Fótbolti

Arnar vonar að AEK verði bjargað fyrir 20.mars

Arnar Grétarsson og Elfar Freyr Helgason.
Arnar Grétarsson og Elfar Freyr Helgason. Mynd/Heimasíða AEK
Arnar Grétarsson yfirmaður knattspyrnumála hjá gríska liðinu AEK í Aþenu, segir að ástandið í landinu geri það að verkum að erfiðara og erfiðara er að ná í styrktaraðila til íþróttamála. Hann var í dag í viðtali hjá Valtý Birni Valtýssyni í Boltanum á X-inu 977.

Eins og flestum er kunnugt er fjármálahagkerfi Grikklands hrunið líkt og gerðist hér á landi fyrir fjórum árum. Langflest félög standa höllum fæti og er AEK engin undantekning þar á. 30 prósenta fækkun áhorfenda á tveimur árum hjá félaginu er svo ekki til að laga hlutina.

Arnar segir að ekki sé háu miðaverði um að kenna en hægt er að fara á völlinn fyrir um 1650- 2500 íslenskar krónur, heldur sé það aukið atvinnuleysi sem er í kringum 20%. Auk þess hafi skattar verið að hækka úr 21% í 45 %.

AEK þarf að inna af hendi um 3 milljónir evra (um 495 milljónir íslenskra króna) fyrir 20.mars næstkomandi að öðrum kosti missir félagið keppnisleyfi hjá UEFA og í beinu framhaldi yrði AEK dæmt niður um deild í Grikklandi.

Arnar segir að niðurskurður hjá félaginu hafi verið mikill á síðasta ári og þeir gera ráð fyrir að fara úr 2.970 milljónum íslenskra króna í 1.155-1.320 milljónir íslenskra króna í launamálum leikmanna. Til samanburðar eru stórliðin Olympiacos og Panathinaikos að greiða leikmönnum um 5.770-6.600 milljónir íslenskra króna á ári.

Arnar vonast þó til að málum verði bjargað fyrir 20.mars en segir þó að líklegt þyki að dýrum útlöndum leikmönnum komi til með að fækka verulega á næstu árum og að grískir ungir leikmenn fái meira að njóta sín en af þeim er víst nóg til segir Arnar Grétarsson.

Eftir 13 daga verður það sem sagt ljóst hvort AEK verður í úrvalsdeildinni í Grikklandi eða verður dæmt niður um deild.

Það má finna allt viðtalið við Arnar með því að smella hér fyrir ofan.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×