Steinhleðslur við Gömlu höfnina friðaðar VG skrifar 27. desember 2012 15:21 Gamla höfnin.
Mennta- og menningarmálaráðherra hefur ákveðið að tillögu húsafriðunarnefndar að friða Tryggvaskála á Selfossi og Seyðisfjarðarkirkju og nær friðunin til húsanna í heild, þ.e. bæði ytra og innra byrðis samkvæmt tilkynningu á heimasíðu vefsins. Þá hefur ráðherra ákveðið að friða elstu mannvirkin við Gömlu höfnina í Reykjavík. Um er að ræða eftirfarandi steinhleðslur, sem gerðar voru á árunum 1913 til 1945: Ingólfsgarður (1913) Norðurgarður (1915) Steinhleðslur við Suðurbugt (1928-1930) Ægisgarður, eystri hleðsla (1932-1935) Steinhleðslur við Víkina og Verbúðarbryggjur, frá Rastargötu til Bótabryggju (1940-1945). Að auki hefur mennta- og menningarmálaráðherra ákveðið að fenginni tillögu húsafriðunarnefndar að friða Skálholtskirkju, Skálholtsskóla og nánasta umhverfi. Friðunin nær til innra og ytra byrðis Skálholtskirkju, ytra byrðis Skálholtsskóla auk nánasta umhverfis að undanskilinni yfirbyggingu yfir friðlýstar fornleifar Þorláksbúðar. Tryggvaskáli var reistur 1890 af Tryggva Gunnarssyni í tengslum við smíði Ölfusárbrúar. Hann er elsta húsið á Selfossi og þykir ómissandi kennileiti sem nauðsynlegt er að varðveita. Seyðisfjarðarkirkja í núverandi mynd var reist á árunum 1920 til 1922. Hún er að hluta smíðuð upp úr eldri kirkju sem stóð á Vatnsdalseyri fram til 1920. Seyðisfjarðarkirkja er fulltrúi fyrir ákveðna gerð austfirskra timburkirkna, sem bera skýr staðbundin einkenni, þ.e. þakturn og stóra smárúðótta bogaglugga. Kirkjan ber einnig sterk einkenni norskrar timburhúsahefðar , sem ráðandi er í gamla bænum á Seyðisfirði. Elstu varnargarðarnir í Reykjavíkurhöfn, Ingólfsgarður og Norðurgarður voru á sínum tíma stærstu framkvæmdir sem unnar höfðu verið á Íslandi og þykja bera vönduðu handverki gott vitni. Aðrar steinhleðslur, sem gerðar voru á fyrri hluta síðustu aldar, voru unnar á svipaðan máta og teljast hafa mikið varðveislugildi. Skálholtskirkja er eitt af höfuð verkum Harðar Bjarnasonar, fyrrum Húsameistara ríkisins og ásamt með gluggum Gerðar Helgadóttur og altaristöflu Nínu Tryggvadóttur þykir hún meðal öndvegisverka íslenskrar húsagerðarlistar. Hálf öld verður liðin frá vígslu kirkjunnar á næsta ári. Manfreð Vilhjálmsson og Þorvaldur S. Þorvaldsson arkitektar teiknuðu Skálholtsskóla árið 1970 og höfðu þeir fyrri tíða þorpsmynd í Skálholti í huga. Byggingunni er skipt upp í minni hús með tengigangi og til að árétta mikilvægi samræmis í byggingum í Skálholti var skólinn hafður í sömu litum og kirkjan.
Mest lesið Sögulegur dómur fyrir námsmenn í Hæstarétti Innlent Sjö ára dómur Innlent Rýnt í stöðuna í Úkraínu: Trump hleypir öllu í bál og brand, aftur Erlent Gul viðvörun gefin út fyrir landið allt Veður „Fyrir neðan siðgæðiskröfur sem maður gerir til alþingismanna“ Innlent Allt virðist mega ef BDSM-orðið er notað Innlent Ekki ástæða til að rýma bankann Innlent Halla kjörin fyrsti varaforseti ASÍ Innlent Sakar ráðherra um fordóma og „hvíta forréttindablindu“ Innlent Georg Páll er næsti forseti ASÍ Innlent Fleiri fréttir „Eigum ekki að bíða eftir alvarlegu atviki“ Jafnlaunavottunin afnumin en starfsfólkinu fækkar ekki Halla kjörin fyrsti varaforseti ASÍ Varar við að biðraðir í Keflavík geti fækkað flugleiðum Ekki ástæða til að rýma bankann Allt virðist mega ef BDSM-orðið er notað „Ég ætla ekki að fara í nein orðaskipti við Jón“ Sjö ára dómur Nýr forseti ASÍ, umdeildur sýknudómur og snjöll markaðsbrella Sakar ráðherra um fordóma og „hvíta forréttindablindu“ Ljósleiðaraslit á stofnstreng Mílu milli Akraness og Lambhaga „Fyrir neðan siðgæðiskröfur sem maður gerir til alþingismanna“ Allt að 40 offituaðgerðir hjá Klíníkinni fyrir áramót Georg Páll er næsti forseti ASÍ Hvetur Veðurstofuna til að brjóta odd af oflæti sínu Gróft kynlíf en ekki nauðgun samkvæmt klofnum Landsrétti Ungbörn áfram bólusett gegn RS-veiru Sögulegur dómur fyrir námsmenn í Hæstarétti Handtekinn fyrir hótanir og vopnalagabrot Nálgist neyðarástand Lentu aftur í óförum „Bara 15. október og við erum auðvitað uggandi yfir vetrinum“ „Auðvitað er þessi atburðarás ekki mjög sameinandi“ Tillaga um að fækka varaforsetum naumlega felld Ögurstund fyrir framtíð Eflingar innan ASÍ Hefur kvartað yfir stuðningsleysi í flokknum Krefjast milljarða vegna Barnaskóla Kársness Lögreglan lýsir eftir Halldóri Inga Hafa sett upp keðjur og bönd við Reynisfjöru Jón Gnarr segir sig úr þingflokki Viðreisnar Sjá meira