Sport

Sveit Bahamaeyja endaði sjö leika sigurgöngu Bandaríkjamanna

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Bahamamenn fagna sigri sínum.
Bahamamenn fagna sigri sínum. Mynd/AFP
Bahamaeyjar eignuðust í kvöld Ólympíumeistara í 4 x 400 metra boðhlaupi karla á Ólympíuleikunum í London þegar fjögurra manna sveit þeirra kom fyrst í mark á Ólympíuleikvanginum og endaði langa sigurgöngu Bandaríkjamanna.

Bandaríkjamenn urðu í 2. sæti í 4 x 400 metra boðhlaupi en bandaríska sveitin var búin að vinna þessa grein á sjö Ólympíuleikum í röð eða frá og með leikunum í Los Angeles 1984.

Gullsveit Bahamaeyja skipuðu þeir Ramon Miller, Demetrius Pinder, Michael Mathieu og Chris Brown. Sveit Trínidad og Tóbagó fékk bronsið en Oscar Pistorius og félagar í suður-afrísku sveitinni urðu áttundu og síðastir í hlaupinu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×