Kvótinn og náttúran helstu deiluefni ríkisstjórnarinnar 15. nóvember 2011 04:00 Hugmyndir um að einfalda útfærsluna á þeim breytingum sem fyrirhugaðar eru á kvótakerfinu hafa skotið upp kollinum á bak við tjöldin. Vonast er til að með þeim náist meiri samstaða um tillögur stjórnarinnar. fréttablaðið/stefán
Hvaða mál munu reynast stjórninni erfið? Innan þingflokks Samfylkingarinnar gerast þær raddir háværari sem telja að ná þurfi samkomulagi við sjávarútveginn um fyrirkomulag fiskveiðistjórnunar. Það muni ekki gerast nái ítrustu kröfur stjórnarflokkarnna fram að ganga. Þess vegna sé rétt að ná fram þeim grundvallarbreytingum sem taldar eru nauðsynlegar, en einfalda útfærslu kvótafrumvarpsins. Jón Bjarnason, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, lagði fram frumvarp um breytt fyrirkomulag fiskveiðistjórnunar í vor. Málið fékkst ekki afgreitt og var því vísað aftur til ráðherra sem hyggur á framlagningu nýs frumvarps nú í haust. Þingmenn Samfylkingarinnar sem Fréttablaðið ræddi við töldu að ekki yrði fram hjá því litið að hagsmunaaðilar hefðu allir sent inn neikvæða umsögn um frumvarpið. Útilokað væri að ná sátt um málið með því að keyra hörðustu stefnu fram varðandi kvótann. Samkvæmt heimildum Fréttablaðsins vex þeirri skoðun fiskur um hrygg að sömu reglur eigi að gilda um fiskinn í hafinu og aðrar auðlindir landsins. Þannig yrði samið um nýtingarrétt til lengri tíma, með möguleika á framlengingu. Fyrir þyrfti að greiða gjald. Náist samstaða um þessa leið snúast álitaefnin um lengd á nýtingarrétti og upphæð gjaldsins. Fyrirkomulagið yrði það sama og er þegar samið er um nýtingu orkuauðlinda. Útfærsluatriði eru enn óljós, en líkur eru á að hluti fiskveiðiheimilda færi áfram í pott sem stæði utan við hinar og allir gætu sótt í. Heimildarmenn Fréttablaðsins eru sammála um að líkur séu á að sátt takist um þessa leið. Horfa þeir jafnvel til þess að þessar hugmyndir séu ekki langt frá þeim sem Framsóknarflokkurinn hefur ámálgað í kvótamálum. Með þeim væri því möguleiki á að sækja stuðning út fyrir raðir stjórnarflokkanna. Ljóst er að kvótinn verður stjórninni óþægur ljár í þúfu. Samfylkingarþingmenn eru meðvitaðir um að tillögur stjórnarinnar eru óvinsælar hjá hagsmunaaðilum og því er verið að leita málamiðlunar. Slíkar málamiðlanir gætu fengið ágætis hljómgrunn hjá sumum þingmönnum Vinstri grænna. Fiskveiðistjórnunin er ekki eina málið sem gæti reynst stjórninni erfitt. Heimildarmenn Fréttablaðsins telja til þrjú mál; kvótann, ESB og rammaáætlun um vernd og nýtingu náttúrusvæða. Umsagnarferli í síðasttalda málinu er lokið og brátt kemur það fyrir þingið. Ljóst er að áherslumunur er hjá flokkunum í þeim efnum. Í grófum dráttum má segja að Vinstri græn vilji meiri áherslu á verndun en nýtingu, öfugt við Samfylkinguna. Það eru þó ekki hreinar línur í þeim efnum og hluti þingmanna Samfylkingarinnar hefur talað mjög fyrir grænum áherslum. kolbeinn@frettabladid.is
Mest lesið Hopp segir mál ökumanns í höndum lögreglu Innlent Reki fyrirtæki og séu nálægt því að missa allt frá sér Innlent Klausturbleikjan fæst ekki lengur Innlent Paradís Kushner ógn við aðildarviðræður Albaníu og ESB Erlent Sími undir dýnu á skiptiborði tengdur innflutningi amfetamínbasa Innlent Eltur og handtekinn í tengslum við innbrot í apótek Innlent „Skráningum rignir inn“ Innlent Krefjast tafarlausrar stöðvunar hvalveiða Innlent Kristján allt annað en sáttur við typpadansinn Innlent „Verulegur samdráttur og menn eru að segja upp mannskap“ Innlent Fleiri fréttir Nemendum mismunað með ósamræmi einkunna Krefjast tafarlausrar stöðvunar hvalveiða Eltur og handtekinn í tengslum við innbrot í apótek Hopp segir mál ökumanns í höndum lögreglu Reki fyrirtæki og séu nálægt því að missa allt frá sér Klausturbleikjan fæst ekki lengur Staðfestir stækkun friðlands við Gróttu og Seltjörn Fjórtán ný félög flytja í Mannréttindahúsið Sími undir dýnu á skiptiborði tengdur innflutningi amfetamínbasa Lokuðu götu á Ólafsfirði vegna tilkynningar um skotvopn Fylgi Sjálfstæðisflokks ekki meira í sex ár „Verulegur samdráttur og menn eru að segja upp mannskap“ „Skráningum rignir inn“ Eftirspurn eftir kókaíni virðist aldrei hafa verið meiri Staðfesta fjölskyldutengsl nú með DNA-rannsókn Nýtt innviðafélag hlýtur nafnið Göng og brú Ný hreyfing mynduð gegn aðild að ESB Kristján allt annað en sáttur við typpadansinn Dæmdur morðingi grunaður í Straumsvíkurmálinu Rannsókn í gangi á lengd dauðastríðsins Kókaínhaldlagningar komnar í 200 kíló á hálfu ári Tveimur sagt upp á Bifröst Enn eitt fíkniefnametið slegið og yfirvöld hvött til að afturkalla hvalveiðileyfi Rennibrautinni lokað og ljósin skoðuð Hvalur háði hálftíma dauðastríð Hanna Katrín eigi að standa með starfsfólki Hvals – ekki gagnrýna það Gómuð af tollinum með tvo lítra af kókaíni innvortis Komst á bragð skemmdarverka í baráttunni við Kristján Loftsson Mokgræðir á rafmyntum Séra Þórir Stephensen er látinn Sjá meira