Flutningur á innanlandsflugi hefði alvarlegar afleiðingar Gunnar Reynir Valþórsson skrifar 26. september 2012 18:34
Flutningur miðstöðvar innanlandsflugs frá Reykjavík til Keflavíkur hefði afar neikvæðar afleiðingar í för með sér fyrir íbúa á landsbygðinni og flug til þriggja bæja myndi alfarið leggjast af. Þetta er á meðal þess sem fram kemur í nýrri skýrslu sem KPMG vann fyrir sex sveitarfélög á landsbyggðinni og kynnt var á Reykjavíkurflugvelli í dag. Í máli bæjarstjóranna sem viðstaddir voru kynninguna kom fram að skýrslan væri hugsuð sem innlegg í umræðuna um flugvöll í Vatnsmýri, mikið væri til af skýrslum um áhrif flugvallarins á borgarbúa, en minna hefði farið fyrir rannsóknum á mikilvægi hans fyrir landsbyggðina. Í skýrslunni er aðeins horft til tveggja kosta, að innanlandsflugið verði áfram í Reykjavík eða að starfsemin flytjist til Keflavíkur. Skýrsluhöfundar segja að fækkun flugferða nemi allt að fjörutíu prósentum á einstökum leiðum og í skýrslunni er því einnig haldið fram að við flutninginn muni flug til Ísafjarðar, Hornafjarðar og Vestmannaeyja leggjast af í núverandi mynd. Ferðakostnaður mun einnig aukast fyrir íbúa landsbyggðarinnar, svo nemur sex til sjö milljörðum á ári og þá eru ótalin neikvæð áhrif á atvinnulíf,, menntamál, menningu og almenn lífsgæði þeirra sem búa á landsbyggðinni. Ísafjörður er einn þeirra staða sem verst færu út úr flutningnum. „Ég held að það hafi alltaf legið fyrir að það sé ekki valkostur fyrir okkur að fara í gegnum Keflavík," segir Daníel Jakobsson, bæjarstjóri Ísafjarðarbæjar, sem kallar eftir víðtækara samráði landsbyggðar, höfuðborgar og innanríkisráðuneytisins þegar kemur að framtíð flugvallarins. „Það þarf bara að fara yfr þetta, við þurfum að vinna þetta saman, ég held að þetta sé stærra mál en svo, við viljum koma að borðinu og taka þátt í þessari vinnu," segir Daníel að lokum.
Mest lesið Evrópuvaktin: Úrslitin ráðast Innlent Bein útsending: Valkyrjurnar halda blaðamannafund Innlent Íslendingar hafna aðildarviðræðum við Evrópusambandið Innlent „Ég sé fram á að senda dúndurteymi, dúndurlandslið út“ Innlent „Skammist sín og bíti aðeins í sápu“ Innlent Lokatölur úr Norðvesturkjördæmi: Nei-ið með 25 prósentustiga forskot Innlent Sprengisandur: Kosningarnar gerðar upp Innlent Ætla að opnan nýjan unglingaskóla í Ármúla Innlent Lokatölur úr Suðvesturkjördæmi: Fullvissuðu þjóðina um að svarið væri nei Innlent Bein útsending: Kosningavaka Sýnar Innlent Fleiri fréttir Ríkisstjórnin virði niðurstöðuna og taki málið af dagskrá Ferðalagið með ruslið ætti ekki að lengjast þó þjónustan færist fjær Niðurstaðan sé töluvert áfall fyrir ríkisstjórnina Bein útsending: Valkyrjurnar halda blaðamannafund Segir niðurstöðuna áfall fyrir ríkisstjórnina Sprengisandur: Kosningarnar gerðar upp Lokatölur úr Suðvesturkjördæmi: Fullvissuðu þjóðina um að svarið væri nei Íslendingar hafna aðildarviðræðum við Evrópusambandið Ofurölva ungmenni hlupu öll á brott nema eitt Ætla að opnan nýjan unglingaskóla í Ármúla Lokatölur í Norðausturkjördæmi: Nei jók forskotið undir lokin Lokatölur úr Norðvesturkjördæmi: Nei-ið með 25 prósentustiga forskot Lokatölur úr Suðurkjördæmi: Sextíu prósent sögðu nei Lítil breyting í lokatölum Reykjavíkurkjördæmis suður Dró saman á milli fylkinga í lokatölum Reykjavíkur norður Margra ára vegferð í vændum sigri já-ið „Ég sé fram á að senda dúndurteymi, dúndurlandslið út“ „Skammist sín og bíti aðeins í sápu“ „Alveg skýrt að unga fólkið segir nei“ „Hefði viljað meira afgerandi stuðning við Nei-ið í fyrstu tölum“ Allt hnífjafnt í Kraganum samkvæmt fyrstu tölum Sextíu prósent segja já í Reykjavík norður 56 prósent segja nei í Norðausturkjördæmi Meirihluti segir já í Reykjavík suður „Ég er mjög kátur“ Nei-liðar umtalsvert fleiri samkvæmt fyrstu tölum í Norðvesturkjördæmi Sextíu prósent segja nei samkvæmt fyrstu tölum í Suðurkjördæmi Hvenær birtast tölurnar í kvöld og nótt? Bjargað úr sjálfheldu í Reynisfjöru Bein útsending: Kosningavaka Sýnar Sjá meira