Innlent

Steinar Aubertsson: Ég er saklaus

Steinar Aubertsson í Héraðsdómi Reykjaness í morgun.
Steinar Aubertsson í Héraðsdómi Reykjaness í morgun. mynd/anton
"Ég er saklaus af þessu," sagði Steinar Aubertsson við dómara í morgun en hann er ákærður fyrir að hafa skipulagt innflutning á rúmlega hálfu kílói af kókaíni, ásamt tveimur öðrum. Steinar var um tíma eftirlýstur af Interpol vegna málsins, en var framseldur hingað til lands í byrjun september.

Héraðsdómur Reykjaness úrskurðaði Steinar í gæsluvarðhald eftir að hann kom til landsins en Hæstiréttur snéri þeim úrskurði við þann 17. september síðastliðinn. Ekki þóttu nægar sannanir fyrir því að almannahagsmunir krefðust þess að hann yrði hnepptur í varðhald. Hann hefur því verið laus síðan þá.

Alls eru fimm ákærðir í málinu, en fyrirtaka í málinu gegn hinum fjórum fór fram í lok ágúst. Steinar var þá ekki á landinu og því var gefin út framhaldsákæra gegn honum sem var tekin fyrir í dag.

Steinar er ákærður fyrir að hafa skipulagt og fjármagnað innflutning á rúmlega hálfu kíló af kókaíni. Par, kona á þrítugsaldri og maður á fertugsaldri, eru einnig ákærð fyrir að skipuleggja smyglið. Í ákæru segir að unnt hafi verið að framleiða tæplega 2 kíló af kókaíni úr efninu.

Steinar og maðurinn neita báðir sök, en konan játaði að hafa ein skipulagt smyglið. Hún fékk móður sína til að flytja ferðatösku hingað til lands frá Danmörku sem kókaínið var í. Móðirin var stöðvuð við hefðbundið eftirlit á Keflavíkurflugvelli og var kókaínið falið í töskunni.

Parið, sem ákært er fyrir innflutninginn ásamt Steinari, er einnig ákært fyrir tvö önnur smygl. Í öðru þeirra eru þau grunuð um að hafa skipulagt smygl á 350 grömmum af kókaíni frá Spáni hingað til lands, og fengið par á fertugsaldri í verkið. Þau eru einnig ákærð fyrir að sækja efnin til Spánar en þau voru stöðvuð á Keflavíkurflugvelli.

Þá er parið einnig ákært fyrir að hafa fjármagnað og skipulagt innflutning á 140 grömmum af kókaíni frá Danmörku en kókaínið var afhent einstaklingi í Kaupmannahöfn á þessu ári, en ekkert varð af innflutningnum þar sem sá einstaklingur hvarf frá verkinu. Kærasti konunnar játaði sök að hluta við þingfestinguna í ágúst, þar sem hann sagðist hafa staðið einn að innflutningnum.

Aðalmeðferð í málinu fer fram í Héraðsdómi Reykjaness þann 3. október næstkomandi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×