Enginn missir bílpróf fyrir að hjóla fullur BBI skrifar 22. júní 2012 18:01
Hjólreiðamenn geta fengið sektir fyrir að brjóta umferðarlög. Þeir geta aftur á móti ekki fengið refsipunkta í ökuferilskrá eða misst ökuleyfið fyrir það. Þetta segir Einar Magnús Magnússon, upplýsingafulltrúi hjá Umferðarstofu. Menn fá því 5 þúsund króna sekt fyrir að hjóla fullir. Þeir missa hins vegar ekki bílprófið segir Einar og telur almennan misskilning ríkjandi um þessi mál. „Sömuleiðis fær sá sem hjólar yfir á rauðu ljósi 15 þúsund króna sekt fyrir," segir Einar. „Hann fær hins vegar ekki tvo punkta í ökuferilskrá eins og hann hefði fengið ef hann hefði verið á bíl." Umferðarlagabrot á hjóli hafa þess vegna ekki áhrif á ökuréttindi enda þarf maður ekki að hafa ökuréttindi til að ferðast um á reiðhjóli. Hjólreiðamenn geta því bara fengið sektir fyrir brot. Einari finnst viðurlög af þessum toga engan vegin endurspegla alvarleika þess að brjóta umferðarlög á hjóli, enda eru hjólreiðamenn fullgildir þátttakendur í umferðinni og geta hæglega valdið mikilli hættu með óábyrgri hegðun. Um þetta var fjallað í útvarpsþættinum Reykjavík Síðdegis í dag. Þar kom einnig fram að gangandi vegfarendur fá engar sektir fyrir umferðarlagabrot. Þó það sé bannað að ganga yfir á rauðu ljósi eru engin viðurlög við brotinu. Umferðarstofa vill beita sér fyrir því að sektir verði teknar upp við brotum gangandi vegfarenda.
Mest lesið Ráðin til þess að fremja ofbeldisbrot á Íslandi Innlent Hildi og Inga Þór sagt upp Innlent Minnst 64 sagðir látnir í árekstri hraðlesta á Spáni Erlent Afkomendur síðasta böðuls á Íslandi búa enn á Illugastöðum Innlent Kattahland og skítur á gólfum og upp eftir veggjum Innlent Telur starfsmenn hæfa til að meta stjórnsýslu yfirmanns síns Innlent Munda fallbyssurnar við landamærin Erlent Google gerir athugasemdir við frumvarp Ingu Innlent Saslauskas og Sodys stálu 100 milljónum: Gucci-taska, dýrar dúnúlpur og 68 vitorðsmenn Innlent Opinberuðu lögbrot í kjúklingabúi með falinni myndavél Erlent Fleiri fréttir Sjálfuglaður ráðherra og allt í boði mysu Golfarar reynt að borga sig fram fyrir biðlistana Launmorðingjar ráðnir hingað til lands Breytir verkefnastofu í ráðuneytisstofnun Google gerir athugasemdir við frumvarp Ingu Saslauskas og Sodys stálu 100 milljónum: Gucci-taska, dýrar dúnúlpur og 68 vitorðsmenn Heimsending sögð ógn við lýðheilsu en þjónusta þegar ríkið á í hlut Gefa út öryggisviðvörun vegna mótmæla Grunuðum ofbeldismönnum vísað frá landinu og lestarslys á Spáni Ráðin til þess að fremja ofbeldisbrot á Íslandi Löggæsluáætlun næstu fimm ára kynnt á löggæsluþingi Bein útsending: Loftslagsdagurinn 2026 - Loftslagsbreytingar og öryggi Telur starfsmenn hæfa til að meta stjórnsýslu yfirmanns síns Kattahland og skítur á gólfum og upp eftir veggjum Afkomendur síðasta böðuls á Íslandi búa enn á Illugastöðum Haft áhrif með því að „standa í lappirnar gagnvart tæknirisunum“ Hildi og Inga Þór sagt upp „Skorið niður til þess eins að skera niður“ Engar vísbendingar fundist en formlegri leit lokið Sveinn R. Eyjólfsson er látinn Féll úr stiga í vinnunni og hlaut höfuðhögg „Ég geri ekki athugasemd við það að þetta símtal hafi átt sér stað“ Ekkert bendi til þess að eldgosahrinunni sé að ljúka „Galin vinnubrögð“ Þyrlan kölluð til: Maðurinn fannst heill á húfi „Hrikalegt högg“ Engin ástæða til að hamla för Portúgalsfarans lengur „Fyrst og fremst erfitt“ Hildur svaraði fyrir uppsagnirnar Nota rústamyndavél við leit að Lúðvík Sjá meira