Innlent

Engin börn inni í skólanum

Mynd frá vettvangi
Mynd frá vettvangi mynd/Margrét guðlaugsdóttir
Slökkviliðið hefur náð tökum á eldi sem kom upp í þaki íþróttahússins við Fellaskóla í Breiðholti. Mikill reykur barst frá svæðinu stuttu eftir að eldurinn kom upp um klukkan korter yfir sjö.

Samkvæmt upplýsingum fréttastofu rifu slökkviliðsmenn þakplötur upp til þess að slökkva í síðustu glóðunum. Allt tiltækt slökkvilið var sent á staðinn og hafa tveir dælubílar verið sendir heim. Nokkrir slökkviliðsmenn eru þó að ganga úr skugga um að eldurinn sé slokknaður.

Samkvæmt upplýsingum frá varðstjóra barst ábending um að börn gætu verið inn í skólanum. En við nánari athugun reyndist það ekki vera rétt. Grunur leikur á að um íkveikju sé að ræða þar sem eldurinn kom utan frá. Lögreglan rannsakar málið.




Tengdar fréttir

Eldur í Fellaskóla

Eldur er kominn upp í Fellaskóla í Breiðholti. Allt tiltækt slökkvilið er á leiðinni á staðinn en töluverðan reyk leggur frá þaki skólans, að sögn sjónarvotts. Nánari upplýsingar þegar þær berast.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×