Hælisleitendur við höfnina frekar regla en undantekning Erla Hlynsdóttir skrifar 21. desember 2012 20:30
Það er regla frekar en undantekning að hælisleitendur reyni að komst um borð í skip sem eru á leið til Bandaríkjanna. Þetta segir upplýsingafullrúi Eimskips. Öryggisverðir félagsins stöðvuðu hælisleitanda við höfnina í morgun með aðstoð hitamyndavéla. Reykjafoss lagði af stað til Bandaríkjanna í dag. í meðfylgjandi myndskeiði sést skipið sem hælisleitandinn ætlaði með. Það sem af er þessu ári hefur Eimskip lagt fram sjö kærur til lögreglu vegna hælisleitenda sem brjótast inn á öryggissvæðið, og verður þetta mál það áttunda Það var rétt upp úr klukkan sex í morgun sem hitanæmar myndavélar Eimskips utan við athafnasvæðið sýndu að þar var maður á ferð. Upptökur úr þessum myndavélum sjást í myndskeiðinu. Öryggisverðir höfðu hendur í hári hans um tíu mínútum síðar. Hælisleitandinn kom úr hvarfi bak við grjótgarð. Þessi sami hælisleitandi reyndi að komast um borð, síðast þegar Reykjafoss lá við höfn. „Þetta er í raun meiri regla en undantekning að menn reyni þetta þegar hér eru skip sem sigla vestur um haf," segir Ólafur William Hand, upplýsingafulltrúi Eimskips. Hann segir að upp úr 2009 hafi Eimskip orðið var við aukinn fjölda hælisleitenda og hafa beint því til innanríkisráðuneytisins að málum hælisleitenda sé betur sinnt. „Við erum búnir að eyða töluverðum fjármunum í að setja hér upp mjög öflugt myndavélakerfi sem er líklega eitt það öflugasta á landinu," segir hann. Mörg hundruð myndavélar eru á svæðinu. Yfirvöld í bandaríkjunum hafa fylgst náið með þróuninni og er svo komið að sérstök leit er gerð að laumufarþegum í íslenskum skipum sem koma til Bandaríkjanna sem hefur í för með sér tafir á afgreiðslu varnings. „Aðrar afleiðingar sem þetta getur haft og þegar hefur komið í ljós er að bandarísk yfirvöld hafi sent íslenskum yfirvöldum bréf þar sem er óskað eftir að við förum upp á vástig 2 - sem þýðir það að hafnarsvæði á landinu þurfa mörg hver að endurskoða sína öryggisgæslu," segir Ólafur þegar hann útskýrir þau vandkvæði sem geta fylgt laumufarþegunum.
Mest lesið Hjólhýsabyggð færist í Gufunes þrátt fyrir aðfinnslur Innlent „Í einu tilviki var talað um nauðgunarleik“ Innlent „Ég varð bara reiður, endalaust reiður“ Innlent Sendiráðsstarfsmaður fluttur heim öryggisins vegna Innlent Ellefu taldir af eftir að efnatankur gaf sig Erlent „Stattu vörð um fjallkonuna fríðu, láttu ekki nauðga henni“ Innlent Fækkar lögregluembættum Innlent Áframhald á árásum og Trump hefur í hótunum við Óman Erlent Boða róttækar breytingar: Ari íhugar tilboð sem Líf vildi fá Innlent Saksóknarar rannsaka konu sem Trump braut á Erlent Fleiri fréttir Bein útsending: Tekist á um þjóðaratkvæðagreiðsluna Gert ráð fyrir atkvæðagreiðslu um aðildarviðræður í dag Gular viðvaranir og snjókoma næsta sólarhringinn Enn tekist á um ESB í þingsal og verðbólgan hjaðnar lítið Gylfi verður bæjarstjóri á Ísafirði „Stattu vörð um fjallkonuna fríðu, láttu ekki nauðga henni“ Sendiráðsstarfsmaður fluttur heim öryggisins vegna Fækkar lögregluembættum Líta stöðuna í Varmá mjög alvarlegum augum Fagnar því að allir þingmenn fái að kynna sér ESB-gögnin Steinum kastað í bifreiðar og rúða brotin í skóla Hjólhýsabyggð færist í Gufunes þrátt fyrir aðfinnslur „Í einu tilviki var talað um nauðgunarleik“ „Ég varð bara reiður, endalaust reiður“ Aukaþingfundur boðaður: Miðflokksmenn fá að halda áfram í fyrramálið „Höfum þegar tekið upp tólið og heyrt í fjármálaráðherra“ Konan komin í leitirnar Arnarnesvegi ætlað að stytta bílaraðir Meirihlutanum liggur á í kvöld en ekki Miðflokknum „Viðreisnarbottar“ skýrt dæmi um erlend áhrif Lögregla kölluð til þegar slegist var um bílastæði Boða róttækar breytingar: Ari íhugar tilboð sem Líf vildi fá Hjónasjálfa, gleði og faðmlög í Viðey Nýr borgarstjóri mætir í beina útsendingu Landsnet lagði landeigendur í Hæstarétti Býr sig undir það versta en vonar það besta Fótbolti.net legið niðri í á annan sólarhring Krefjast þess að bankarnir dragi hækkanir til baka Hallgrímur kom í þáttinn sem mótvægi við oflof um Davíð Breytingum fórnað fyrir starfsfrið: „Friðjónslínan“ hafi ráðið för Sjá meira