Grunur um eitraða lifrarpylsu - hundasýningu frestað BBI skrifar 22. september 2012 16:18 Mynd/Hörður
Hundaræktunarfélagið Rex neyddist til að fresta hundasýningu sem átti að fara fram í reiðhöll Gusts í Kópavogi í morgun. Einhver hafði brotist inn í höllina og dreift lifrarpylsu um alla höllina og fyrir utan sömuleiðis. Vegna grunsemda um að lifrarpylsan væri eitruð var ákveðið að aflýsa sýningu í dag. „Það liggur fyrir að það var eitthvað í lifrarpylsunni. Við vitum bara ekki hvað það er," segir Ásgeir Guðmundsson, formaður hundaræktarfélagsins, og útilokar ekki að um eitur hafi verið að ræða. Málið er nú til rannsóknar hjá lögreglu og lifrarpylsan hefur verið send í efnagreiningu. Ásgeir vill ekkert tjá sig um hvort einhver liggur undir grun vegna uppátækisins. Ákveðið var að taka enga áhættu og fresta sýningunni þangað til á morgun í stað þess að hleypa hundum inn í höllina. „Þetta eru náttúrlega glæsilegri hundar, einhverjir verðlaunahundar, svo tjónið hefði orðið gríðarlegt ef tekist hefði að eitra fyrir þeim," segir Ásgeir. Ásgeir vill beina þeim ummælum til almennings að halda öllum dýrum frá höllinni í bili þar til málið hefur verið rannsakað enda var lifrarpylsu dreift fyrir utan höllina. Hann ráðleggur jafnvel börnum að vera ekki mikið á svæðinu. Sýningin fer fram á morgun í Mosfellsbæ í staðinn.
Mest lesið Hanna Katrín fékk bréf frá Judi Dench og Ricky Gervais Innlent Lokuðu flugbraut vegna dróna Innlent „Gefa löggjafanum og lögreglunni fingurinn og fólkinu í landinu líka“ Innlent „Þetta er algjörlega óafsakanlegt hjá einu af ríkustu löndum í heimi“ Innlent Umferðarteppa á Hellisheiði vegna umferðaróhapps Innlent Minnst 27 létust þegar eldur kviknaði á bar í Taílandi Erlent Níu ára stúlka meðal þeirra sem fórust og árásir enn nær daglegt brauð Erlent Sektuðu í grennd við Símamótið Innlent „Við erum að svara kalli tímans“ Innlent Búið að opna Holtavörðuheiði aftur Innlent Fleiri fréttir Lokuðu flugbraut vegna dróna Hanna Katrín fékk bréf frá Judi Dench og Ricky Gervais „Gefa löggjafanum og lögreglunni fingurinn og fólkinu í landinu líka“ Sektuðu í grennd við Símamótið „Við erum að svara kalli tímans“ Búið að opna Holtavörðuheiði aftur Umferðarteppa á Hellisheiði vegna umferðaróhapps Á fimmta tug barna vilja sækja skóla í Grindavík „Þetta er algjörlega óafsakanlegt hjá einu af ríkustu löndum í heimi“ Hvalur skaut up kollinum í Hólmavík Mælirinn segir 33 gráður „Af og frá“ að Ísland framselji löggjafarvaldið með inngöngu Atvinnulausum í byggingariðnaði fjölgar gríðarlega Þrjú kynferðisbrot á tónleikasvæðinu til rannsóknar Brotist inn og peningaskápur tekinn Þrír gistu í fangageymslu og töluvert um fölsuð skilríki Hitabylgjur, fullveldi og Megas Þrír handteknir grunaðir um líkamsárás Heilbrigðiseftirlitið ekki áður séð mengun í fjörunni við vinnslustöð Hvals Unnið að hrunvörnum við Holtsnúp Hluti af þriðja vinningi lenti á Íslandi Stutt í að beint flug til Kína fari í sölu Ríkissaksóknari telur að Margrét eigi ekki að fá að áfrýja til Landsréttar Túlka verði niðurstöðurnar af varfærni Breiðholtsbrú opin fyrir umferð Vonar að verslanir hafi lært af reynslunni Rannsaka kynferðisbrot og líkamsárás á Landsmóti Gefur engin fyrirheit um lækkun áfengisgjalda Kynferðisbrot á Hólum og gular viðvaranir Konan sem fannst meðvitundarlaus í tjaldi látin Sjá meira