Lattelepjandi lopa-treflar eru líka fólk Benóný Ægisson skrifar 4. nóvember 2011 06:00 Ég er einn af þeim sem er þeirrar gæfu aðnjótandi að búa í miðborginni. Að vísu fylgja því nokkrir ókostir en hvergi nærri nógu miklir til að yfirgnæfa kostina. Einn af ókostunum er sá að stundum er eins og við íbúarnir séum ósýnilegir, svona einskonar huldufólk og er eftirfarandi saga til marks um það: Einu sinni var kona að pissa í garðinum hjá mér um nótt. Ég fór út og spurði hana að heiti og hvar hún byggi því ég væri að hugsa um að heimsækja hana og pissa í garðinum hennar. Konunni brá mikið við þetta ávarp, hysjaði í snarhasti upp um sig og sagði: „Guð, ég vissi ekki að neinn byggi hérna”. Mér brá nokkuð við þetta því þetta var snyrtileg kona, vel klædd og ábyggilega vel menntuð. Gat verið að fólk héldi almennt að það væru engir íbúar í miðborginni; það væri bara bissniss á daginn og þá giltu lög frumskógarins og skemmtanalíf á kvöldin og þá giltu lög frumskógarins líka. Þegar ég fór að hugsa mig um þá áttaði ég mig á því að viðbrögð konunnar voru kannski ekki óeðlileg. Ég hef búið nógu lengi í miðborginni til að muna það að þegar fyrsti félagsskapur hagsmunaaðila í miðborginni var stofnaður, Þróunarfélagið, þá voru í því verslunareigendur, bankarnir, opinberar stofnanir og Reykjavíkurborg, það hvarflaði ekki að neinum að íbúarnir gætu verið hagsmunaaðilar. Ég hef líka setið marga fundi um miðborgina og flestir hafa þeir verið um skipulagsmál, bílastæðavandann, Vatnsmýrina eða hátæknisjúkrahúsið svo eitthvað sé nefnt, eða þá næturlífið, ofbeldið og sóðaskapinn. Aldrei hafa þessir fundir fjallað um hluti sem íbúar í öðrum hverfum setja á oddinn á fundum eða í könnunum, þarfir skólabarna og öryggi þeirra á leið í skóla, útivist, íþróttaiðkun og leiksvæði. Fólk á sjálfsagt erfitt með að trúa því að við, lattelepjandi lopatreflarnir, erum upp til hópa bara venjulegt fólk sem á fjölskyldur, börn og jafnvel aldraða foreldra eða ættingja í úthverfunum eða úti á landi. En nú er komið að því. Nú ætla Íbúasamtök miðborgar, foreldrafélög leik- og grunnskóla í miðborginni og Hverfisráð miðborgar að efna til málþings um miðborgina sem íbúahverfi laugardaginn 5. nóvember kl. 11-15 í matsal Tækniskólans á Skólavörðuholti (Iðnskólabyggingunni). Á málþinginu verður hugað að innri málum hverfisins og því hvernig hægt er að bæta það sem íbúabyggð. Þingið hefst á stuttum framsöguerindum, síðan verða umræður í hópum og formaðar spurningar sem lagðar verða fyrir borgarfulltrúa sem sitja í pallborði. Helstu umfjöllunarefni í umræðuhópunum verða samgöngur, umferðaröryggi, umhverfi, útivist, skóli, frístundir og íbúalýðræði. Ég hvet alla íbúa miðborgarinnar til að mæta á málþingið og láta í ljós skoðun sína á því hvernig þeir vilji að búseta í miðborginni þróist. