Axlarbrotinn heldur Gerðahverfi hreinu 5. september 2012 04:30 Þrátt fyrir veikindi og axlabrot hefur Sigtryggur Helgason bætt ásýnd hverfisins sem hann býr í með því að tína upp rusl og uppræta illgresi. Á veturna lýsir hann upp skammdegið með litskrúðugum jólaseríum við hús sitt. Fréttablaðið/GVA „
Ef ég væri ekki að finna mér eitthvað svona þá lægi ég bara uppi í rúmi í þunglyndi,“ segir Sigtryggur Helgason, íbúi í Hlyngerði í Reykjavík, sem í sumar hefur haldið hverfinu sín hreinu og snyrtilegu. „Ég er með vírbursta og hreinsa allt gras af gangstéttunum, við kantsteina og þar sem það er upp við veggi og set eitur. Síðan sópa ég svo allt sé hreint og fínt. Svo hjálpa ég líka sumum nágrönnum mínum með því að fara aðeins inn á lóðirnar þeirra,“ segir Sigtryggur, sem sjálfsagt er þekktastur meðal samborgaranna fyrir viðamiklar ljósaskreytingar við hús sitt um jólin. Eiginkona Sigtryggs lést fyrir þremur árum. Sjálfur verður hann 82 ára eftir tvo mánuði. Hann segist hafa tekið upp á því í hittiðfyrra að snyrta til í hverfinu en hafi þó verið of veikur til þess í fyrra. Í sumar hafi hann reynt eftir mætti að koma hlutunum í betra horf. „Ég hef verið að gera þetta eins og ég haft heilsu til en ég get lítið gert því ég er axlarbrotinn og verð bara að vera á hnjánum og nota vinstri höndina,“ segir Sigtryggur. Hann kveðst fara um á jeppanum sínum með stóra svarta ruslapoka í skottinu. „Ég er með fötu sem ég hvolfi úr í pokann því að ég get ekki lyft 50 kílóa poka með vinstri hendinni. Þannig að ég geri þetta á þann máta sem mér tekst.“ Fyrr í sumar safnaði Sigtryggur rusli í 25 stóra poka og kom þeim upp á Sorpu með sendibílum. Verst segir hann ástandið hafa verið á göngustíg á milli gatnanna. „Það var alveg hrikalegt,“ segir hann og undirstrikar að mikilvægt sé að hafa hverfið snyrtilegt. Því virðist fleiri vera sammála. „Nágrannarnir eru afskaplega glaðir og mjög jákvæðir. Það er mikið atriði hjá mér að fá fólk til þess að brosa og vera glatt,“ segir hann um viðbrögð fólks í hverfinu. Aðspurður segir Sigtryggur þó enga hafa slegist í lið með honum: „Ég kæri mig heldur ekkert um það – ég vil bara vera einn í þessu og er á lokastigi með þetta. Á eftir að sópa og taka tvær lóðir,“ segir Sigtryggur og heldur ótrauður áfram. gar@frettabladid.is
Mest lesið Áslaug Arna boðar endurkomu á Alþingi Innlent Hafa fundið nýtt jarðhitasvæði á Hellisheiði Innlent Gripinn í blokk við þvottastúss eftir árásina Innlent Ölduselsskóla skipt út fyrir Seljaskóla Innlent Samið við Icelandair um flug til Ísafjarðar Innlent „Það er ekki hægt að taka jafnaðarmanninn úr mér“ Innlent Kallar aðgerðirnar leiktjöld og varar við verðstýringu Innlent Svavar Sigmundsson er látinn Innlent Stjórnvöld í Frakklandi vilja fá ríkisborgara lausan Erlent CNN og ABC fjalla um Eyjaflugið Innlent Fleiri fréttir Varnarsigur segir formaður bæjarráðs Ísafjarðarbæjar Tíu tilvik í fyrra þar sem látnir lágu ófundnir í viku eða lengur 37 prósent landsmanna fylgjandi innheimtu veggjalda Ekkert verður af bankasamruna og Ísafjarðarflugið lifir „Það er ekki hægt að taka jafnaðarmanninn úr mér“ Svavar Sigmundsson er látinn Líkamsárás, húsbrot og eignaspjöll Samið við Icelandair um flug til Ísafjarðar Hafa fundið nýtt jarðhitasvæði á Hellisheiði Fagnar fjölgun skráninga í Þjóðkirkjuna Ölduselsskóla skipt út fyrir Seljaskóla Kallar aðgerðirnar leiktjöld og varar við verðstýringu CNN og ABC fjalla um Eyjaflugið Áslaug Arna boðar endurkomu á Alþingi Gripinn í blokk við þvottastúss eftir árásina Fleiri andvígir aðild nú en í fyrra Ingimar er bæjarstjóraefni D-listans í í Hveragerði Bækurnar of leiðinlegar og forritaði stærðfræðitölvuleik „Vélin að bila og hún stingur upp á að við skiptum um áklæði“ Lögðu hald á um tug lítra fíkniefna Æfir kennarar og varað við verðstýringu Mótorinn í Herjólfi þarf til útlanda Margir sátu hjá þegar launin voru hækkuð Halla Bergþóra nýr ríkislögreglustjóri „Nú hef ég auðvitað ekkert á móti fólki frá Nígeríu“ Dómur yfir Helga Bjarti: Fara þyrfti varlega í að draga ályktanir út frá framburði drengsins Rannsóknin á lokametrunum Fjórir landsréttardómarar vilja taka skrefið í Hæstarétt Forsetar Íslands og Slóveníu ræða leiðtogahlutverk í breyttum heimi Segir forsætisráðuneytið misnotað í þágu sveitarstjórnarkosninga Sjá meira