Ekki í persónulegum ábyrgðum Brjánn Jónasson skrifar 23. júní 2012 10:49 Jón Helgi Guðmundsson.
Fjárfestirinn Jón Helgi Guðmundsson , kenndur við BYKO, reiknar með að halda sínum félögum hér á landi þó fjárfestingafélag hans sé skuldum vafið. Hann átti stóran hlut í Kaupþingi þegar bankinn fór í þrot og segir Brjáni Jónassyni hvað honum finnst um ásakanir á hendur stjórnendum bankans um markaðsmisnotkun og ræðir þann lærdóm sem hann hefur dregið af hruninu. Fjárfestar sem voru áberandi í íslensku viðskiptalífi fyrir hrunið haustið 2008 hafa komið mjög misvel út úr hruninu. Fjárfestar sem voru áberandi í íslensku viðskiptalífi fyrir hrunið haustið 2008 hafa komið mjög misvel út úr hruninu. Einn þeirra sem virðist hafa sloppið nokkuð vel er Jón Helgi Guðmundsson. Þrátt fyrir að fjárfestingafélag hans sé í miklum vanda óttast hann ekki að missa grunninn að viðskiptaveldi sínu hér á landi. Fjárfestingar Jóns Helga byggðust upp í kringum byggingarvöruverslunina BYKO sem faðir Jóns Helga stofnaði ásamt mági sínum fyrir 50 árum. BYKO heyrir í dag undir móðurfélagið Norvík sem á einnig önnur stór fyrirtæki á borð við Krónuna, Nóatún, Elko, Intersport og fleiri. Þrátt fyrir bankahrunið er staða Norvíkur sterk, segir Jón Helgi. „Við höfum farið í gegnum allar þessar hremmingar án þess að hafa þurft að leggjast á hnén. Það hefur ekkert verið afskrifað hjá okkur. Við höfum ekki farið í gegnum neina fjárhagslega endurskipulagningu. Það sama má segja um fasteignafélagið okkar, Smáragarð, það stendur vel," segir Jón Helgi. Hann segir Smáragarð standa vel, enda félagið fjármagnað til 25 ára og félög í eigu Norvíkur helstu leigjendurnir. "Ef ég ber Smáragarð saman við önnur fasteignafélög af svipaðri stærð hafa þau flest farið í gegnum einhverjar hremmingar. Okkar félag var ekki mikið skuldsett fyrir hrunið. Þó við værum auðvitað með töluverðar skuldir var það ekki þannig að það gengi okkur yfir höfuð," segir Jón Helgi. „Auðvitað er þetta erfitt. Stundum finnst manni ójafnt gefið, en kannski á maður ekki að kvarta yfir því. Ég er bara ánægður að Norvík hafi getað staðið þetta af sér. Það var ekkert sjálfgefið, langt frá því." Norvík er með starfsemi í sex löndum; á Íslandi, í Svíþjóð, á Bretlandi, í Eistlandi, Lettlandi og Rússlandi. Jón Helgi segir félögin utan Íslands almennt standa vel. „Það er bara eins og gengur þegar eru svona mörg fyrirtæki undir, það eru alltaf einhverjir með pestina. Þá geta hin stutt við, svo í heildina gengur þetta mjög vel."Fjárfestingafélag með pestina Eitt þeirra félaga sem sannarlega er með pestina eftir bankahrunið er fjárfestingafélag Jóns Helga og fleiri, Straumborg. Félagið stendur höllum fæti eftir hrunið, enda var félagið stór hluthafi í Kaupþingi þegar bankinn fór í þrot. Samkvæmt ársreikningi fyrir árið 2010 skuldar félagið 5,9 milljarða. Þá er ótalin krafa þrotabús Glitnis á hendur Straumborg að upphæð 3,9 milljarðar króna. Þrotabúið hefur stefnt Straumborg. Falli dómur félagi Jóns Helga í óhag skuldar það um 10 milljarða króna. Jón Helgi segir að ekki séu bein tengsl á milli Straumborgar og Norvíkur eða fasteignafélagsins Smáragarðs, þó að einhverju leyti séu eigendurnir þeir sömu. Þó á Straumborg tæplega 22 prósenta hlut í Norvík. „Við gerðum kyrrstöðusamning við lánardrottna Straumborgar fyrir nokkrum árum sem rennur út í janúar á næsta ári. Við erum að vinna í næstu skrefum í mjög góðu samstarfi við okkar lánardrottna. Það hefur verið okkar metnaðarmál að komast frá því á eins góðan hátt og hægt hefur verið. Við höfum