Sársauki sálarinnar og minningar Ingólfur Harðarson skrifar 9. nóvember 2011 06:00 Kæri Kristinn Jens Sigþórsson, sóknarprestur, mig langar að þakka þér fyrir að sýna alþjóð hvernig aðstæður okkar fórnarlamba er í raun og veru. Þú endurspeglar svo vel hvernig er tekið á móti okkur þegar við opnum á okkar mál. Þú útskýrir á einstakan hátt hvernig meirihluti fagfólks vinnur og ástæðuna fyrir því að við erum ekki komin lengra með meðhöndlun á afleiðingum þess sem henti okkur. Hvar málaflokkurinn er staddur. Ég tek fyllilega undir alvarleika rangra ásakana, þær eru eins og mannsmorð. Samfélagið okkur hefur sett upp stofnanir sem fara með rannsóknir á hverju máli fyrir sig og þeirra hlutverk er að draga fram sannleikann í málum. Það hafa orðið verulega miklar framfarir í þeim málaflokki á undanförnum árum og er það mikið fagnaðarefni þó ýmislegt eigi eftir að laga. Mál Guðrúnar Ebbu var rannsakað og niðurstaða liggur fyrir. Ég þekki Guðrúnu Ebbu og hennar sögu og ég trúi henni. Kveikja að þessum skrifum mínum er hvernig þú fjallar um minningar, trúverðugleika þeirra og meðhöndlun. Rétt eins og líkamlegur sársauki er að segja okkur að við þurfum að kanna rót sársaukans þá er sársauki sálarinnar að segja okkur hvað við þurfum að vinna í innra með okkur. Í báðum tilfellum er eitthvað að stjórna okkar lífi og það er aldrei vel. Sársauki sálarinnar er minningatengdur. Við þurfum að meðhöndla minningarnar af kærleika og ábyrgð, þær eru brothættar og viðkvæmar. Til þess að losna við sár og afleiðingar minninganna þurfum við að fara inn í þær, ekki til að dvelja þar heldur til að vinna með þær. Var þetta raunveruleiki eða tilfinningaleg upplifun. Ekki neitum við krabbameinssjúklingi um að skoða meinið, það er enginn munur þarna á, meinið drepur í báðum tilfellum. Mínar minningar voru grafnar í um 40 ár. Ég var misnotaður kynferðislega, oftar en einu sinni. Minningarnar ollu mér sálarkvölum. Þetta var mein sem skaðaði mig. Til að losna við meinið þurfti ég að vinna með það. Samskiptaverkfærið við meinið er minning. Það verður að vinna með minningarnar til að komast að meininu, greina þær niður og skoða þær til að fá frelsi frá þeim. Sárin þurftu að fá að gróa og heilast til að ég gæti losnað frá sársaukanum og hin þrjú atriðin gat ég lagt frá mér. Án þessa gat ég ekki haldið áfram með mitt líf. Ástæðurnar fyrir því að minningar eru grafnar og/eða bældar veit ég ekki og sennilega enginn. Ég er mikið búinn að ræða við Guð um þetta. Af hverju þjáðist ég svona mikið, svona lengi? Og fleira í þeim dúr. Eins og þú veist kæri Kristinn þá bænheyrir Guð okkur þegar við tölum við hann. Svarið sem birtist mér er eftirfarandi: „Barnið sem er grafið innra með mér þarf að geta treyst mér, í núinu, til að fara með þessi mál. Það þarf að fá að sjá og treysta því að ég geti höndlað það sem er grafið innra með því. Að ég geti unnið úr því sem henti það, komið því út úr sársaukanum og veitt því frelsi. Ég veit að það elskar mig og hefur verndað mig öll þessi ár, annars væri það búið að segja mér hvað kom fyrir það fyrir löngu. Ég ætla að gera mitt besta til að verða fær um að taka við sögu þess og veita því frelsi frá sársaukanum. Ég ætla að sýna því sömu ást og það hefur sýnt mér. Það er til lausn á öllu.