Nú kom heimsmetið hjá Bolt - vann sitt þriðja gull eins og Allyson Felix Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 11. ágúst 2012 20:18 Usain Bolt kemur í mark á nýju heimsmeti. Mynd/Nordic Photos/Getty
Jamaíkamaðurinn Usain Bolt og bandaríska konan Allyson Felix unnu bæði í kvöld sín þriðju gullverðlaun á Ólympíuleikunum í London þegar þau hjálpuðu sveitum sínum að vinna síðustu boðhlaupin á leikunum. Usain Bolt hljóp síðasta sprettinn fyrir sveit Jamaíku í 4 x 100 metra hlaupi karla og kom í mark á nýju heimsmeti eða 36,84 sekúndum. Það dugði ekki bandarísku sveitinn að setja landsmet og koma í mark á 37.04 sekúndum eða sama tíma og gamla heimsmetið var. Sveit Trínidad og Tóbagó fékk síðan bronsið. Usain Bolt náði ekki heimsmetunum sínum þegar hann tryggði sér gull í 100 og 200 metra hlaupunum en nú hljóp hann á fullu í gegnum markið og heimsmetið var í höfn. Auk Usain Bolt voru í sveitinni Nesta Carter, Michael Frater og Yohan Blake en Kemar Bailey-Cole datt úr liðinu fyrir úrslitahlaupið til þess að Bolt gæti hlaupið. Allyson Felix hljóp annan sprettinn fyrir bandarísku sveitina sem vann 4 x 400 metra hlaup kvenna. Felix varð Ólympíumeistari í 200 metra hlaupi og í gær hjálpaði hún bandarísku boðhlaupssveitinni að vinna 4 x 100 metra hlaupið á nýju heimsmeti. Auk Allyson Felix voru í gullsveit Bandaríkjanna þær DeeDee Trotter, Francena McCorory og Sanya Richards-Ross. Bandaríska sveitin kom í mark á 3:16,87 mínútum og Bandaríkin fékk gullið í þessari grein á fimmtu leikunum í röð. Rússland fékk silfrið og bronsið fór til Jamaíka.
Mest lesið Gunnlaugur Árni fyrstur karla til að tryggja sig inn á U.S. Open Golf Bjargráður bjargaði báðum: „Í mínu tilfelli var þetta ekki þess virði“ Fótbolti Þrefaldur NBA-meistari með Jordan látinn Körfubolti Baulað á Trump í New York Körfubolti Vill standa sig fyrir Ingvar vin sinn Íslenski boltinn „Hlakka mikið til að ná fleiri áföngum fyrir Ísland“ Golf Styðja við bakið á Ingvari í hans baráttu: „Alltaf að fara gera þetta“ Íslenski boltinn Markvörður í slagsmálum rétt fyrir vítaspyrnukeppni Fótbolti Spurs minnka muninn í úrslitaeinvíginu Körfubolti Eins og að fá spark frá hesti beint í brjóstkassann Fótbolti Fleiri fréttir Miðar teknir af Íran dögum fyrir fyrsta leik Styðja við bakið á Ingvari í hans baráttu: „Alltaf að fara gera þetta“ „Hlakka mikið til að ná fleiri áföngum fyrir Ísland“ Baulað á Trump í New York HM-minning: Eina tap Þjóðverja var á móti Þjóðverjum Vill standa sig fyrir Ingvar vin sinn Dumfries skrifar undir hjá Real Madrid Bjargráður bjargaði báðum: „Í mínu tilfelli var þetta ekki þess virði“ Spurs minnka muninn í úrslitaeinvíginu Ísland mætir heimsmeisturum með nokkurra klukkutíma millibili Eins og að fá spark frá hesti beint í brjóstkassann Dagskráin: Íslensku strákarnir mæta Messi og félögum Markvörður í slagsmálum rétt fyrir vítaspyrnukeppni Gunnlaugur Árni fyrstur karla til að tryggja sig inn á U.S. Open Gunnlaugur Árni í bráðabana um laust sæti á U.S. Open Þrefaldur NBA-meistari með Jordan látinn Rice verður varafyrirliði enska landsliðsins á HM FIFA: Fær ekki að dæma á HM vegna komubannsins Olise með þrennu en Mbappé náði ekki að jafna markametið Gakpo skoraði tvö mörk í fimmtugasta landsleiknum Skotar svara fyrir sig eftir norskar ásakanir um svikin loforð Wiegman sendi kveðju til Íslands: „Gangi ykkur vel“ Platini með sakamálaákæru á hendur forseta FIFA Fyrrum Liverpool-stjarna hættur aðeins 31 árs gamall Ekkert teiti því Trump mætir á völlinn Ein meidd Arsenal-stjarna nær HM en önnur missir af HM Gunnlaugur aðeins tveimur höggum frá toppnum eftir fyrri hringinn HM-dómara neitað um inngöngu í Bandaríkin Eigandi West Ham sakaður um að notfæra sér ungar konur kynferðislega Eriksen kominn heim og einbeitir sér að fótbolta með krökkunum Sjá meira