Guðmundur: Forsetinn kominn í pólitík Karen Kjartansdóttir skrifar 2. júlí 2012 12:17 Guðmundur Steingrímsson segir að forsetinn sé kominn í pólitík.
Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands, segir þjóðina hafa sent þau skilaboð í forsetakosningunum að forsetinn eigi að láta til sín taka í umræðunni um hin stærstu mál. Guðmundur Steingrímsson, formaður stjórnmálaflokksis Bjartrar framtíðar, segir að með þessu sé forsetinn kominn í pólitík og að breytingar þurfi að verða á embættinu í samræmi við það. Skoðanir forsetans geti ekki komið úr vernduðu umhverfi. Guðmundur segir að það kunni að vera rétt hjá Ólafi Ragnari að niðurstöður forsetakosninganna sýni að þjóðin vilji forseta sem láti til sín taka þegar kemur að veigamiklum málum. Breytingar verði þó að gera á forsetaembættinu í samræmi við það. „Í kosningabaráttunni gat ég ekki skilið hann öðruvísi en forseti ætti að hafa hafa sjálfstæða utanríkisstefnu en þá þurfum við að hugsa forsembættið upp á nýtt. Það gengur ekki að eitthvað embætti þar sem forsetaritari og bílstjóri sé með sjálfstæða utanríkisstefnu heldur þarf að fjölga liði forsetans og á skrifstofu hans svo hann hafi allar forsendur og aðbúnað til að móta þá utanríkisstefnu," segir Guðmundur. Ólafur segir í viðtali við Fréttablaðið í dag að áhersla Þóru Arnórsdóttur á hlédrægari forseta hafi ekki fengið brautargengi. Hún hafi haft þá skoðun að forsetinn ætti alls ekki tjá sig um stjórnarskrána og Evrópusambandið en sú skoðun ekki hlotið afgerandi stuðning. Skilaboðin þjóðarinnar séu þau að forsetinn eigi að láta til sín taka í stórum málum. Þá segir hann að vantraust landsmanna á Alþingi auki kröfur um að forsetinn grípi inn í. Guðmundur Steingrímsson, spyr hvað þetta muni hafa í för með sér. Hvort forseti ætli að taka þátt í rökræðum á síðum blaða, hvort leyfði verði andsvör við ræðum hans við setningu Alþingis, hvort hann taki þátt í rökræðum við fulltrúa andstæðra sjónarmiða í sjónvarpsþáttum og hvort gagnstæð sjónarmið muni fá pláss í erlendum fjölmiðlum þegar hann tjáir sig þar. Lykilatriðið sé að forseti geti ekki haft afskipti ofan af stalli í heitustu deilumálum samtímans. Ef hann ætli að lýsa skoðunum sínum á annað borð verði allt annað sem tilheyrir lýðræðislegum skoðanaskiptum og gagnrýnni umræðu að fylgja með.
Mest lesið Safnað fyrir foreldra Bergs Ottós Innlent „Vona að Uber fái aldrei leyfi til að starfa á Íslandi“ Innlent „Fórnarlambið látið borga brúsann“ Innlent „Þetta er hreinn uppspuni“ Innlent „Farið að líða mjög illa á sálinni að horfa á lík og sundurtætta líkama“ Innlent Telja Ríkisútvarpið bullandi hlutdrægt í ESB-málinu Innlent Íbúar á flæðiskeri staddir eftir samdrátt í umsvifum Icelandair Innlent Skuldbundu sig í fjögur ár en farin eftir átján mánuði Innlent Bandaríkjamenn ráðast á Íran Erlent Trúir ekki öðru en að nýir herrar fjarlægi „níðstöngina“ Innlent Fleiri fréttir Sósíalisti fékk boðsferð til Kína Olíumengun í Kópavogslæk Hæsta einstaka tjónið vegna netglæpa 114 milljónir króna No Borders hvetja til andspyrnu gegn brottfararstöð „Farið að líða mjög illa á sálinni að horfa á lík og sundurtætta líkama“ Handtekinn á bíl með nagladekkjum „Þetta er hreinn uppspuni“ Fjöldi netbrota fjórfaldast og dómsmálaráðherra í beinni um brottfararstöð „Vona að Uber fái aldrei leyfi til að starfa á Íslandi“ Umdeild brottfararstöð leidd í lög Fimm úrskurðaðir í áframhaldandi gæsluvarðhald Hætta aftur rannsókn á Múlaborgarmálum Íbúar á flæðiskeri staddir eftir samdrátt í umsvifum Icelandair Telja Ríkisútvarpið bullandi hlutdrægt í ESB-málinu Landris og kvikusöfnun heldur áfram Trúir ekki öðru en að nýir herrar fjarlægi „níðstöngina“ Enginn þurfi að óttast að vera skilinn frá maka sínum Safnað fyrir foreldra Bergs Ottós Áfrýjar ekki dómi fyrir brot á Múlaborg Gervigreindin aukið hraða netsvika gríðarlega Góður gangur í fundarhöldum um þinglok Enn tekist á um þingstörfin og gervigreindin eykur hættuna á netglæpum Jóna Árný endurráðin bæjarstjóri „Fórnarlambið látið borga brúsann“ Skoða hvernig brotthvarfi Bandaríkjanna úr hafrannsóknum verður mætt Rúmlega átján þúsund skiluðu ekki framtali „Það vegast þarna á mjög erfið sjónarmið“ Rafvarnarvopn kom við sögu þar sem tilkynnandi um brot var handtekinn Vaxtaplanið sé tímaskekkja Bólga eftir bílbeltið leiddi til sýknu Sjá meira