Brot Gunnars Andersen varða árs fangelsi - málið þingfest Jón Hákon Halldórsson skrifar 5. september 2012 10:08 Gunnar Andersen var ákærður fyrir brot á þagnarskyldu.
Ákæra á hendur Gunnari Þ. Andersen, fyrrverandi forstjóra Fjármálaeftirlitsins, verður þingfest rétt fyrir hádegi í dag. Hann er, ásamt starfsmanni Landsbankans, ákærður fyrir brot á þagnarskyldu. Samkvæmt ákæru fékk Gunnar starfsmann Landsbankans til að afla gagna úr bókhaldi bankans um viðskipti Bogamannsins ehf. sem hann afhenti Ársæli Valfells, en um var að ræða skjal sem sýndi að Landsbanki Íslands hf. greiddi 32.7 milljónir króna inn á bankareikning Bogamannsins ehf. 13. júní 2003. Í ákæruskjali kemur fram að Ársæll hafi komið umræddum upplýsingum að beiðni Gunnars til fréttastjóra DV sem nýtti upplýsingarnar við ritun fréttar um viðskiptin sem birtist í DV 29. febrúar 2012. Þá kemur fram að Gunnar hafi gert þetta í því skyni að skapa umræðu um viðskipti félagsins og eiganda þess, Guðlaugs Þórs Þórðarsonar, við Landsbanka Íslands hf. sem hann hafi talið óeðlileg og vegna þess að hann hafi talið Guðlaug Þór hafa í opinberri umræðu reynt að gera hann sem forstjóra Fjármálaeftirlitsins tortryggilegan sem og stofnunina sjálfa. Í ákæruskjalinu kemur fram að brot Gunnars varði við 136. grein almennra hegningarlaga og geti því varðað eins árs fangelsi.
Mest lesið Ísrael gerir árásir á Tehran og Beirút og Íranir svara fyrir sig Erlent „Þá er bara búið að skemma MR“ Innlent Íslenskt par flýr Dúbaí á eigin vegum Innlent Vaktin: Sprengjum rignir enn Erlent Bjuggust ekki við því að búa við sprengjuregn í Barein Innlent Gular viðvaranir á suðvesturhorninu Veður Við öllu búin en vonar að árásunum fari að linna Innlent D-listinn nærri því sá sami en óljóst með Elliða Innlent Frakkar fjölga kjarnavopnum Erlent Gæti orðið flughált síðdegis Innlent Fleiri fréttir Kynnir þrettán aðgerðir gegn brotastarfsemi Kæru vegna gistihýsa við þjóðgarðinn í Skaftafelli vísað frá Endurspegli aukna hörku í garð launafólks hjá Hafnarfjarðarbæ Samfylkingin mætt til leiks á Ísafirði Bjuggust ekki við því að búa við sprengjuregn í Barein Gæti orðið flughált síðdegis Við öllu búin en vonar að árásunum fari að linna D-listinn nærri því sá sami en óljóst með Elliða „Þá er bara búið að skemma MR“ Fyrsti framboðslisti Viðreisnar í Ísafjarðarbæ samþykktur Davíð hafi verið hrókur alls fagnaðar og harður í horn að taka Fyrsti dagur samræmdra prófa í fimm ár Björgunarsveitir ferja heilbrigðisstarfsfólk í og úr vinnu Tók rúma þrjá tíma að slökkva eldinn Íslenskt par flýr Dúbaí á eigin vegum Átökin breiðast út: Brá illilega þegar nærliggjandi hótel var sprengt í loft upp Dýpkun Landeyjahafnar seinkar: „Algerlega óásættanlegt“ Ákærður fyrir að nauðga konu ítrekað Hringveginum lokað vegna veðurs Davíðs minnst á Alþingi Merki um tengsl við erlenda leyniþjónustu Allt tiltækt lið slekkur eld í Hafnarfirði Skipta alþjóðalög máli eða ekki? Nýtt framboð í Bolungarvík Kristrún minnist Davíðs og víða flaggað í hálfa stöng Tók sambýliskonu sína hálstaki en var sýknaður Minnisstæð heimsókn til Davíðs fyrir jól Voru í safarí þegar þær heyrðu í sprengjuárás Hringvegurinn líklega lokaður til morguns Íslenskir strandaglópar í Dúbaí Sjá meira