Stórtækt þjófagengi stöðvað - mikið magn þýfis haldlagt 21. desember 2012 12:22 Suðurnes
Þjófagengi var stöðvað af lögreglunni á Suðurnesjum í dag. Var mikið magn þýfis haldlagt. Tveir karlmenn á fertugs- og fimmtugsaldri voru handteknir og hafa sætt gæsluvarðhaldi. Samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni á Suðurnesjum fannst þýfi úr tveimur innbrotum í Reykjanesbæ í tveimur bifreiðum mannanna. Um er að ræða fjórhjól og verkfæri. Vegna rannsóknarhagsmuna krafðist lögreglustjórinn á Suðurnesjum þess fyrir Héraðsdómi Reykjaness fyrr í mánuðinum að mennirnir yrðu úrskurðaðir í gæsluvarðhald og varð dómari við þeirri kröfu. Mennirnir eru nú báðir lausir úr haldi. Umfangsmiklar húsleitir voru gerðar íbúðahúsnæði, verkstæðis- og geymsluhúsnæði og bifreiðum sem mennirnir höfðu til umræða. Auk þess var lögreglan á Sauðárkróki fengin til aðstoðar varðandi leitir á tveimur stöðum í Skagafirði. Rannsókn leiddi í ljós að þýfi hafði verið flutt þangað til geymslu. Hald hefur verið lagt á ýmis konar tæki og muni vegna rannsóknar málsins svo sem tvö fjórhjól, bílalyftu, fjórar kerrur, hjólbarða, felgur, verkfæri, skráningarnúmer af ökutækjum, nokkurn fjölda bílageislaspilara og fleira. Lögregla vinnur að skoðun fjölda annarra haldlagðra muna. Má ætla að málið varði að minnsta kosti átta mál á Suðurnesjum og á höfðuborgarsvæðinu. Um er að ræða innbrot og þjófnaði, fjárdrátt, skjalafals og nytjastuld. Nokkrir hafa verið yfirheyrðir vegna tengsla við málið auk þeirra tveggja sem handteknir voru í upphafi. Rannsókn málsins stendur enn yfir hjá lögreglunni á Suðurnesjum en grunur leikur á að annar hinna handteknu hafi verið afkastamikill þýfissali og jafnvel er talið að hann hafi selt þýfi úr landi.
Mest lesið Stærsti skjálftinn 3,5 að stærð Innlent Viðræður „á viðkvæmu stigi“ og fundi frestað til morguns Innlent Búnaður Al Jazeera gerður upptækur og miðillinn í bann Erlent Eldinum í bílnum fylgdi heljarinnar sprenging Innlent „Í fangelsi eins og á Litla-Hrauni gerist allt“ Innlent Til vandræða á hóteli og réðst svo á mann við Hlemm Innlent Karlar líklegri að ljúga á kostnað annarra Innlent Forsetavaktin 2024: Hver verður sjöundi forseti lýðveldisins? Innlent Viðurkennir að hafa gengið of hart fram Innlent Hafi orðið fyrir þrýstingi úr ólíkum áttum Innlent Fleiri fréttir Viðræður „á viðkvæmu stigi“ og fundi frestað til morguns Stærsti skjálftinn 3,5 að stærð Áslaug Arna mjólkar vel í fjósinu á Hvanneyri Líklega fundað fram eftir kvöldi Til vandræða á hóteli og réðst svo á mann við Hlemm Lífshættuleg meðhöndlun barna á vöggustofum og þrír eftir í bakgarðshlaupi Karlar líklegri að ljúga á kostnað annarra Hafi orðið fyrir þrýstingi úr ólíkum áttum „Ódýrt“ að gera samningana tortryggilega Leikskólar Árborgar verða lokaðir á milli jóla- og nýárs Völd óskast: Forseti allra kynslóða? Eldinum í bílnum fylgdi heljarinnar sprenging Orku- og samgöngumál efst á lista nýs sveitarfélags Viðurkennir að hafa gengið of hart fram Tíðindi í kjaradeilu flugvallarstarfsmanna og bein útsending úr Bakgarðshlaupinu Frestun verkfalla kemur til greina „Í fangelsi eins og á Litla-Hrauni gerist allt“ Sáttasemjari boðar til fundar: Fimm dagar til stefnu Orkuskipti, innflytjendalöggjöf og bensínstöðvalóðirnar „Þetta breytti mér mjög mikið sem persónu“ Ný sýn fékk meirihluta Slagsmál enduðu með nefbroti Bíll logaði í Vesturbænum „Eldgosið virðist í andarslitrunum“ Endurnýja spá um lok umbrota við Grindavík Öruggara Suðurland“ – nýtt og spennandi verkefni Sú sem var oftast nefnd ekki ein af fjórum efstu í könnunum Landsmenn ánægðir með frammistöðu Höllu Tómasdóttur í kappræðunum Sló til starfsmanns og beit viðskiptavin „Skrímsladeildin“ hafi skorið upp herör gegn mótframbjóðendum Katrínar Sjá meira