Segir ruslmál á Íslandi í tómu tjóni Kristján Már Unnarsson skrifar 1. júní 2012 21:00
Reglur sem neyða Skaftárhrepp til að loka sorpbrennslunni á Kirkjubæjarklaustri eru fáránlegar, segir sveitarstjórinn, og telur mun verra fyrir umhverfið að urða sorpið. Hreppurinn stendur frammi fyrr því að hafa ekki efni á að kynda skólann og sundlaugina. Skaftárhreppur þarf að óbreyttu að loka sorpbrennslustöðinni á Klaustri um næstu áramót vegna reglugerðar sem tók gildi í vor. Eygló Kristjánsdóttir sveitarstjóri segir að mjög gott fólk vinni hjá Umhverfisstofnun. Reglurnar sem það þurfi að vinna eftir séu hins vegar fáránlegar. Þótt díoxín í reyknum frá stöðinni hafi mælst yfir viðmiðunarmörkum segir Eygló að annað gildi um jarðveginn í grennd. Svæðið hafi komið betur út en viðmiðunarstaður. „Þannig að hér er ekki díoxín í jarðvegi," segir Eygló. Góðan árangur þakkar hún því að allir hafi þrjár tunnur. Íbúarnir flokki allt sorp. Henni líst ekki á að þurfa að urða allt sorpið. „Viljum við virkilega grafa upp heilu og hálfu hektarana til þess að urða sorp þegar hægt er að gera þetta öðruvísi?" spyr Eygló. Þarna nýtist sorpbrennslan til að hita upp sundlaugina, skólann og íþróttahúsið en enginn jarðhiti finnst á Klaustri. Að geta þannig kynnt upp sín helstu mannvirki skiptir sköpum fyrir sveitarfélag sem er fjárhagslega eitt hið verst stadda á landinu. Eygló segir að til að mæta þessu þurfi sveitarfélagið að finna einhversstaðar hálfa milljón á mánuði til að greiða RARIK. Þetta sé því einnig fjárhagsleg spurning. Hún hvetur umhverfisráðherra til að endurskoða reglurnar og leyfa áfram sorpbrennslu. „Þetta er besta leiðin til förgunar á sorpi, langbesta leiðin," segir Eygló og kveðst ekki trúa því að betra sé að brenna eldsneyti með því að aka ruslinu til urðunar á Álfsnesi eða sigla með það til útlanda, eins og Eyjamenn íhugi. „Ruslamál á Íslandi eru í tómu tjóni, allsstaðar á Íslandi. Í tómu tjóni."
Mest lesið Þessir Íslendingar kvöddu á árinu 2025 Innlent Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins: „Þorgerður er afar indæl“ Innlent Sjómenn mótmæla breytingum á samsköttun hjóna Innlent Skipuðu húsráðanda að elda fyrir sig áður en ræningjarnir ruddust inn Innlent 70 prósent landsmanna hlynnt banni Innlent Bandaríkin leggja til tvo milljarða dala með skilyrðum Erlent Frímúrarareglan vill lögbann á nýjar lögreglureglur Erlent Selenskí sver af sér drónaárás á heimili Pútíns Erlent Föðurnum enn haldið sofandi í öndunarvél Innlent Kolbrúnu Bergþórs sagt upp á Mogganum Innlent Fleiri fréttir Hægt að gefa hundum róandi og lyf til að gleyma um áramót Sjómenn mótmæla breytingum á samsköttun hjóna 70 prósent landsmanna hlynnt banni Þessir Íslendingar kvöddu á árinu 2025 Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins: „Þorgerður er afar indæl“ Tvö handtekin fyrir þjófnað og þrír fyrir sölu og dreifingu Stoltastur af veiðigjaldinu og telur aðrar skattabreytingar hafa lítil áhrif á heimilin Föðurnum enn haldið sofandi í öndunarvél Fylgi stjórnarflokkanna dalar Föðurnum í Suður-Afríku enn haldið sofandi Skipuðu húsráðanda að elda fyrir sig áður en ræningjarnir ruddust inn Fannst látinn utandyra í Borgarnesi Halldór Blöndal borinn til grafar Fimm með vanlíðan komast í Skjólshús í tvær vikur Kolbrúnu Bergþórs sagt upp á Mogganum Sagt upp eftir 26 ár á Morgunblaðinu Kominn tími á gos og Veðurstofan öllu viðbúin Sýknuð af ólöglegum innflutningi lyfja vegna rangra upplýsinga Lyfjastofnunar Þriggja hatta Inga segir engin ráðherraskipti í pípunum Desember að komast á lista yfir þá allra hlýjustu Erlendir ferðamenn talsvert slasaðir eftir áreksturinn Samið um Skjólshús og gos gæti komið á hverri stundu Hér verða áramótabrennur á gamlársdag 2025 Björn Ingi leiðir ekki Miðflokksmenn í borginni Gestir á Edition stukku út á náttfötunum Þurrkuðust út af þingi en sitja á tugum milljóna króna Óvenju mikið að gera hjá slökkviliðinu Sósíalistar líta til harðstjórnarríkja sem fyrirmynda Þrír réðust á einn og höfðu af honum farsíma Tvær þyrlur sækja fjóra eftir alvarlegan árekstur á Fagurhólsmýri Sjá meira