Makríll stuðlar að húsasmíði á Suðurnesjum 20. febrúar 2012 20:00
Makrílveiðar valda því að eitt af sjávarútvegsfyrirtækjum Suðurnesja stendur í þrjúhundruð milljóna króna framkvæmdum og sést byggingarkrani nú á hreyfingu í Garðinum. Nesfiskur er langstærsta fyrirtæki í Garði, gerir út níu skip og rekur öfluga fiskvinnslu, bæði í Garði og Sandgerði, og er með um 300 manns í vinnu. Á tímum óvissu í fiskveiðimálum og lítilla framkvæmda í landinu vekur það athygli að þarna er verið að stækka fiskvinnsluhús og tveir flutningabílar sjást aka í hlað með glænýjar stóreflis frystigræjur sem eiga að fara í nýja frystigeymslu. Bergþór Baldvinsson, framkvæmdastjóri Nesfisks, segir í viðtali í fréttum Stöðvar 2 að aukin umsvif vegna makrílsins séu helsta ástæða framkvæmdanna. Verkið hófst í nóvember og stefnt er að því að nýbyggingin verði tilbúin í næsta mánuði. Iðnaðarmenn á Suðurnesjum fá þarna kærkomið verkefni en Bragi Guðmundsson byggingarmeistari í Garði annast smíðina og er með tíu til tólf manns í vinnu. Bergþór segir makrílveiðarnar hafa gengið að óskum. Hann vonar að framhald verði á og að Steingrímur J. Sigfússon, nýr sjávarútvegsráðherra, fylgi sömu stefnu og forverinn, Jón Bjarnason.
Mest lesið Ráðherra lét henda þeim út þegar rætt var um Heiðarfjall Innlent Samþykktu að slíta kjarasamningum Innlent Konan sem var borin út er látin Erlent Tugmilljóna gjaldþrot félags fíkniefnasmyglara Innlent Margaret Hamilton er látin Erlent Niðurrif hafið á Laugasól Innlent Kjaftshögg, blys og hrákur á VÍ - MR Innlent Hringdi inn þegar konan reyndist gift öðrum manni Innlent Segist geta gert Biden, Obama og Clinton „mjög slæma hluti“ Erlent Segir í tísku að setja „alþjóðasamfélagið“ ofar eigin þjóð Erlent Fleiri fréttir Hafi ekki „fært sig eina litla tommu“ Ráðherra lét henda þeim út þegar rætt var um Heiðarfjall Kjaftshögg, blys og hrákur á VÍ - MR Samþykktu að slíta kjarasamningum Niðurrif hafið á Laugasól „Vonbrigði að Icelandair fljúgi ekki lengur til Kulusuk“ Ljósastaurar bilaðir víða í Reykjavík Ræst út vegna logandi rafhlaupahjóls Serbar á Íslandi mótmæla: „Það er ósanngjarnt að taka af fólki réttinn til að kjósa“ Hringdi inn þegar konan reyndist gift öðrum manni Tugmilljóna gjaldþrot félags fíkniefnasmyglara „Við erum að gefa boltann upp“ Þétta samstarfið í útnorðri „Við erum tilbúin að skoða lengingu skólaársins“ Bein útsending: Blaðamannafundur Kristrúnar, Beinis og Jens Frederik SA á leið í árshátíðarferð á meðan klukkan tifar í kjaradeilu Sver af sér ábyrgð á rannsókn um karlmennsku Bílvelta á Vesturlandsvegi Sauð upp úr þegar Ragnar kallaði orð Ásgeirs óábyrg Verða að viðurkenna barn getið með staðgöngumæðrun Segir „gerviþak“ breyta litlu um „ryksugu“ Rúv Viðræður VR við SA á leið inn „blindgötu“ Tímarit eigi hvergi stað og fái enga styrki Segir fjölmiðlanefnd stjórnlausa og sektaóða Geti reynst erfitt að standa við verðlagsloforðin Hvetur flokka til að afla leyfa fyrir tónlist í pólitískum áróðri Rubio hafi staðfest varnarskuldbindingar gagnvart Íslandi Breyti myndböndum af börnum að borða og dansa í barnaníðsefni Kennarar boða tíðindi Nóg að spyrja þá sem þurfa að borga launin Sjá meira