Skotárásin skipulögð af Outlaws 15. desember 2011 02:00 Byssur Lögreglan hefur lagt hald á byssur oog fleiri vopn í tengslum við árásina.
Hæstiréttur hefur staðfest gæsluvarðhaldsúrskurð Héraðsdóms Reykjavíkur yfir fjórum mönnum sem setið hafa í gæsluvarðhaldi og einangrun vegna rannsóknar lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu á skotárás sem gerð var á bifreið í austurborginni 18. nóvember síðastliðinn. Þremur mannanna er gert að sitja áfram inni til 22. desember og hinum fjórða til 16. desember. Tvisvar var skotið á umrædda bifreið með þeim afleiðingum að höglin lentu í fyrra skiptið á framenda bifreiðarinnar en í hið síðara mölbrutu þau afturrúðu í bílnum og nokkur högl lentu í farþegasæti bifreiðarinnar sem í voru ökumaður og farþegi. Málið er rannsakað sem tilraun til manndráps. Tveir mannanna földu sig í Borgarfirði eftir árásina. Í gæsluvarðhaldskröfu lögreglustjórans á höfuðborgarsvæðinu kemur meðal annars fram að lögreglan hafi til rannsóknar afar alvarlegt afbrot, lífshættulega skotárás, sem hafi augljóslega verið liður í uppgjöri tveggja manna vegna fíkniefna. Að mati lögreglu sé hér um að ræða afbrot sem framið hafi verið með skipulögðum og verkskiptum hætti af hópi manna, sem allir kenni sig við Outlaws.- jss
Fréttir Mest lesið Hirti sagt upp störfum hjá Hagstofunni Innlent Á þriðja tug sagt upp hjá Hafnarfjarðarbæ Innlent Veruleikinn breyttur eftir ofsaakstur á ónýtum bíl Innlent Blöskraði biðin í björgun við Stuðlagil og barðist fyrir námskeiði Innlent Segir fólk geta verið nýrnaveikt árum saman án þess að vita Innlent Nýja Ölfusárbrúin hægt en örugglega dregin yfir ána Innlent „Kisur eru að missa fæturna“ Innlent Blóðbað á lestarpalli Erlent „Svolítið sárt í hjartanu að hafa enga söngvakeppni“ Innlent Sonur þingmannsins ákærður Innlent Fleiri fréttir Héldu námskeið um heiðursofbeldi Árekstur á Vesturlandsvegi tefur umferð „Kisur eru að missa fæturna“ Veruleikinn breyttur eftir ofsaakstur á ónýtum bíl ChatGPT trónir á toppnum Hafi reynt að myrða kærustu sína í sumar Fengu ráðgjafa til að greina fjárhagsstöðuna fyrir uppsagnirnar „Svolítið sárt í hjartanu að hafa enga söngvakeppni“ Hirti sagt upp störfum hjá Hagstofunni Sonur þingmannsins ákærður Á þriðja tug sagt upp hjá Hafnarfjarðarbæ „Akkilesarhæll á vinnu gagnvart þessum hópum“ Feginn að verðbólga stendur í stað og meirihluti mótfallinn þátttöku í Eurovision Til Ilulissat á Airbus með nýjum flugvelli Biðin á Landspítalanum styttist til muna Segir fólk geta verið nýrnaveikt árum saman án þess að vita Rukka erlenda nemendur um milljónir Nýja Ölfusárbrúin hægt en örugglega dregin yfir ána Notkun ólöglegra peptíða „rússnesk rúlletta“ Frumvarp kynnt um afnám æviráðningar Bein útsending: Kynnir aðgerðaáætlun gegn fátækt barna Sögðu öllum upp á Hjálpartækjamiðstöð SÍ Blöskraði biðin í björgun við Stuðlagil og barðist fyrir námskeiði Hópamyndun og hótanir unglinga við félagsmiðstöð í Kópavogi Fjarlægðu myndskeið af golfhermi úr Kveiksþætti Þurft að dvelja í einangrunarklefum vegna plássleysis „Mér finnst það alvarlegt“ Hafi ekki verið í formlegri heimsókn í moskunni Kveiksþætti kippt út tímabundið Söfnuðust saman við sendiráðið og mótmæltu refsiaðgerðum Sjá meira