lagt mikið á okkur til að það geti tekist, ég hef verið í launalitlu starfi við að reyna að gera sem best úr því undanfarið. Væntanlega kemur í ljós í haust hvernig við getum tekið framhaldið. Ég á ekki von á að Straumborg fari í þrot, það er verið að reyna að vinna úr þessu á sem bestan hátt," segir Jón Helgi. Hann segir því ekki hættu á að hann muni missa einhver af fyrirtækjunum sem heyra undir Norvík vegna slæmrar stöðu Straumborgar. „Það mun ekki koma til. Það er bara það sem er inni í Straumborg sem er til skiptanna. Við erum ekki í persónulegum ábyrgðum." Spurður um 22 prósenta hlut Straumborgar í Norvík segir hann litlu skipta fyrir rekstur Norvíkur þó hann gæti verið í uppnámi vegna erfiðrar stöðu Straumborgar. „Þá eru eftir 78 prósent í minni eigu og eigu fjölskyldunnar svo það hefur engin áhrif á okkur."Rótin liggur í kaupaukakerfunum Straumborg var einn af stærstu hluthöfunum í Kaupþingi þegar bankinn fór í þrot haustið 2008. Tap félagsins var mikið, og hefur það verið í fjárhagslegri gjörgæslu síðan. Jón Helgi segist ekki rétti maðurinn til að skýra það sem átti sér stað innan Kaupþings og leiddi til þess að bankinn féll. Of snemmt sé að úttala sig um ásakanir um markaðsmisnotkun. „Ég var kominn út úr stjórn Kaupþings fyrir nokkru síðan og fylgdist með bankanum úr fjarlægð." Straumborg átti stjórnarmann í Kaupþingi, en Jón fullyrðir þrátt fyrir það að hafa aðeins fylgst með bankanum úr fjarlægð og ekki hafa rætt málefni bankans við stjórnarmann sinn. „Ég held að það sem hafi valdið þessu öllu séu þessi kaupaukamál. Þar voru menn að kaupa bréf, margir voru með heilmikið undir. Nú er ég bara að tala eins og ég sá þetta utan frá, en þetta teymi sem var að stjórna bankanum var að reyna að bjarga honum. Menn höfðu trú á að þeir gætu komist í gegnum þetta, og voru að reyna að bjarga því að þessir samstarfsmenn sem þeir voru með allt í kringum sig, og bankinn byggði að einhverju leyti á, færu í gjaldþrot." Jón Helgi þvertekur fyrir að sem stór eigandi hljóti hann að hafa fylgst betur með en þetta svar gefur til kynna. "Nei, ég gerði það ekki. Ég var ekki í þeirri aðstöðu. Þarna voru stórir aðilar sem réðu ferðinni. Aðallega Bakkavararbræður og Ólafur [Ólafsson, kenndur við Samskip]. Ég var stór eigandi í Búnaðarbankanum. Þegar Búnaðarbankinn og Kaupþing voru sameinuð þynntist sá hlutur út og ég held að ég hafi ekki tekið þátt í neinum af þessum hlutabréfaaukningum sem fóru fram. Svo minn hlutur var að þynnast heilmikið út. En þetta var samt afgerandi hlutur í bókum Straumborgar, það er ekki spurning, illu heilli, og það er spurning hvort okkur takist að kljúfa það."Útsettur fyrir markaðsmisnotkun Spurður hvort um markaðsmisnotkun hafi verið að ræða hjá Kaupþingi segir hann það getgátur á þessu stigi. Þarna hafi skapast aðstæður sem enginn hafi séð fyrir og boginn hafi verið spenntur of hátt, hjá honum eins og mörgum öðrum. „Ég á óskaplega erfitt með að meta hvað gekk á til að geta lagt dóm á það. Auðvitað verð ég ekki ánægður með það ef í ljós kemur að þarna var um markaðsmisnotkun að ræða. Þá hef ég auðvitað verið útsettur fyrir það. Þeir sem töpuðu mestu á Kaupþingi voru við sem áttum hlutabréfin, næstmestu töpuðu þeir sem áttu skuldabréf bankans." Spurður hvort stjórnendur bankans hafi ekki reynst traustsins verðir segir hann það verða að koma í ljós. „Er ekki verið að rannsaka þessi mál öllsömul? Vonandi kemur það þá í ljós og menn geta lagt mat á það þegar niðurstaðan liggur fyrir. Við vorum auðvitað leiksoppar í þessu öllu eins og