Reglur hertar vegna Annþórs og Barkar 25. maí 2012 07:00 Páll Winkel ætlar að taka hart á þeim Annþóri og Berki þegar þeim verður hleypt úr einangrun. Fréttablaðið/gva
Öryggisgangur á Litla-Hrauni verður rýmdur fyrir tvo fanga sem grunaðir eru um manndráp áður en þeir losna úr einangrun, samkvæmt fyrirmælum fangelsismálastjóra. Þar verða þeir einir og réttindi þeirra í löglegu lágmarki. Öryggisreglum á Litla-Hrauni hefur verið breytt til að betur verði hægt að taka á móti Annþóri Kristjáni Karlssyni og Berki Birgissyni þegar þeir losna úr einangrunarvist eftir nokkrar vikur. Þeir eru grunaðir um að hafa valdið dauða samfanga síns í síðustu viku. Þeir voru úrskurðaðir í þriggja vikna gæsluvarðhald og einangrunarvist í gær. „Við höfum þrjár vikur til að skerpa á öryggismálum hjá okkur og ég get alveg fullvissað þig um að það verður gert,“ segir Páll Winkel fangelsismálastjóri. „Vegna plássleysis þá höfum við nýtt öryggisgang á Litla-Hrauni undir afplánun. Ég gaf út fyrirmæli þess efnis í dag [í gær] að það yrði ekki gert aftur. Þannig að öryggisgangurinn á Litla-Hrauni verður nýttur sem slíkur og sé ekki brýn nauðsyn á vistun fanga þar þá mun hann standa auður,“ segir Páll, sem var farinn að búa sig undir að þurfa að hraða breytingunum ef ske kynni að gæsluvarðhaldskröfunni yrði hafnað. „Það tekur okkur einhvern tíma að tæma þennan öryggisgang, en það verður klárt þegar nýting hans verður nauðsynleg og öll réttindi manna sem þar verða vistaðir verða í löglegu lágmarki.“ Um leið og Annþór og Börkur losna úr einangrun munu þeir fara á öryggisganginn. „Það er frágengið,“ segir Páll. „Þar verða engir aðrir en þeir og ef aðrir fangar hegða sér með einhverju svipuðu móti þá fara þeir þangað inn líka.“ Þeir sem vistaðir eru á öryggisganginum geta haft samskipti sín á milli, en þó getur þurft að takmarka þau eða koma í veg fyrir þau. „Við verðum bara að athuga það út frá þeim lagalega ramma sem við vinnum eftir hversu mikið við getum lokað þessa menn inni,“ segir Páll. Athygli vakti að dómari kvað upp gæsluvarðhaldsúrskurð yfir mönnunum á Litla-Hrauni í gær, en þeir voru ekki fluttir í Héraðsdóm Suðurlands á Selfossi. Þetta er fáheyrt ef ekki einsdæmi. Ástæðan er sú að Börkur hefur verið verulega óstýrilátur þegar hann hefur verið færður á milli staða. Hann hefur hótað sérsveitarmönnunum, gert sig líklegan til að veitast að þeim, hrækt og haft uppi ógnandi tilburði af ýmsum toga. Því óskaði lögregla eftir að dómari kæmi frekar í fangelsið svo að ekki þyrfti að flytja Börk. stigur@frettabladid.is
Mál Annþórs og Barkar Fangelsismál Mest lesið Mikilvægt að styggja fólk ekki með orðalagi Innlent „Þú ert ógeðslegur, komdu þér í form“ Erlent Útilokar ekki verkfall eftir útspil sem kom eins og þruma úr heiðskíru lofti Innlent „Burt með bölvað ofstækið“ Innlent Tveggja til fjögurra ára börn ekki sprautuð heldur gefið í nefið Innlent Staðfesta tveggja ára dóm fyrir nauðgun eftir þorrablót Innlent Hófu aftur árásir á olíuvinnslur eftir blóðbað Erlent Flóttamannaleið opin á ný eftir bílveltu Innlent „Kisur eru að missa fæturna“ Innlent Telur ekki að verið sé að víkja frá gildandi samningi Innlent Fleiri fréttir Vill loka Stuðlum og opna nýtt úrræði Telur ekki að verið sé að víkja frá gildandi samningi Ætla að brenna rusl og skapa orku Kjarasamningar kennara í uppnámi Bein útsending: Peptíð, töfralausn eða heilsufarsleg áhætta? „Burt með bölvað ofstækið“ Flóttamannaleið opin á ný eftir bílveltu Óttast að þjónusta við íbúa verði lakari og dýrari í kjölfar uppsagna Tveggja til fjögurra ára börn ekki sprautuð heldur gefið í nefið Mikilvægt að styggja fólk ekki með orðalagi Staðfesta tveggja ára dóm fyrir nauðgun eftir þorrablót Útilokar ekki verkfall eftir útspil sem kom eins og þruma úr heiðskíru lofti Þristurinn gefinn Flugsafni Íslands Héldu námskeið um heiðursofbeldi Árekstur á Vesturlandsvegi tefur umferð „Kisur eru að missa fæturna“ Veruleikinn breyttur eftir ofsaakstur á ónýtum bíl ChatGPT trónir á toppnum Hafi reynt að myrða kærustu sína í sumar Fengu ráðgjafa til að greina fjárhagsstöðuna fyrir uppsagnirnar „Svolítið sárt í hjartanu að hafa enga söngvakeppni“ Hirti sagt upp störfum hjá Hagstofunni Sonur þingmannsins ákærður Á þriðja tug sagt upp hjá Hafnarfjarðarbæ „Akkilesarhæll á vinnu gagnvart þessum hópum“ Feginn að verðbólga stendur í stað og meirihluti mótfallinn þátttöku í Eurovision Til Ilulissat á Airbus með nýjum flugvelli Biðin á Landspítalanum styttist til muna Segir fólk geta verið nýrnaveikt árum saman án þess að vita Rukka erlenda nemendur um milljónir Sjá meira