Bjartsýnir um stóriðjuframkvæmdir við Húsavík Kristján Már Unnarsson skrifar 18. júní 2012 19:45
Thorsil tilkynnti í dag um að fyrirtækið hefði gert raforkusamning við Landsvirkjun vegna kísilmálmverksmiðju við Húsavík. Stefnt er að því að 37 milljarða króna smíði verksmiðjunnar hefjist næsta sumar, sem kallar á mörghundruð störf fyrir norðan. Áform Thorsils fyrir tveimur árum að reisa verksmiðjuna við Þorlákshöfn urðu að engu vegna fjárhagsvanda Orkuveitu Reykjavíkur. Í staðinn er Thorsil nú búið að semja við Landsvirkjun með það í huga að reisa verksmiðjuna á Bakka. Hákon Björnsson, framkvæmdastjóri Thorsils, segir að raforkukaupasamningurinn sé með fyrirvörum um að Thorsil ljúki fjármögnun. Umhverfismat sé hafið og samningar langt komnir við erlenda aðila um hlutafjárþátttöku í fyrirtækinu. Það eru evrópskt og asískt fyrirtæki sem jafnframt verða stærstu kaupendur kísilmálmsins. Stefnt er að því að hjólin fari að snúast við Húsavík eftir rúmt ár. Hákon segir að þeir telji sig geta hafið framkvæmdir eftir mitt ár 2013 og að verksmiðjan verði gangsett um það bil tveimur árum síðar, eða seinnihluta árs 2015. Fjárfestingin næmi 36-37 milljörðum króna. Það þýddi fjölda starfa á Húsavík. 150-160 manns myndu starfa við verksmiðjuna, eftir að rekstur kæmist af stað, en allt að 400 manns þyrfti við uppbyggingu. En hversu bjartsýnir eru Thorsils-menn á að þetta verði að veruleika? "Við erum það bjartsýnir að við treystum okkur orðið til þess að senda frá okkur fréttatikynningu um það að við teljum líkur á að það verði af þessu," svarar Hákon.
Mest lesið Ráðin til þess að fremja ofbeldisbrot á Íslandi Innlent Hildi og Inga Þór sagt upp Innlent Rannsaka komu mögulegra launmorðingja hingað til lands Innlent Minnst 64 sagðir látnir í árekstri hraðlesta á Spáni Erlent Afkomendur síðasta böðuls á Íslandi búa enn á Illugastöðum Innlent Kattahland og skítur á gólfum og upp eftir veggjum Innlent Telur starfsmenn hæfa til að meta stjórnsýslu yfirmanns síns Innlent Saslauskas og Sodys stálu 100 milljónum: Gucci-taska, dýrar dúnúlpur og 68 vitorðsmenn Innlent Google gerir athugasemdir við frumvarp Ingu Innlent Munda fallbyssurnar við landamærin Erlent Fleiri fréttir Hyggst þyngja refsingar við að hagnýta börn til afbrota Hljóta dóm fyrir að kveikja í Teslu lögreglumanns eftir allt saman Sveik hundruð þúsunda af vistmanni á Grenilundi Engar vísbendingar og litlar upplýsingar Íslendingar losa meira en Evrópubúar í langflestu Sýna sögulega þingfestingu í öðrum sal Braut kynferðislega á fatlaðri stjúpdóttur sinni Golfarar reynt að borga sig fram fyrir biðlistana Rannsaka komu mögulegra launmorðingja hingað til lands Breytir verkefnastofu í ráðuneytisstofnun Google gerir athugasemdir við frumvarp Ingu Saslauskas og Sodys stálu 100 milljónum: Gucci-taska, dýrar dúnúlpur og 68 vitorðsmenn Heimsending sögð ógn við lýðheilsu en þjónusta þegar ríkið á í hlut Gefa út öryggisviðvörun vegna mótmæla Grunuðum ofbeldismönnum vísað frá landinu og lestarslys á Spáni Ráðin til þess að fremja ofbeldisbrot á Íslandi Löggæsluáætlun næstu fimm ára kynnt á löggæsluþingi Bein útsending: Loftslagsdagurinn 2026 - Loftslagsbreytingar og öryggi Telur starfsmenn hæfa til að meta stjórnsýslu yfirmanns síns Kattahland og skítur á gólfum og upp eftir veggjum Afkomendur síðasta böðuls á Íslandi búa enn á Illugastöðum Haft áhrif með því að „standa í lappirnar gagnvart tæknirisunum“ Hildi og Inga Þór sagt upp „Skorið niður til þess eins að skera niður“ Engar vísbendingar fundist en formlegri leit lokið Sveinn R. Eyjólfsson er látinn Féll úr stiga í vinnunni og hlaut höfuðhögg „Ég geri ekki athugasemd við það að þetta símtal hafi átt sér stað“ Ekkert bendi til þess að eldgosahrinunni sé að ljúka „Galin vinnubrögð“ Sjá meira