Innlent

Fundu fimm notaðar sprautunálar

Jón Hákon Halldórsson skrifar
Sprautunálar sem fíklar hafa notað geta verið hættulegar.
Sprautunálar sem fíklar hafa notað geta verið hættulegar. mynd/ getty
Fimm notaðar sprautunálar fundust við hafnarvigtina í Keflavík í vikunni þegar lögreglan fór að gá. Það var vegfarandi sem kom við á lögreglustöðinni á Hringbraut í Reykjanesbæ til að gera viðvart um sprauturnar. Þess eru dæmi að sprautunálar finnist á víðavangi og beinir lögregla þeim tilmælum til fólks að láta tafarlaust vita ef það rekst á slíka hluti, því þeir geta reynst hættulegir lendi þeir í höndum barna.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×