Landsbankinn umsvifamikill í sölu á eignum Magnús Halldórsson. skrifar 28. júní 2012 23:03
Þó Landsbankinn hafi selt fjölmargar eignir sem komu í fang hans við hrunið, er hann enn umsvifamikill þegar kemur að sölu á eignum. Bankinn er nú með 19 bújarðir í sölumeðferð og á enn stóra eignarhluti í tveimur af stærstu fjárfestingafélögum landsins. Nú tæplega fjórum árum eftir að bankakerfið hrundi til grunna hefur mikið vatn runnið til sjávar þegar kemur að viðskiptum með fyrirtæki sem bankarnir fengu í fangið við hrunið. Landsbankinn hefur ekki síst verið stórtækur í þeim efnum. En það eru miklir hagsmunir undir fyrir skattgreiðendur, sem eru stærstu eigendur bankans. Frá því að Landsbankinn var stofnaður eftir hrunið, hefur hann selt Hertz bílaleiguna, Límtré Vírnet, Björgun, Formaco, Slippfélagið, Pizza pizza, sem selur Dominos pizzur, Parlogis og Sólningu. Þá seldi bankinn einnig frá sér félagið Vestia sem hélt á eignarhlutum í Vodafone, Plastprent, Skýrr, Teymi, Húsasmiðjunni og Icelandic Group. Bankinn á enn 40 prósent hlut í Toyota á Íslandi, 28 prósent hlut í fjárfestingafélaginu Eyri Invest, sem meðal annars er stærsti hluthafinn í Marel, og sjö prósent hlut í Stoðum. Þó bankinn hafi á dögunum selt frá sér 75 prósent hlut í fasteignafélaginu Regin, sem meðal annars rekur Smáralind og Egilshöll, þá á bankinn enn tæplega 30 prósent hlut í Reitum, og allt hlutafé í Laugahúsum og Hömlum þróunarfélagi. Í sölumeðferð hjá bankanum eru nú jarðir sem áður voru í eigu jarðeignafélagsins Lífsvals, 19 talsins. Fréttastofa mun á næstu dögum fjalla ítarlega um eignaumsýslu enurreistu bankanna þriggja og það breytta landslag í atvinnulífinu, sem nú blasir við, tæpum fjórum árum eftir hrun fjármálakerfisins.
Mest lesið Áhrifavaldur losar sig við steinefni Viðskipti innlent Ekki króna í þrotabúi Lucky records Viðskipti innlent Innkalla tengiltvinnbíla vegna eldhættu Neytendur „Þessi framlenging var ekki sjálfgefin“ Viðskipti innlent ESB framlengir sérlausn Íslands vegna losunarheimilda Viðskipti innlent Ímyndaðu þér ef yfirmaðurinn væri eins og Trump Atvinnulíf Greiðsluáskorun Samstarf Úrvalsdekk hönnuð fyrir Tesla og hátækni rafbíla nú fáanleg á Íslandi Samstarf Þrjú ný í eigendahópinn á BBA//Fjeldco Viðskipti innlent Allt að 35% ódýrari leigubílaferðir með Hopp Samstarf Fleiri fréttir Laun hækka umfram verðbólgu Starbucks kemur í stað Kaffitárs „Nú verða allir að líta í eigin barm“ Verðbólga eykst enn Aðeins 50 hafa nýtt sér meðeignarúrræðið: „Þetta eru fimmtíu sem hafa komist í eigið húsnæði“ Kaupverð undir 80 milljónum í 60 prósent kaupsamninga Selur eftir þrjátíu og fimm ára rekstur Vill tvöfalda umsvif Samkeppniseftirlitsins Atvinnuleysi fimm prósent í júní Sviptingar í stjórn Amaroq Félag Höllu fær fimmtíu milljónir í arð Icelandair tapaði fjórum milljörðum en samt með mettekjur Crowberry fjárfestir í Jónsbók Fengið 375 milljónir endurgreiddar vegna Trump-tolla Áfram lækkar íbúðaverð að raunvirði Fleiri færðu lögheimili í ár Fjögurra milljarða hagnaður hjá Emblu Medical Fannar stofnar ráðgjafafyrirtæki Greenfish og samtök evrópskra útgerða kortleggja hrossamakríl Áhrifavaldur losar sig við steinefni „Nauðsynlegt að fá varanlega lausn“ Ekki króna í þrotabúi Lucky records „Þessi framlenging var ekki sjálfgefin“ ESB framlengir sérlausn Íslands vegna losunarheimilda Daníel Þór frá Kviku til Reita Húsnæðislán séu síðasta vígið en það muni falla Valgeir Örn af skjánum til Landsnets Þrjú ný í eigendahópinn á BBA//Fjeldco Ætla að opna verslunarkjarna á Korputúni Eru greiðsludreifingar virkilega jafn hentugar og allir segja? Sjá meira