Innlent

Grunuðum árásarmanni sleppt úr haldi

Hæstiréttur felldi í dag úr gildi gæsluvarðhaldsúrskurð Héraðsdóms Norðurlands eystra yfir manni, sem grunaður er um að hafa stungið mann fjórum sinnum með eggvopni á Ólafsfirði á laugardaginn og þar eftir farið í hús kunningja sinna þar sem hann hélt konu í gíslingu í tvo tima. Héraðsdómur Norðurlands eystra hafði komist að þeirri niðurstöðu að maðurinn skyldi sæta gæsluvarðhaldi til 5. júlí. Hæstiréttur segir hins vegar að ekki verði séð af gögnum málsins að sóknaraðili hafi sýnt nægilega fram á að ætla megi, að varnaraðili muni torvelda rannsókn málsins. Hann verður því látinn laus úr gæsluvarðhaldi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×