Lengsti bráðbani í sögu PGA - Molder fékk 100 milljónir kr. 10. október 2011 14:30 Bryce Molder sigraði í fyrsta sinn á ferlinum á PGA móti í golfi í gær eftir maraþonbráðabana gegn Briny Baird. pga.com
Bryce Molder sigraði í fyrsta sinn á ferlinum á PGA móti í golfi í gær eftir maraþonbráðabana gegn Briny Baird. Þeir luku leik á 17 höggum undir pari og úrslitin réðust ekki fyrr en á sjöttu holu í bráðabana sem er sá lengsti í sögunni á bandarísku PGA mótaröðinni en hann stóð yfir um tvo tíma. Tiger Woods endaði í 30. sæti á þessu móti á 7 höggum undir pari samtals. Hann fékk um 3,5 milljónir kr. í verðlaunafé fyrir þann árangur. Molder og Baird léku 17. og 18. holu vallarins þrívegis áður en úrslitin réðust en þeir léku frábært golf undir miklu álagi. Fyrir sigurinn fékk Molder rúmlega 100 milljónir kr. í verðlaunafé og tveggja ára keppnisrétt á PGA mótaröðinni. Molder sýndi fína takta með dræverinn í bráðabananum. Hann smellti boltanum þrívegis inn á flöt í upphafshögginu á 17. Flöt þar sem hann þurfti að fljúga boltanum um 265 metra eftir upphafshöggið á brautinni sem er par 4. Molder setti boltann nánast á sama stað á flötinni í öll þrjú skiptin. Á þessu ári hafa úrslit ráðist á PGA móti í bráðabana á 17 mótum. Baird hefur leikið á 348 mótum á 12 ára keppnisferli á PGA mótaröðinni og er þetta í fjórða sinn sem hann verður að bíta í það súra epli að enda í öðru sæti. Baird getur huggað sig við það að hann fékk um 63 milljónir kr. í verðlaunafé og þar að auki náði hann að þoka sér upp í hóp þeirra 125 efstu á peningalistanum sem fá sjálfkrafa keppnisrétt á næsta tímabili. Fyrir mótið var Baird í 148. sæti á peningalistanum.
Golf Mest lesið Sú besta í heimi komst ekki á blað hjá íslenska landsliðsþjálfaranum Fótbolti Dauðaslys í maraþonhlaupi Sport Átta þúsund krónur fyrir miða á úrslitaleik HM í stað 529 þúsund Fótbolti Eygló íþróttastjarna ársins í Reykjavík Sport Man United ósátt við Marokkó og FIFA Enski boltinn KSÍ missti af meira en milljarði króna Fótbolti Öðruvísi lið en áður hafa sóst í Frey: „Vita hvar ég stend“ Fótbolti Hefur aldrei séð svona ofbeldi: „Þetta var allt of mikið“ Sport Enginn blóðugur en einn brjálaður á HM í kvöld Sport Stjarnan fór í dulargervi: Setti stuðningsmann United á óþekka listann Enski boltinn Fleiri fréttir Guðrún Brá efst eftir fyrsta hring í Marokkó Íslensku stelpurnar misstu einn keppnisdag vegna eldingarhættu Áminntir fyrir að drekka einn bjór: Sagðir drukknir og hafa tekið „Happy Gilmore-sveiflu“ Ástand í Noregi: Hátt upp í fimm þúsund kylfingar án klúbbs Bananahýði gerði Rory McIlroy erfitt fyrir Dáður en umdeildur kylfingur látinn Gríðarleg fjölgun kylfinga: „Aðstaðan sprungin í höfuðborginni“ Barnabarn Donalds Trump: „Ég sló mörg góð högg, bara á ranga staði“ Vildi ekki svara spurningum um afa sinn, Donald Trump Tóku símana af stelpunum alla keppnisferðina Sjá meira