fleiri." Sjálfur segist Jón Helgi ekki hafa verið til rannsóknar í kjölfar hrunsins. Hann segist aldrei hafa þurft að ræða við sérstakan saksóknara um eitt né neitt, hvorki sem vitni né grunaður maður.Lækkun skulda besta fjárfestingin Jón Helgi segist eins og fleiri hafa lært ýmislegt af hruninu. „Ég get eiginlega vísað í reynslu Svíanna sem lentu í sínu hruni upp úr 1990. Það varð bankahrun í Svíþjóð, og bæði einstaklingar og félög voru mjög skuldsett. Margir fóru illa út úr því. Það er enn þannig rúmlega 20 árum seinna að Svíar vilja helst ekki skuldsetja sig. Menn brenndu sig ansi illa. Við viljum halda okkur við það sem við höfum þóst standa fyrir í því sem við höfum verið að gera. Spenna bogann ekki of hátt þannig að við sjáum ekki til lands. Ég sagði það nú eftir þetta hrun að við ætluðum að standa það af okkur með þessi rekstrarfélög. En ég veit ekki hvort við myndum þola annað svona hrun. Ég held að fáir myndu þola það," segir hann. „Við höfum verið í því að standa í skilum með okkar skuldir. Bæði Norvík og Smáragarður hafa náð að standa í skilum, og borgað bæði afborganir og vexti skilvíslega." Jón Helgi segir erfitt að sjá fjárfestingartækifæri á Íslandi í dag. „Við verðum að sjá til með það. Ef okkur tekst að eyðileggja sjávarútveginn núna fækkar kannski enn frekar fjárfestingartækifærunum á Íslandi. Ég held að menn verði að sjá til hvernig þróunin verður á næstu misserum. Ég held að besta fjárfestingin núna sé að borga skuldir."
Mest lesið Þau keyptu fyrir tuttugu milljónir í útboðinu Viðskipti innlent Auður hefur innreið sína á húsnæðislánamarkað Viðskipti innlent Fasteignamat hækkar um 9,2 prósent á milli ára Viðskipti innlent „Grindavíkuráhrifin“ leiða til talsverðrar hækkunar hjá nágrönnum Viðskipti innlent Kvika vinsælasta stelpan á ballinu Viðskipti innlent Sameining við Kviku banka mun taka langan tíma Viðskipti innlent Hringrásin: „Ég er með blæti fyrir gömlu timbri“ Atvinnulíf Bein útsending: Fasteignamat 2026 kynnt Viðskipti innlent Birta lista yfir kaupendur: Á annað þúsund keypti fyrir tuttugu milljónir Viðskipti innlent Verðbólga lækkar um 0,4 stig Viðskipti innlent Fleiri fréttir Þau keyptu fyrir tuttugu milljónir í útboðinu Sameining við Kviku banka mun taka langan tíma „Grindavíkuráhrifin“ leiða til talsverðrar hækkunar hjá nágrönnum Indó skoraði hæst í Sjálfbærniásnum Fasteignamat hækkar um 9,2 prósent á milli ára Bein útsending: Fasteignamat 2026 kynnt Verðbólga lækkar um 0,4 stig Kvika vinsælasta stelpan á ballinu Bein útsending: Viðurkenningarhátíð Sjálfbærniássins Auður hefur innreið sína á húsnæðislánamarkað Vextir lækka hjá Íslandsbanka Lokun kísilvers á Bakka: „Þetta er grátbölvað“ Arion vill sameinast Kviku Birta lista yfir kaupendur: Á annað þúsund keypti fyrir tuttugu milljónir Bein útsending: Ársfundur Samáls Vilja að stjórnvöld greiði leið kísilversins á Bakka Play tekur flugið til Agadir Halla nýr yfirlögfræðingur Emblu Medical Stöðva rekstur á Bakka í júlí og segja 80 manns upp störfum Heimar mega kaupa Grósku Tap útgerðarinnar vegna fjárfestinga í fiskeldi nemur milljörðum 4,5 milljarða hagnaður á fyrsta ársfjórðungi Kastrup og Jón Mýrdal hafa skilið skiptum Ráðin forstöðumaður söludeildar TVG-Zimsen Ný forysta Félags kvenna í atvinnulífinu kjörin Alcoa fellur frá þriggja milljarða króna skaðabótakröfu Högnuðust ríkulega en draga samt saman seglin í heimabyggð Íslendingar vongóðir um að finna heitt vatn á Tenerife Kaupa fasteignirnar sem hýsa starfsemi Samskipa Valgerður Hrund hættir hjá Sensa Sjá meira