Enn særa menn og drepa fálka 21. september 2012 06:00 Þessi fálki barst Fjölskyldu- og húsdýragarðinum sár eftir byssuskot. mynd/FoHDG
Náttúrustofu Vesturlands barst á dögunum fálki sem fannst í Helgafellssveit á Snæfellsnesi. Hann drapst í búri sínu eftir umönnun í nokkurn tíma og í ljós kom að á hann hafði verið skotið úr haglabyssu og drapst hann af sárum sínum. Um var að ræða ungan karlfugl í sæmilegum holdum og ekki grútarblautan. Við fyrstu skoðun sáust blæðingar í koki og auga, auk þess sem blóðblettir voru á fiðrinu. Fálkinn var settur í búr og gefið að éta og drekka. Hann hresstist heldur og virtist vera að styrkjast en þann 16. september var hann dauður í búrinu. Hræið var sent til nánari skoðunar á Náttúrufræðistofnun Íslands. Þar var fálkinn gegnumlýstur og komu þá í ljós 9 högl sem dreifð voru um skrokkinn, þar af eitt í höfðinu. Ljóst er því að skotið hefur verið á hann með haglabyssu og drógu áverkarnir hann til dauða. Fálkastofninn er fremur lítill, aðeins 300-400 pör, og er algengastur í Þingeyjarsýslum. Fálkar eru alfriðaðir samkvæmt lögum um vernd, friðun og veiðar á villtum fuglum og villtum spendýrum og reglugerð um fuglaveiðar og nýtingu hlunninda af villtum fuglum. Engu að síður fann Náttúrufræðistofnun högl í um fjórðungi þeirra fálka sem henni bárust á árunum 2005-2009, eins og fram kom í frétt á heimasíðu stofnunarinnar í sumar. - shá
Mest lesið Hanna Katrín fékk bréf frá Judi Dench og Ricky Gervais Innlent Lokuðu flugbraut vegna dróna Innlent „Gefa löggjafanum og lögreglunni fingurinn og fólkinu í landinu líka“ Innlent „Þetta er algjörlega óafsakanlegt hjá einu af ríkustu löndum í heimi“ Innlent Umferðarteppa á Hellisheiði vegna umferðaróhapps Innlent Minnst 27 létust þegar eldur kviknaði á bar í Taílandi Erlent Níu ára stúlka meðal þeirra sem fórust og árásir enn nær daglegt brauð Erlent Sektuðu í grennd við Símamótið Innlent „Við erum að svara kalli tímans“ Innlent Búið að opna Holtavörðuheiði aftur Innlent Fleiri fréttir Lokuðu flugbraut vegna dróna Hanna Katrín fékk bréf frá Judi Dench og Ricky Gervais „Gefa löggjafanum og lögreglunni fingurinn og fólkinu í landinu líka“ Sektuðu í grennd við Símamótið „Við erum að svara kalli tímans“ Búið að opna Holtavörðuheiði aftur Umferðarteppa á Hellisheiði vegna umferðaróhapps Á fimmta tug barna vilja sækja skóla í Grindavík „Þetta er algjörlega óafsakanlegt hjá einu af ríkustu löndum í heimi“ Hvalur skaut up kollinum í Hólmavík Mælirinn segir 33 gráður „Af og frá“ að Ísland framselji löggjafarvaldið með inngöngu Atvinnulausum í byggingariðnaði fjölgar gríðarlega Þrjú kynferðisbrot á tónleikasvæðinu til rannsóknar Brotist inn og peningaskápur tekinn Þrír gistu í fangageymslu og töluvert um fölsuð skilríki Hitabylgjur, fullveldi og Megas Þrír handteknir grunaðir um líkamsárás Heilbrigðiseftirlitið ekki áður séð mengun í fjörunni við vinnslustöð Hvals Unnið að hrunvörnum við Holtsnúp Hluti af þriðja vinningi lenti á Íslandi Stutt í að beint flug til Kína fari í sölu Ríkissaksóknari telur að Margrét eigi ekki að fá að áfrýja til Landsréttar Túlka verði niðurstöðurnar af varfærni Breiðholtsbrú opin fyrir umferð Vonar að verslanir hafi lært af reynslunni Rannsaka kynferðisbrot og líkamsárás á Landsmóti Gefur engin fyrirheit um lækkun áfengisgjalda Kynferðisbrot á Hólum og gular viðvaranir Konan sem fannst meðvitundarlaus í tjaldi látin Sjá meira