Segja lögreglu og fangelsismálayfirvöld lofa ólögmætum ívilnunum Jón Hákon Halldórsson skrifar 10. ágúst 2012 14:40 Þeir Annþór og Börkur eru vistaðir í fangelsinu að Litla Hrauni.
Verjendur þeirra Annþórs Kristjáns Karlssonar og Barkar Birgissonar segjast hafa rökstuddan grun um að lögreglan og fangelsismálayfirvöld séu að bjóða föngum ólögmætar ívilnanir fyrir vitnisburð í máli gegn þeim. Annþór og Börkur eru grunaðir um að hafa orðið samfanga sínum á Litla Hrauni að bana fyrr á árinu. Hæstiréttur staðfesti í gær dóm Héraðsdóms Suðurlands sem komst að þeirri niðurstöðu að vitni væri heimilt að gefa skýrslu nafnlaust. Þetta er í fyrsta sinn sem slík heimild er gefin. Hólmgeir Elías Flosason, verjandi Annþórs, sagði í samtali við Vísi í gær að dómur Hæstaréttar ylli sér miklum vonbrigðum. Með honum væri gengið þvert gegn skýru orðalagi reglugerðar um tilhögun skýrslutöku. Hann vildi að öðru leyti ekki tjá sig um málið. Þegar Vísir talaði við hann í morgun sagðist hann aftur á móti hafa grun um að umræddum ívilnunum væri beitt. Hólmgeir nefnir sem dæmi ívilnanir með flutningi í annað og mildara fangelsi. „Sé þetta tilfellið er augljóslega um ólögmætt inngrip stjórnvalda að ræða. Slík tilboð verða alla jafna meira heillandi nú þegar dómstólar hafa fallist á að vitnisburður fari fram undir nafnleynd að verjanda og sakborningi fjarstöddum," segir hann. Hólmgeir segir að fyrir liggi að farið verði frammá sjálfstæða rannsókn hvað þennan lið málsins varðar. „Það er alvanalegt að menn séu fluttir á milli fangelsa," segir Erlendur Baldursson, afbrotafræðingur hjá Fangelsismálastofnun. Hann bendir á að þegar fangar séu að bera á hvorn annan sakir geti verið erfitt að vista þá saman í fangelsi. Hann vill ekki tjá sig um þetta einstaka mál, sem er í rannsókn lögreglunnar.
Mest lesið Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Erlent „Við erum virkilega þreyttir“ Innlent Óljóst hvers vegna þeir hittust í „völundarhúsi“ bílastæðahússins Innlent Svakaleg lægð í líkingu við metlægðina í síðustu viku nálgast landið Veður Vopnakapphlaup á Kóreuskaga Erlent „Rasísk hryðjuverkaárás“ að mati Macron Erlent Allir á uppsagnarfresti og enginn getur svarað Innlent Vill efla bókasöfnin með minni yfirbyggingu Innlent Beiðni skólastjóra kveikti hörð orðaskipti í Hafnarfirði Innlent Hörð andstaða íbúa við rekstur veislusalar Innlent Fleiri fréttir Óljóst hvers vegna þeir hittust í „völundarhúsi“ bílastæðahússins „Góður rjúpnatúr snýst ekkert um veiða sem flestar rjúpur“ Sigmar snýr aftur Umferðarslys á Breiðholtsbrautinni Mátti reka mann sem hótaði að slíta af honum höfuðið Klukkuturninn snýr aftur á Hlemm „Við erum virkilega þreyttir“ Vill efla bókasöfnin með minni yfirbyggingu Hafa lagt sig fram við að eyða óvissunni Nú má heita eftir persónu í Hringadróttinssögu Beiðni skólastjóra kveikti hörð orðaskipti í Hafnarfirði Ráðast í úttekt eftir að starfsmaður lenti í alvarlegu vinnuslysi Ætla að blása til sóknar í bókasöfnum borgarinnar Þakið komið af tilvonandi höfuðstöðvum Nova Hörð andstaða íbúa við rekstur veislusalar Suðuviðgerð leiddi til lendingar á veginum Fresturinn liðinn en enn ósamið við flugvirkja Drógu vélarvana skútu til hafnar Telur dómarann vanhæfan vegna starfa í slitastjórn Sjálfstæðisflokkur tapar fylgi á meðan fylgi hinna haggast ekki Ný fylgiskönnun Maskínu og lítið þokast í viðræðum Icelandair Föst krónutala í stað hlutfalls Lítill hluti af milljörðunum þrjátíu sem fari í fangaklefa Lögregla fái að hirða bílana af „skussunum“ Líðan mannsins stöðug en slysið alvarlegt Hendurnar vilji ekkert með þennan „krabbameinsgaur“ hafa Ekkert um að fjalla Áverkar í 55 atvikum í grunnskólum borgarinnar Allir á uppsagnarfresti og enginn getur svarað Brutu kynferðislega gegn börnum en sluppu við refsingu Sjá meira