Innlent

Gámur rakst á flugvél

Mynd tengist frétt ekki beint
Mynd tengist frétt ekki beint
Óskað var eftir aðstoð lögreglunnar á Suðurnesjum í morgun eftir að töskugámur hafði rekist í flugvél við Flugstöð Leifs Eiríkssonar. Verið var að lesta vélina þegar óhappið varð. Ástæða þess var sögð sú, að færibandið hefði ekki verið stillt rétt af miðað við staðsetningu lestarlúgunnar með þeirri afleiðingu að gámurinn rakst utan í hana. Skemmdir urðu litlar, að því er fram kemur í tilkynningu frá lögreglu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×