Innlent

Geta skapað falskt öryggi

Fullkomnum farsímum fylgja tölvuormar og vírusar, vandamál sem lengi hafa herjað á tölvur. Fréttablaðið/Valli
Fullkomnum farsímum fylgja tölvuormar og vírusar, vandamál sem lengi hafa herjað á tölvur. Fréttablaðið/Valli
Vírusvarnir sem í boði eru fyrir snjallsíma gera lítið sem ekkert gagn samkvæmt nýrri rannsókn sem vitnað er til í Vírnum, fréttabréfi sem ráðgjafarfyrirtækið Deloitte gefur út.

Hægt er að fá ókeypis vírusvarnir fyrir farsíma sem nota Android-stýrikerfið en þær gera lítið til að verja símann. Þær geta raunar gert ógagn þar sem þær kunna að skapa falskt öryggi hjá símnotendum.

Notendur snjallsíma ættu að hafa varann á, rétt eins og notendur annarra nettengdra tölva. Þegar forritum er hlaðið niður í símana þarf að opna fyrir aðgengi þeirra. Notendur ættu sérstaklega að varast öll forrit sem vilja fá heimild til að senda SMS, hringja símtöl eða komast í símaskrá.- bj




Fleiri fréttir

Sjá meira


×