Innlent

Bjartsýnir um stóriðjuframkvæmdir við Húsavík

Kristján Már Unnarsson skrifar
Thorsil tilkynnti í dag um að fyrirtækið hefði gert raforkusamning við Landsvirkjun vegna kísilmálmverksmiðju við Húsavík. Stefnt er að því að 37 milljarða króna smíði verksmiðjunnar hefjist næsta sumar, sem kallar á mörghundruð störf fyrir norðan.

Áform Thorsils fyrir tveimur árum að reisa verksmiðjuna við Þorlákshöfn urðu að engu vegna fjárhagsvanda Orkuveitu Reykjavíkur. Í staðinn er Thorsil nú búið að semja við Landsvirkjun með það í huga að reisa verksmiðjuna á Bakka.

Hákon Björnsson, framkvæmdastjóri Thorsils, segir að raforkukaupasamningurinn sé með fyrirvörum um að Thorsil ljúki fjármögnun. Umhverfismat sé hafið og samningar langt komnir við erlenda aðila um hlutafjárþátttöku í fyrirtækinu. Það eru evrópskt og asískt fyrirtæki sem jafnframt verða stærstu kaupendur kísilmálmsins.

Stefnt er að því að hjólin fari að snúast við Húsavík eftir rúmt ár. Hákon segir að þeir telji sig geta hafið framkvæmdir eftir mitt ár 2013 og að verksmiðjan verði gangsett um það bil tveimur árum síðar, eða seinnihluta árs 2015. Fjárfestingin næmi 36-37 milljörðum króna.

Það þýddi fjölda starfa á Húsavík. 150-160 manns myndu starfa við verksmiðjuna, eftir að rekstur kæmist af stað, en allt að 400 manns þyrfti við uppbyggingu.

En hversu bjartsýnir eru Thorsils-menn á að þetta verði að veruleika?

"Við erum það bjartsýnir að við treystum okkur orðið til þess að senda frá okkur fréttatikynningu um það að við teljum líkur á að það verði af þessu," svarar Hákon.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×