“ Allir þeir sem fjalla um þessi mál eru að tala við mig og mjög mikinn fjölda fólks sem er fast inni í myrkri minninga og minnisleysis, líklega um 15% þjóðarinnar. Fólk með svo brotna sjálfsmynd að það efast um allt sem því finnst, man og gerir. Á sama tíma þjáist það af gríðarlegum sársauka sem það veit ekki hvaðan kemur, lífið virkar ekki. Kæri Guðs maður, þú ert að tala við um það bil 45 þúsund sálir, börn Guðs. Viltu birta grein á Vísi? Sendu okkur póst. Senda grein Mest lesið Tjáningarfrelsi, gagnrýni og Snorri Másson Birgir Orri Ásgrímsson Skoðun Súrdeigsbrauð, ilmkjarnaolíur og Samtökin 78 Snorri Másson Skoðun Erum við að lengja dauðann en ekki lífið? Ágúst Ólafur Ágústsson Skoðun Verður það að vera Ísrael? Hjörtur J. Guðmundsson Skoðun Hver borgar fyrir ódýrar lóðir? Sara Björg Sigurðardóttir Skoðun Mikill munur á aðgengi að líknarmeðferð í Evrópu Kristín Lára Ólafsdóttir Skoðun Tveir alþingismenn og Gaza Sverrir Agnarsson Skoðun Þögnin sem skapaði ótta – arfleifð Þórarins í Sameyki Sigríður Svanborgardóttir Skoðun Stórstraumsfjara mæld - HMS ráðþrota Magnús Guðmundsson Skoðun Eru forvarnir í hættu? Dagbjört Harðardóttir Skoðun Skoðun Skoðun Eins skýrt og það verður Jóna Hlíf Halldórsdóttir skrifar Skoðun Tjáningarfrelsi, gagnrýni og Snorri Másson Birgir Orri Ásgrímsson skrifar Skoðun Að sameinast fjölskyldu sinni Guðrún Brynjólfsdóttir skrifar Skoðun Þögnin sem skapaði ótta – arfleifð Þórarins í Sameyki Sigríður Svanborgardóttir skrifar Skoðun Súrdeigsbrauð, ilmkjarnaolíur og Samtökin 78 Snorri Másson skrifar Skoðun Eru forvarnir í hættu? Dagbjört Harðardóttir skrifar Skoðun Tveir alþingismenn og Gaza Sverrir Agnarsson skrifar Skoðun Hver borgar fyrir ódýrar lóðir? Sara Björg Sigurðardóttir skrifar Skoðun Erum við að lengja dauðann en ekki lífið? Ágúst Ólafur Ágústsson skrifar Skoðun Mikill munur á aðgengi að líknarmeðferð í Evrópu Kristín Lára Ólafsdóttir skrifar Skoðun Sumarið verður nýtt vel til uppbyggingar snjóflóðavarna Jóhann Páll Jóhannsson skrifar Skoðun Verður það að vera Ísrael? Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun Dýravernd - frumbyggjahættir Árni Stefán Árnason skrifar Skoðun Stórstraumsfjara mæld - HMS ráðþrota Magnús Guðmundsson skrifar Skoðun Sýnum fordómum ekki umburðarlyndi Snorri Sturluson skrifar Skoðun Landbúnaður á tímamótum – Við þurfum nýja stefnu Guðjón Sigurbjartsson skrifar Skoðun Sjómenn til hamingju! Lilja Rafney Magnúsdóttir skrifar Skoðun Leyfum mennskunni að sigra Anna Hildur Hildibrandsdóttir skrifar Skoðun Fjölskyldan fyrst Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir skrifar Skoðun Hvað er markaðsverð á fiski? Sverrir Haraldsson skrifar Skoðun Tími til kerfisbundinna breytinga í samfélagstúlkun – ákall til stjórnvalda Anna Karen Svövudóttir skrifar Skoðun Fæðing Ísraels - Líkum misþyrmt BIrgir Dýrfjörð skrifar Skoðun Við eigum allt. Af hverju finnst okkur samt vanta eitthvað? Valentina Klaas skrifar Skoðun Um spretthóp og lestrarkennslu. Hvatning til mennta- og barnamálaráðherra um faglega starfshætti Auður Soffíu Björgvinsdóttir skrifar Skoðun Tíðaheilbrigði er lykilatriði í jafnrétti kynjanna Berit Mueller skrifar Skoðun Þjóðarmorð – frá orðfræðilegu sjónarmiði Eiríkur Rögnvaldsson skrifar Skoðun Borgarlína, barnleysi og bíllaus lífstíll – hentar það Kópavogi? Einar Jóhannes Guðnason skrifar Skoðun Þakkir til starfsfólk Janusar Sigrún Ósk Bergmann skrifar Skoðun Mun gervigreindin senda konur heim? Björgmundur Örn Guðmundsson skrifar Skoðun Frá, frá, frá. Fúsa liggur á Eiríkur Hjálmarsson skrifar Sjá meira
Skoðun Tími til kerfisbundinna breytinga í samfélagstúlkun – ákall til stjórnvalda Anna Karen Svövudóttir skrifar
Skoðun Um spretthóp og lestrarkennslu. Hvatning til mennta- og barnamálaráðherra um faglega starfshætti Auður Soffíu Björgvinsdóttir skrifar
Skoðun Borgarlína, barnleysi og bíllaus lífstíll – hentar það Kópavogi? Einar Jóhannes Guðnason skrifar