"Ég á lítinn strák núna - ég hef snúið við blaðinu" 24. september 2012 10:31
Vilhjálmur Símon Hjartarson var fyrstur sakborninga í Íbúðalánssvikamálinu til að gefa vitnisburð í Héraðsdómi Reykjaness í morgun. Hann hefur játað sinn hlut í málinu, en fimm menn eru grunaðir um að hafa svikið tugmilljónir út úr íbúðalánasjóði. Vilhjálmur er einn þessa fimm en málið tengist vélhjólasamtökunum Fáfni og Vítisenglum. Saksóknari byrjaði á því að forvitnast um upphaf málsins. Vilhjálmur sagði að hann hefði skuldað tveimur mönnum pening, 500 þúsund krónur. Hannn vildi ekki nafngreina þessa menn af ótta við hefndaraðgerðir. Vilhjálmur ítrekaði margoft að þessir menn hefðu aldrei komið að skipulagningu svikanna – hann benti ávallt á Helga Ragnar Guðmundsson, sem einnig er ákærður í málinu, í því samhengi. „Þeir fá þessa hugmynd um að ég skuldi pening," sagði Vilhjálmur. „Síðan er ég settur í samband við Helga Ragnar." Þá spurði saksóknari hver staða mála væri með skuld hans við þessa huldumenn. „Ég hef allavega ekki verið rukkaður um þessa hálfa milljón." Vilhjálmur sagði að Helgi Ragnar Guðmundsson, sem einnig er ákærður fyrir sína aðild að málinu, hafi í raun leiðbeint honum að öllu leyti – kennt honum að orða hlutina, að fela húðflúrin og vera snyrtilegur í heimsóknum sínum í bankann. „Helgi segir mér að búið að sé að greiða út lánið og að nú þurfti að millifæra. Hann sagði mér að rautt flagg myndi fara upp ef ég myndi taka út margar milljónir í einu." Því næst var spurt hvort að nægilega mikið af peningum hefði ávallt verið í viðskiptabönkunum. „Í eitt skipti var ekki nóg af peningum." Verjandi Helga Ragnars spurði hvort að Vilhjálmur hefði einhvern tíma séð skjólstæðing sinn útbúa þessi skjöl? „Nei, aldrei," sagði Vilhjálmur þá. Hann bar síðan fyrir sig minnisleysi þegar verjandi forvitnaðist um misræmi í framburði hans í lögregluskýrslu. Svik fimmmenninganna þykja afar flókin. Vilhjálmur sagði að hann hefði litla sem enga þekkingu á fjármálum yfirleitt. Þá svaraði hann spurningu sakóknara neitandi um hvort að hann þekkti fjármálaupplýsingafyrirtækið Creditinfo. Vilhjálmur lagði peninga inn á sjálfan sig tvo félaga sína, Hans Aðalstein Helgason og Jens Tryggva Jensson sem einnig njóta réttarstöðu sakbornings í þessu máli. Hver færsla var um það bil ein og hálf milljón. Þá sagði Vilhjálmur að þeir Aðalsteinn og Jens hafi vitað að hann hefði verið í neyslu á þessum tíma. „Ég var vel spíttaður á þessum tíma," sagði Vilhjálmur. „Ég hef snúið við blaðinu. Ég á lítinn strák núna og ég vil ekki vera lengi frá honum."
Tengdar fréttir Vítisenglar í Héraðsdómi - fjárdráttur og fjársvik Aðalmeðferð í máli fimm manna sem ákærðir eru fyrir stórfelld fjársvik hófst í Héraðsdómi Reykjaness nú í morgun. Fimmmeningunum er gefið að sök að hafa haft með blekkingum milljónir af Íbúðalánasjóði. 24. september 2012 09:40 Mest lesið Umferðarteppa á Hellisheiði vegna umferðaróhapps Innlent „Þetta er algjörlega óafsakanlegt hjá einu af ríkustu löndum í heimi“ Innlent Búið að opna Holtavörðuheiði aftur Innlent Þrjú kynferðisbrot á tónleikasvæðinu til rannsóknar Innlent „Við erum að svara kalli tímans“ Innlent Sektuðu í grennd við Símamótið Innlent Mælirinn segir 33 gráður Innlent „Þetta mál er náttúrulega bara einn harmleikur“ Innlent Gular viðvaranir og allt að tuttugu og sjö stig Veður „Af og frá“ að Ísland framselji löggjafarvaldið með inngöngu Innlent Fleiri fréttir „Gefa löggjafanum og lögreglunni fingurinn og fólkinu í landinu líka“ Sektuðu í grennd við Símamótið „Við erum að svara kalli tímans“ Búið að opna Holtavörðuheiði aftur Umferðarteppa á Hellisheiði vegna umferðaróhapps Á fimmta tug barna vilja sækja skóla í Grindavík „Þetta er algjörlega óafsakanlegt hjá einu af ríkustu löndum í heimi“ Hvalur skaut up kollinum í Hólmavík Mælirinn segir 33 gráður „Af og frá“ að Ísland framselji löggjafarvaldið með inngöngu Atvinnulausum í byggingariðnaði fjölgar gríðarlega Þrjú kynferðisbrot á tónleikasvæðinu til rannsóknar Brotist inn og peningaskápur tekinn Þrír gistu í fangageymslu og töluvert um fölsuð skilríki Hitabylgjur, fullveldi og Megas Þrír handteknir grunaðir um líkamsárás Heilbrigðiseftirlitið ekki áður séð mengun í fjörunni við vinnslustöð Hvals Unnið að hrunvörnum við Holtsnúp Hluti af þriðja vinningi lenti á Íslandi Stutt í að beint flug til Kína fari í sölu Ríkissaksóknari telur að Margrét eigi ekki að fá að áfrýja til Landsréttar Túlka verði niðurstöðurnar af varfærni Breiðholtsbrú opin fyrir umferð Vonar að verslanir hafi lært af reynslunni Rannsaka kynferðisbrot og líkamsárás á Landsmóti Gefur engin fyrirheit um lækkun áfengisgjalda Kynferðisbrot á Hólum og gular viðvaranir Konan sem fannst meðvitundarlaus í tjaldi látin „Ef þú ætlar austur verður þú að fara norðurleiðina“ „Þetta mál er náttúrulega bara einn harmleikur“ Sjá meira
Vítisenglar í Héraðsdómi - fjárdráttur og fjársvik Aðalmeðferð í máli fimm manna sem ákærðir eru fyrir stórfelld fjársvik hófst í Héraðsdómi Reykjaness nú í morgun. Fimmmeningunum er gefið að sök að hafa haft með blekkingum milljónir af Íbúðalánasjóði. 24. september 2012 09:40