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið Hamfarir Hildar Haraldur F. Gíslason Skoðun Sjálflærðir sérfræðingar í leikskólamálum Ingibjörg Sólrún Ágústsdóttir Skoðun Lægri húsnæðisvextir með evru (staðfest) Dagur B. Eggertsson Skoðun Nýr golfvöllur í Reykjavík Magnea Gná Jóhannsdóttir Skoðun Vatnsaflsvirkjanir eru æði Þorgerður María Þorbjarnardóttir Skoðun Hvar er forgangsröðun ríkisstjórnarinnar? Dagmar Valsdóttir Skoðun Foreldrahús Kristín Davíðsdóttir Skoðun Innritun í framhaldsskóla – samspil fagmennsku og sanngirni Magnús Þór Jónsson Skoðun Íslensk orka er svarið við olíukrísunni Jóhann Páll Jóhannsson Skoðun Styrkjum heilsubæinn Hveragerði Maria Araceli,Berglind Ósk Guttormsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Mitt uppáhalds stefnumál? Systkinaforgangur Bjarnveig Birta Bjarnadóttir skrifar Skoðun Ekki benda á mig Guðmundur Stefán Gunnarsson skrifar Skoðun Vönduð niðurstaða Feneyjanefndarinnar Pawel Bartoszek skrifar Skoðun Horfumst í augu við staðreyndir Eyþór Fannar Sveinsson skrifar Skoðun Hafa skal náttúruvernd í heiðri allar stundir! Elva Rakel Jónsdóttir,Guðmundur Þ. Guðmundsson,Rakel Garðardóttir,Rán Flygenring,Stefán Jón Hafstein skrifar Skoðun Vatnsaflsvirkjanir eru æði Þorgerður María Þorbjarnardóttir skrifar Skoðun Innritun í framhaldsskóla – samspil fagmennsku og sanngirni Magnús Þór Jónsson skrifar Skoðun Hamfarir Hildar Haraldur F. Gíslason skrifar Skoðun Græna gangan - göngum fyrir hafið Guðrún Hallgrímsdóttir,Maríanna Traustadóttir skrifar Skoðun 10 loforð til ungs fólks á besta stað í heimi, Hafnarfirði Viktor Pétur Finnsson skrifar Skoðun Lýðheilsa er undirstaða sterks samfélags Kolbrún Magnúsdóttir skrifar Skoðun Sjálflærðir sérfræðingar í leikskólamálum Ingibjörg Sólrún Ágústsdóttir skrifar Skoðun Ég lofa að líta ekki undan Ingibjörg Magnúsdóttir skrifar Skoðun Nýr golfvöllur í Reykjavík Magnea Gná Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Þegar bygging er ekki orðin að húsi: Ný nálgun í tryggingum framkvæmda Heiður Huld Hreiðarsdóttir skrifar Skoðun Lýðfullveldi Aðalstein Júlíus Magnússon skrifar Skoðun Árangur á vakt Framsóknar í Suðurnesjabæ Anton Guðmundsson skrifar Skoðun Hvar er forgangsröðun ríkisstjórnarinnar? Dagmar Valsdóttir skrifar Skoðun Lægri húsnæðisvextir með evru (staðfest) Dagur B. Eggertsson skrifar Skoðun Foreldrahús Kristín Davíðsdóttir skrifar Skoðun Börn án verndar: ofbeldi milli systkina sem fellur á milli kerfa Þórdís Bjarnleifsdóttir skrifar Skoðun Íslensk ofbeldismenning og réttarríkið Hjörvar Sigurðsson skrifar Skoðun Lykill að jöfnum tækifærum Isabel Alejandra Diaz skrifar Skoðun Jöfnuður, ábyrgð og uppbygging Stefán Þór Eysteinsson skrifar Skoðun „Selfies“ eru ekki hagsmunagæsla Jóhann Ingi Óskarsson skrifar Skoðun Dónaskapur Reykjavíkurborgar Lárus Blöndal Sigurðsson skrifar Skoðun Sterkari saman Sindri S. Kristjánsson skrifar Skoðun Popúlismi formanns VR Sólveig Anna Jónsdóttir skrifar Skoðun Snúum Reykjavík við Björg Magnúsdóttir skrifar Skoðun #ÉGLOFA að láta ekki allt brenna til kaldra kola Alfa Jóhannsdóttir skrifar Sjá meira
Skoðun Hafa skal náttúruvernd í heiðri allar stundir! Elva Rakel Jónsdóttir,Guðmundur Þ. Guðmundsson,Rakel Garðardóttir,Rán Flygenring,Stefán Jón Hafstein skrifar
Skoðun Þegar bygging er ekki orðin að húsi: Ný nálgun í tryggingum framkvæmda Heiður Huld Hreiðarsdóttir skrifar
Skoðun Börn án verndar: ofbeldi milli systkina sem fellur á milli kerfa Þórdís Bjarnleifsdóttir skrifar