Íslenski boltinn

Pepsi-mörkin: Markaregnið úr 15. umferð

Það var mikið um að vera í leikjunum sex sem fram fóru í Pepsi-deild karla í fótbolta í gærkvöld.

Alls voru 28 mörk skoruð í umferðinni og er hægt að sjá þau öll í markaregninu úr þættinum Pepsi-mörkin sem sýndur var á Stöð 2 sport í gær. Hljómsveitin The Smiths sá um tónlistina með laginu Big mouth strikes again.

Hér fyrir neðan má sjá tengla á umfjöllun, viðtöl og einkunnir úr öllum leikjum gærkvöldsins.


Tengdar fréttir

Umfjöllun, viðtöl og einkunnir: Keflavík - ÍA 2-3

Skagamenn unnu sinn annan sigur í röð í Pepsi-deild karla í kvöld þegar þeir sóttu þrjú stig til Keflavíkur í 15. umferð deildarinnar. Skagamenn voru jafnframt að vinna sinn fyrsta útisigur í deildinni síðan að þeir unnu Fylkismenn um miðjan maí.

Umfjöllun, viðtöl og einkunnir: KR - Valur 2-3

Titilvonir KR-inga minnkuðu til muna þegar liðið tapaði 3-2 gegn Valsmönnum í 15. umferð Pepsi-deildar karla í kvöld. Kristinn Freyr Sigurðsson skoraði sigurmark Valsmanna í síðari hálfleik.

Umfjöllun, viðtöl og einkunnir: Selfoss - Fram 4-2

Selfyssingar komu með mikla spennu inn í fallbaráttuna með því að vinna Framara, 4-2, á Selfossi í kvöld í leik liðanna í 15. umferð Pepsi-deildar karla. Selfyssingar voru ekki búnir að vinna leik síðan í maí eða síðan að þeir spiluðu síðast við Framliðið.

Umfjöllun, viðtöl og einkunnir: Fylkir - ÍBV 0-4

ÍBV vann í kvöld auðveldan 4-0 útisigur á hörmulegu Fylkisliði í fimmtándu umferð Pepsi-deildarinnar. Eyjamenn náðu forystunni strax á fyrstu mínútu leiksins og litu aldrei til baka eftir það, en þeir hreinlega völtuðu yfir heimamenn í leiknum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×