Býður stjórnmálamönnum á fund: "Komi þeir sem þora“ 2. júní 2012 18:33 Guðmundur Kristjánsson, forstjóri Brims. „
Ég hvet hér með Steingrím J. Sigfússon til þess að mæta og ræða við okkur og sjómenn Brims á opnum fundi næsta þriðjudag," segir Guðmundur Kristjánsson, forstjóri útgerðarfélagsins Brims, en hann ætlar að standa fyrir opnum fundi í Brimshúsi á miðbakkanum á Reykjavíkurhöfn klukkan tólf næsta þriðjudag. Hann vill að sjávarútvegsráðherrann komi á fundinn til þess að ræða frumvörp um stjórn fiskveiða og veiðigjöld en allur skipafloti Brims mun ekki fara til veiða næsta mánudag, heldur verður flotinn við bryggju eitthvað út vikuna í mótmælaaðgerðum útvegsmanna. Tímann ætla útgerðirnar að nýta til þess að kynna fyrir starfsmönnum sínum stöðu mála og hver framtíðin verður verði frumvörpin samþykkt. Guðmundur segist reyndar líta svo á að frumvörpin hafi þegar verið samþykkt. „Við teljum að það sé þingmeirihluti fyrir þessu," segir Guðmundur sem hringdi í Björn Val Gíslason, þingflokksformann Vinstri grænna í dag, og bauð honum og stjórnmálamönnum á fundinn á þriðjudaginn. Þá verður fundurinn einnig opinn fyrir fjölmiðlum. Spurður um gagnrýni ríkisstjórnarinnar um að beita sjómönnum fyrir sér með aðgerðinni um vinnustöðvun svarar Guðmundur því til að málið varðar sjómenn, sem og hag allra landsmanna, en í hans huga er ekki um eiginlega vinnustöðvun að ræða, heldur tímabundna mótmælaaðgerð. Þá gagnrýndu bæði Steingrímur og Björn Valur fyrirkomulag fundanna sem útgerðirnar ætluðu að halda. Þannig sagði Björn Valur að fyrst að útgerðirnar ætluðu að halda slíka fundi, því ekki bjóða stjórnmálamönnum og fjölmiðlafólki einnig svo þar gæti farið fram almennileg umræða um málefnið. Þessu kalli segist Guðmundur nú vera að svara. Hann vill fá fulltrúa ríkisstjórnarinnar til þess að takast á um málið á opnum hádegisfundi. „Komi þeir sem þora," segir Guðmundur að lokum.
Mest lesið Á þriðja tug sagt upp hjá Hafnarfjarðarbæ Innlent Hirti sagt upp störfum hjá Hagstofunni Innlent Blöskraði biðin í björgun við Stuðlagil og barðist fyrir námskeiði Innlent Segir fólk geta verið nýrnaveikt árum saman án þess að vita Innlent Nýja Ölfusárbrúin hægt en örugglega dregin yfir ána Innlent Blóðbað á lestarpalli Erlent Sonur þingmannsins ákærður Innlent „Svolítið sárt í hjartanu að hafa enga söngvakeppni“ Innlent Fjarlægðu myndskeið af golfhermi úr Kveiksþætti Innlent Veruleikinn breyttur eftir ofsaakstur á ónýtum bíl Innlent Fleiri fréttir Veruleikinn breyttur eftir ofsaakstur á ónýtum bíl ChatGPT trónir á toppnum Hafi reynt að myrða kærustu sína í sumar Fengu ráðgjafa til að greina fjárhagsstöðuna fyrir uppsagnirnar „Svolítið sárt í hjartanu að hafa enga söngvakeppni“ Hirti sagt upp störfum hjá Hagstofunni Sonur þingmannsins ákærður Á þriðja tug sagt upp hjá Hafnarfjarðarbæ „Akkilesarhæll á vinnu gagnvart þessum hópum“ Feginn að verðbólga stendur í stað og meirihluti mótfallinn þátttöku í Eurovision Til Ilulissat á Airbus með nýjum flugvelli Biðin á Landspítalanum styttist til muna Segir fólk geta verið nýrnaveikt árum saman án þess að vita Rukka erlenda nemendur um milljónir Nýja Ölfusárbrúin hægt en örugglega dregin yfir ána Notkun ólöglegra peptíða „rússnesk rúlletta“ Frumvarp kynnt um afnám æviráðningar Bein útsending: Kynnir aðgerðaáætlun gegn fátækt barna Sögðu öllum upp á Hjálpartækjamiðstöð SÍ Blöskraði biðin í björgun við Stuðlagil og barðist fyrir námskeiði Hópamyndun og hótanir unglinga við félagsmiðstöð í Kópavogi Fjarlægðu myndskeið af golfhermi úr Kveiksþætti Þurft að dvelja í einangrunarklefum vegna plássleysis „Mér finnst það alvarlegt“ Hafi ekki verið í formlegri heimsókn í moskunni Kveiksþætti kippt út tímabundið Söfnuðust saman við sendiráðið og mótmæltu refsiaðgerðum „Séum tilbúin þegar og ef þessi veruleiki birtist okkur“ Hljóta dóm fyrir að kveikja í Teslu lögreglumanns eftir allt saman Sveik hundruð þúsunda af vistmanni á Grenilundi Sjá meira