæður. Ekki verður skorið niður í útgjöldum til Landspítalans í fjárlögum næsta árs, en þau verða ekki aukin heldur. Guðbjartur Hannesson, velferðarráðherra, var gestur í þættinum Sprengisandi á Bylgjunni í morgun. „Allur heimurinn er að glíma við hækkanir á þessum kostnaði. Hann hefur þrefaldast á fáum árum í allri Evrópu. Við fáum fréttir frá Noregi, það er alveg sama hvar þú kemur. Það er verið að glíma við lyfjakostnað, glíma við nýja tækni, hækkandi aldur, króníska sjúkdóma og svo framvegis. Það sem kemur fram í umfjöllun um Landspítalann er að hann er þrátt fyrir allt þetta að fá gríðarlega góðar mælingar á öllum þáttum. Við erum að keppa við þá bestu í heiminum í heilbrigðiskerfinu og við verðum auðvitað að halda því," sagði Guðbjartur. „Þá kemur að því: Hvað er það sem er styrkleikinn? Það kom ágætlega fram í viðtölum í gær. Það er auðvitað fólkið, menntunin og kunnáttan. Það er aðstaðan og aðbúnaðurinn. Og auðvitað verðum við líka að horfa á mönnunina. En það er ekkert eitt af þessu. Það er ekki hægt að segja að með aukinni mönnun tryggirðu öryggi og gæði. Það er heldur ekki hægt að segja að með auknum kostnaði tryggirðu öryggi og gæði," sagði Guðbjartur Hannesson, velferðarráðherra, í þættinum Sprengisandi á Bylgjunni í morgun.
Mest lesið „Hvaða skaða hef ég valdið, Elliði?“ Innlent Musk setti Úkraínumönnum takmörk á tengingar við Starlink Innlent Óhugnanlega margir að leysa vandamálin með töflum Innlent „Ég er ekkert að ýja að því, ég er bara að segja það fullum fetum“ Innlent Segir lögreglumenn á Vestfjörðum áhyggjufulla Innlent Bæjarstjóri Ölfuss segir múslima „valda skaða“ Innlent Þungmálmar í drykkjarvatni á Svalbarða vegna þiðnunar Erlent „Það er sitthvað til í því sem hann er að segja“ Innlent Ræddu ofbeldi í skólum í borgarstjórn: Segir kennara vera í legghlífum í vinnunni Innlent Brikk lokað í óákveðinn tíma Innlent Fleiri fréttir „Hvaða skaða hef ég valdið, Elliði?“ Segir lögreglumenn á Vestfjörðum áhyggjufulla Musk setti Úkraínumönnum takmörk á tengingar við Starlink Óhugnanlega margir að leysa vandamálin með töflum „Ég er ekkert að ýja að því, ég er bara að segja það fullum fetum“ Ræddu ofbeldi í skólum í borgarstjórn: Segir kennara vera í legghlífum í vinnunni Sigurvin kallaður út vegna Hildar Ekki tilraun til manndráps að taka sambýliskonuna kverkataki Dæmdir morðingjar gætu fengið að annast fatlað fólk „Það er sitthvað til í því sem hann er að segja“ Sakar Ölmu um að hafna Litla spítalanum fyrir fram Skandall að menn afpláni ekki í fangelsi vegna plássleysis Stefna á að hefja leit í nóvember Vilja 125 milljónir til að halda flugeldasölunni gangandi Bein útsending: Fyrsta skóflustunga að Stóra-Hrauni Dómurinn feli í sér tilmæli til þingsins Hnuplaði úr verslunum fyrir á fjórðu milljón króna Komi ekki til greina að hætta við talnakvarðann Kallað eftir rannsóknum vegna geðrofslyfs og áskorun til ráðherra Bæjarstjóri Ölfuss segir múslima „valda skaða“ Endurmeta fyrirkomulag RS-bólusetninga næstu árin Beit mann í geirvörtuna og réðst á systur hans Tekur sæti Maríu sem er í fríi í Víetnam Geðrofslyf leysa hefðbundin svefnlyf af hólmi Brikk lokað í óákveðinn tíma Skakkur á rafskútu 20,4 milljarðar til Úkraínu og aukinn stuðningur við Palestínu Vill prófa sjálfkeyrandi bíla í Eyjum Sveitarfélagi ekki skylt að smala ágangsfé úr skógræktarlandi Eldur kom upp í verslun í Hafnarfirði Sjá meira