Ólíklegt að kosningarnar verði ógiltar BBI skrifar 2. júlí 2012 15:53
Þó að framkvæmd atkvæðagreiðslu fatlaðra í forsetakosningunum á laugardag gæti talist ágalli á kosningunum er ólíklegt að það leiði til ógildingar þeirra. Þetta segir Bryndís Hlöðversdóttir, rektor Háskólans á Bifröst. Lögum samkvæmt eiga aðstoðarmenn fatlaðra í kosningum að koma úr röðum kjörstjórnar. Fram hefur komið í fréttum Vísis að Freyja Haraldsdóttir naut liðsinnis eigin aðstoðarmanns í kjörklefa. „Mér sýnist vissulega að það geti talist annmarki á kosningunum að framkvæmdin hafi verið svona með mismunandi hætti," segir Bryndís. Hins vegar telur Bryndís að þó þetta geti talist annmarki sé hæpið að það eitt valdi ógildingu. Hún ber málið saman við ógildingu Hæstaréttar á stjórnlagaþingskosningunni. Þá mat Hæstiréttur heildstætt nokkra annmarka: í fyrsta lagi hvort skilrúm á kjörstað þá væru nógu há, í öðru lagi númeramerkingu seðlanna, í þriðja lagi umbúnaður kjörkassanna sem talin var draga úr leynd kosninganna og í fjórða lagi að talning atkvæða hafi ekki farið fram fyrir opnum dyrum. „Þetta voru því fjórir annmarkar sem töldust verulegir. Svo var tekið fram að annmarkarnir allir væru metnir heildstætt og með vísan til þeirra allra yrði ekki hjá því komist að ógilda kosninguna," segir Bryndís. Í sjónvarpsfréttum Rúv í gær taldi hæstaréttarlögmaðurinn Ragnar Aðalsteinsson allar líkur á því að kosningarnar yrðu metnar ógildar ef þær yrðu kærðar, vegna framkvæmdar við atkvæðagreiðslu fatlaðra. Hann taldi hana ekki standast stjórnarskrá. Bryndís tekur ekki undir þetta. Hún telur með vísan til laga að hver sem er geti kært kosninguna og ekki þurfi til þess sérstaka lögvarða hagsmuni. Hins vegar finnst henni ólíklegt að það leiði til ógildingar ef ekkert annað kemur til.
Mest lesið „Við þurfum að horfast í augu við þessa fortíð“ Innlent „Þetta er náttúrulega bara rotið og galið“ Innlent Nafn piltsins sem lést í slysi á Miklubraut Innlent Birgir Örn óviss en Ísak Leon handviss Innlent Maður stunginn í miðbæ Reykjavíkur Innlent Nemendur vilji ekki vera í skólanum á meðan rektor er við stjórnvölinn Innlent Orri oddviti Sjálfstæðismanna í Hafnarfirði Innlent María Ellen kjörin oddviti Viðreisnar í Kópavogi Innlent Kosningavaktin 2026: Landsmenn kjósa sér sveitarstjórnir Innlent Jónas Már kjörinn oddviti Samfylkingarinnar í Kópavogi Innlent Fleiri fréttir Maður stunginn í miðbæ Reykjavíkur „Við þurfum að horfast í augu við þessa fortíð“ Orri oddviti Sjálfstæðismanna í Hafnarfirði Birgir Örn óviss en Ísak Leon handviss Þór leiðir aftur á Seltjarnarnesi María Ellen kjörin oddviti Viðreisnar í Kópavogi Orri áfram oddviti Framsóknar í Kópavogi Jónas Már kjörinn oddviti Samfylkingarinnar í Kópavogi Þorvaldur og Halldór með Einari og Magneu í Framsókn Einn handtekinn fyrir þjófnað í Skeifunni „Þetta er náttúrulega bara rotið og galið“ Nafn piltsins sem lést í slysi á Miklubraut Hjólar í borgina: Hafi engan áhuga á atkvæðum hjólreiðafólks Sigmundur í skotlínunni vegna ummæla um Svíþjóð Berglind rétt marði Þórhall „Síminn stoppar ekki“ Bifrastarmálið: „Þetta er fyrst og fremst sorglegt“ Mótorhjól eru bönnuð í Grænlandi Vantrauststillagan stendur þrátt fyrir niðurstöðu siðanefndar Hlédís Maren fram fyrir Miðflokkinn Nemendur vilji ekki vera í skólanum á meðan rektor er við stjórnvölinn Spyr hvort troða eigi gömlu fólki inn á heimili landsmanna Þrír gerðir að heiðursfélögum Sleipnis á Selfossi Viðreisn býður fram undir eigin merkjum á Ísafirði „Það er ekkert hæft í þessu“ Flutningabílar fastir á Þröskuldum Mætti með eggvopn á skemmtistað Efaðist ekki um að orsökin var bilaður aðflugsgeisli Skriður kominn á tuttugu ára gömul áform um nýjan golfvöll á Álftanesi „Ástandið hefur aldrei verið jafn slæmt“ Sjá meira