Er að einangrast en þráir að vera meðal jafningja Þorbjörn Þórðarson skrifar 22. september 2012 19:00
Stefnan skóli án aðgreiningar hentar ekki öllum, segir faðir þroskaskerts drengs sem þarf að sækja skóla með krökkum sem glíma ekki verið sömu erfiðleika. Hann segir að syni sínum líði mjög illa í skólanum. Hann sé orðinn langt á eftir samnemendum í þroska og sé byrjaður að einangrast mjög alvarlega. Ingi Kristmanns er ellefu ára. Ingi hefur verið greindur með þroskahömlun og er á eftir jafnöldrum sínum í þroska, bæði andlega og líkamlega. Hann finnur sig ekki í skólanum, er mikið einn og á ekki vini. Ástæðan er sú að Inga er gert skylt að sækja grunnskóla með jafnöldrum sínum sem ekki glíma við sömu erfiðleika. Þetta er vegna innleiðingar stefnunnar skóla án aðgreiningar. Ingi er ekki með nægilega mikla þroskahömlun til að geta sótt nám í Klettaskóla, áður Öskjuhlíðarskóla. Klettaskóli er ætlaður börnum sem eru með alvarlegar og miðlungs þroskahamlanir ásamt þeim börnum sem eru með vægar þroskahamlanir og viðbótarfatlanir. Þroskahömlun Inga telst ekki nægileg til að hann fái inngöngu samkvæmt inntökuskilyrðum sem tóku gildi 2008. Hann er í raun utanveltu í kerfinu. „Hann er byrjaður að draga sig miklu meira úr hópum og sækist ekki eftir að vera með. Hann er byrjaður að einangrast mjög mikið," segir Ágúst Kristmanns, faðir Inga. Finnst ykkur þetta vera dæmi um að skóli án aðgreiningar hafi ekki heppnast sérstaklega vel í tilviki sonar ykkar? „Þetta heppnaðist fyrstu fjögur árin, á yngsta stigi grunnskólans. Svo jókst þroskamunurinn svo mikið. Strax í 5. bekk. Krakkarnir eru farnir að gera allt aðra hluti og hann nær ekki að fúnkera með þeim," segir María Björg Benediktsdóttir, móðir Inga.Ágúst Kristmanns og María Björg Benediktsdóttir, foreldrar Inga.Þau Ágúst og María Björg kærðu þá ákvörðun skólanefndar Klettaskóla að synja Inga um að sækja skólann í maí síðastliðnum með stjórnsýslukæru til menntamálaráðuneytisins, en ráðuneytið hefur ekki enn úrskurðað í málinu. Ráðuneytið hefur hins vegar sent þeim rökstuðning Skóla- og frístundaráðs og skólanefndar Klettaskóla fyrir synjun og þannig óbeint tekið undir rökstuðninginn. Ingi sækir nám í Hörðuvallaskóla í Kópavogi og fær hann stuðning í tímum, rétt eins og stefnan skóli án aðgreiningar gerir ráð fyrir. Foreldrar hans segja hins vegar að upplifun hans sjálfs sé alltaf sú að hann sé utanveltu, en hann þráir ekkert meira en að vera hamingjusamur í skólanum. „Krakkarnir sem eru með honum þar styðja hann mjög vel. Honum líður hins vegar illa vegna sinnar stöðu. Vegna þess að hann upplifir sig alltaf minnimáttar," segir Ágúst, en það er heitasta ósk foreldranna að sonur þeirra fái að upplifa sig sem jafningja með öðrum þroskahömluðum einstaklingum og stunda nám í Klettaskóla. thorbjorn@stod2.is
Mest lesið Herlið á leiðinni og Íslendingar hafi varann á Erlent Telur allt ógirt land tekið eignarnámi með dómi Innlent Fær hvorki bætur né afsökunarbeiðni eftir að hafa stungið sig á saumnál Innlent „Hvaða skaða hef ég valdið, Elliði?“ Innlent Hélt hún myndi deyja í útskriftarferð til Portúgal Innlent Töpuðu bardaganum, liðþjálfanum og prestinum Innlent Skafið og saltað Veður „Ég er ekkert að ýja að því, ég er bara að segja það fullum fetum“ Innlent Hvalfjarðargöng opin á nýjan leik Innlent Fimm ráðnir aftur eftir uppsagnirnar Innlent Fleiri fréttir Birtingarmyndir kynferðisofbeldis gegn ungum konum að breytast Fimm ráðnir aftur eftir uppsagnirnar Vilja rannsaka vinnubrögð sérstaks saksóknara Hafi nauðgað meðvitundarlausri sambýliskonunni Atvinnuleysi dróst saman Töpuðu bardaganum, liðþjálfanum og prestinum Sífellt erfiðara fyrir mörg heimili að ná endum saman Hélt hún myndi deyja í útskriftarferð til Portúgal Skoða áætlunarsiglingar milli Skotlands og Íslands Telur allt ógirt land tekið eignarnámi með dómi Hvalfjarðargöng opin á nýjan leik Fær hvorki bætur né afsökunarbeiðni eftir að hafa stungið sig á saumnál Tvö á einu rafmagnshlaupahjóli og flutt á bráðamóttöku „Hvaða skaða hef ég valdið, Elliði?“ Segir lögreglumenn á Vestfjörðum áhyggjufulla Musk setti Úkraínumönnum takmörk á tengingar við Starlink Óhugnanlega margir að leysa vandamálin með töflum „Ég er ekkert að ýja að því, ég er bara að segja það fullum fetum“ Ræddu ofbeldi í skólum í borgarstjórn: Segir kennara vera í legghlífum í vinnunni Sigurvin kallaður út vegna Hildar Ekki tilraun til manndráps að taka sambýliskonuna kverkataki Dæmdir morðingjar gætu fengið að annast fatlað fólk „Það er sitthvað til í því sem hann er að segja“ Sakar Ölmu um að hafna Litla spítalanum fyrir fram Skandall að menn afpláni ekki í fangelsi vegna plássleysis Stefna á að hefja leit í nóvember Vilja 125 milljónir til að halda flugeldasölunni gangandi Bein útsending: Fyrsta skóflustunga að Stóra-Hrauni Dómurinn feli í sér tilmæli til þingsins Hnuplaði úr verslunum fyrir á fjórðu milljón króna Sjá meira