Borgin stórhuga í stígagerð BBI skrifar 28. september 2012 14:48 Mynd/facebook síða Reykjavíkurborgar
Reykjavíkurborg hefur hrundið af stað átaki í að bæta aðstöðu fyrir hjólandi og gangandi vegfarendur. Markmiðið er að Reykjavík verði framúrskarandi hjólaborg. Í ár hefur víða verið unnið að stígagerð í borginni en verkin eru mislangt á veg komin. Sem dæmi um framkvæmdir sem eru í burðarliðnum er nýr hjólastígur frá Hlemmi, meðfram Laugavegi og Suðurlandsbraut inn að Elliðaárósum. Stígurinn er óðum að taka á sig mynd og í vikunni var hluti hans malbikaður eins og sést á myndinni hér að ofan. Nokkuð er þó í að stígurinn verði tilbúinn enda á eftir að byggja tvær brýr ásamt tengileið yfir ósa Elliðaráa við Geirsnefið.Mynd/facebook síða ReykjavíkurborgarEinnig má nefna nýja stíga meðfram Vesturlandsvegi milli sveitarfélaganna Reykjavíkur og Mosfellsbæjar. Þegar þeir verða tilbúnir verður komin samfelld tenging frá Mosfellsbæ niður í miðborgina. Í sumar voru hjólastígar í Fossvogi einnig breikkaðir og skilið milli hjólaumferðar og gangandi vegfarenda. Nú er einnig til skoðunar að gera nýja hjólaleið eða bæta eldri leið yfir Elliðaárnar enda hefur hjólaumferð þar farið ört vaxandi. Hugmyndirnar verða teknar til skoðunar í vetur.Mynd/Facebook síða ReykjavíkurborgarLoks stendur yfir samkeppni um hönnun hjólastanda og hjólastíga. Skilafrestur er þegar runninn út en tilkynnt verður um úrslit í keppninni þann 3. október. Öllum má því vera ljóst að Reykjavíkurborg er umhugað um samgönguvenjur íbúa sinna og reynir sitt besta til að gera fólki kleift að hjóla milli staða í borginn.
Mest lesið Áslaug Arna boðar endurkomu á Alþingi Innlent Gripinn í blokk við þvottastúss eftir árásina Innlent Ölduselsskóla skipt út fyrir Seljaskóla Innlent Kallar aðgerðirnar leiktjöld og varar við verðstýringu Innlent CNN og ABC fjalla um Eyjaflugið Innlent Að minnsta kosti fimmtán létust í árásum Rússa á Úkraínu Erlent Stjórnvöld í Frakklandi vilja fá ríkisborgara lausan Erlent Suður-Grænland fær nýjan alþjóðaflugvöll Erlent „Vélin að bila og hún stingur upp á að við skiptum um áklæði“ Innlent Mótorinn í Herjólfi þarf til útlanda Innlent Fleiri fréttir Fagnar fjölgun skráninga í Þjóðkirkjuna Ölduselsskóla skipt út fyrir Seljaskóla Kallar aðgerðirnar leiktjöld og varar við verðstýringu CNN og ABC fjalla um Eyjaflugið Áslaug Arna boðar endurkomu á Alþingi Gripinn í blokk við þvottastúss eftir árásina Fleiri andvígir aðild nú en í fyrra Ingimar er bæjarstjóraefni D-listans í í Hveragerði Bækurnar of leiðinlegar og forritaði stærðfræðitölvuleik „Vélin að bila og hún stingur upp á að við skiptum um áklæði“ Lögðu hald á um tug lítra fíkniefna Æfir kennarar og varað við verðstýringu Mótorinn í Herjólfi þarf til útlanda Margir sátu hjá þegar launin voru hækkuð Halla Bergþóra nýr ríkislögreglustjóri „Nú hef ég auðvitað ekkert á móti fólki frá Nígeríu“ Dómur yfir Helga Bjarti: Fara þyrfti varlega í að draga ályktanir út frá framburði drengsins Rannsóknin á lokametrunum Fjórir landsréttardómarar vilja taka skrefið í Hæstarétt Forsetar Íslands og Slóveníu ræða leiðtogahlutverk í breyttum heimi Segir forsætisráðuneytið misnotað í þágu sveitarstjórnarkosninga Sjálfsmark með „sjúklega samfylkingarlegu“ kjötvörubanni Framkoman laði ekki lækna að Landspítalanum Ók á móti umferð í Hvalfjarðargöng með lögregluna á hælunum Helgi Bjartur dæmdur í tólf mánaða fangelsi Eimskip líta smyglið mjög alvarlegum augum „Já, ég er dálítið reiður“ Matarstefnan bara „orð út í loftið“ Töldu framboðinu ekki til framdráttar að mæta í þáttinn Verð á stökum miða í sund hækkar en árskortið lækkar Sjá meira