Innlent

Játaði morðið í Tulsa

Andri Ólafsson skrifar
Maðurinn sem grunaður er um að hafa skotið Kristján Hinrik Thorson í Bandaríkjunum í byrjun mánaðarins til bana viðurkenndi fyrir vini sínum skömmu eftir atburðinn að hafa skotið Hinrik.

Hinn grunaði í málinu heitir Jermaine Jackson en hann hafði undir höndum 22kalibera skambyssu af sömu gerð og notuð var í skotárásinni.

Á meðal þess sem kemur fram í gögnum lögreglu er að Jackson hafi rétt fyrir árásina gengið upp að bílstjórahlið bílsins sem Kristján Hinrik var í og öskrað á bílstjórann að hann hafi næstum því keyrt á hann. Því næst hafi hann tekið upp skambyssu og skotið alls 10 sinnum inn í bílinn með þeim afleiðingum að bæði bílstjórinn og Kristján Hinrik létust.

Jackson hljóp því næst af vettvangi.

Það virðist hafa spurst hratt út að Jackson væri morðinginn. Því í gögnum málsins kemur fram að móðir Kristjáns Hinriks fékk mörg símtöl morguninn eftir árásina frá skólafélögum hans með ábendingum um að Jackson bæri ábyrgð á dauða hans.

Í gögnunum kemur fram að eitt af vitnum lögreglunnar sé vinur Jacksons, sá segir að hann hafi viðurkennt fyrir sér í nokkru uppnámi að hafa skotið Hinrik. En það hefur áður komið fram að Jackson og Hinrik þekktust.

„Guð minn góður, ég vissi ekki hvað ég átti að gera, ég var reiður," er haft eftir Jackson, sem reyndi síðan að fara huldu höfði en lögreglan handtók hann skömmu síðar í Arkansasríki.

Athygli vekur að samkvæmt ákærunni í málinu sem fréttastofa hefur einnig undir höndum er að Jackson er ákærður fyrir tvö morð en til vara er hann hinsvegar ákærður fyrir morðið á bílstjóranum en aðeins ákærður fyrir manndráp í tilfelli Kristjáns Hinriks, sem bendir til þess að framburður Jacksons og skilningur lögreglu sé á þá leið að Jackson hafi ekki viljandi skotið Kristján Hinrik. Lögreglan vill þó ekki tjá sig um það að svo stöddu.

Verði hann fundinn sekur á jacson yfir höfði sér lífstíðarfangelsi og jafnvel dauðarefsingu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×