Klofinn dómur sýknaði alla sakborninga í Exeter-málinu 30. júní 2011 03:45 Styrmir Þór Bragason mætti í dómsuppkvaðninguna í gær einn sakborninganna. Hann var ánægður með niðurstöðuna, þótt hann hafi að eigin sögn átt von á henni. Fréttablaðið/GVA
Þremenningarnir sem ákærðir voru í hinu svokallaða Exeter-máli voru allir sýknaðir í Héraðsdómi Reykjavíkur í gærmorgun. Málið er annað mál sérstaks saksóknara sem endar með dómi, en í fyrra málinu, sem snerist um innherjasvik Baldurs Guðlaugssonar, var sakborningurinn fundinn sekur. Í Exeter-málinu voru fyrrverandi æðstráðendur Byrs, sparisjóðsstjórinn Ragnar Z. Guðjónsson og stjórnarformaðurinn Jón Þorsteinn Jónsson, ákærðir fyrir umboðssvik. Þeim var gefið að sök að hafa brotið flestar lánareglur þegar þeir ákváðu í sameiningu að lána félaginu Exeter Holding samtals milljarð króna. Féð var síðan notað til að kaupa stofnfjárbréf í Byr af MP banka og starfsmönnum Byrs svo ekki yrði gengið að þeim. Dómurinn var fjölskipaður. Fyrir honum fór Arngrímur Ísberg, en meðdómendur voru Ragnheiður Harðardóttir og sérfræðingurinn Einar Ingimundarson, forstöðumaður lögfræðisviðs Íslenskra verðbréfa. Arngrímur og Einar voru sammála um að sýkna bæri alla þrjá. Niðurstaða þeirra er sú að Ragnar hafi haft heimild til að veita há lán einn síns liðs, án aðkomu stjórnar eða lánanefndar, og að verulegur vafi leiki á um hvort stofnfjárbréfin hafi verið ófullnægjandi trygging fyrir láninu eins og ákæruvaldið heldur fram. Segir í niðurstöðunni að tvímenningarnir, einkum Ragnar, hafi sannarlega farið á svig við lánareglur með því að kanna ekki stöðu lántakandans og hafi auk þess verið vanhæfir til að veita hærra lánið af tveimur. Þetta tvennt breyti því ekki að mönnunum hafi ekki mátt vera ljóst í október 2008 að með lánveitingunni myndu þeir skuldbinda sparisjóðinn þannig að hann biði tjón af, eins og síðar varð raunin. Ásetningur þeirra hafi því ekki staðið til þess að misnota aðstöðu sína og stefna fé sjóðsins í hættu. Ragnheiður skilar hins vegar sératkvæði og vill sakfella Jón Þorstein og Ragnar. Varúðar hafi ekki verið gætt við lánveitinguna, eins og reglur hafi kveðið á um, og mönnum hljóti að hafa verið ljóst á þessum tíma að sjóðurinn hefði beðið töluvert tjón af hruni fjármálakerfisins og að virði stofnfjárbréfanna hefði þar með rýrnað. Þau hafi aldrei getað talist fullnægjandi trygging fyrir láninu. Allir dómarar eru hins vegar sammála um að sýkna beri Styrmi Þór Bragason, fyrrverandi forstjóra MP banka, af ákæru um hlutdeild í umboðssvikum hinna fyrrnefndu og peningaþvætti. stigur@frettabladid.is
Mest lesið Lést eftir alvarlegt slys á Gæsavatnaleið Innlent Dæmi um að búnar séu til „gervikennitölur“ fyrir börn Innlent „Fyrir neðan siðgæðiskröfur sem maður gerir til alþingismanna“ Innlent Vara við „perragleraugum“ Innlent Rýnt í stöðuna í Úkraínu: Trump hleypir öllu í bál og brand, aftur Erlent Sögulegur dómur fyrir námsmenn í Hæstarétti Innlent „Fylgjumst grannt með framvindu mála“ Innlent Sjö ára dómur Innlent Talsmaður Trumps rekinn eftir brösuglega byrjun Erlent Faðir tveggja nemenda í skólanum sá sem skaut árásarmanninn Erlent Fleiri fréttir Biður Jón afsökunar „Vitum ekki hvaða skrímsli er verið að skapa“ Komi til greina að nýta gervigreind í námsgagnagerð Ari nýr formaður Ungra vinstri grænna Farið að hvessa: „Veðrið er ekkert svo slæmt en ekkert sérstakt heldur“ Lést eftir alvarlegt slys á Gæsavatnaleið Engin yfirsýn hvort það séu Tik Tok-myndbönd eða klám sem eigi að geyma Leggi línuna að samþykki veiti rétt til að stórskaða fólk Vara við „perragleraugum“ Þyrlan kölluð út vegna slyss á hálendinu Kannast ekki við lýsingar Jóns Bakar til góðs næsta sólarhringinn Þakplötur að losna af íþróttahúsi í Grundarfirði Skoða viðbrögð við rannsókn á Ölgerðinni Minna á útgáfu nafnskírteina vegna rannsóknar lögreglu Eldur í lyftara í álverinu í Straumvík Tveir reyndu að flýja lögreglu á fótum eftir eftirför „Fylgjumst grannt með framvindu mála“ Dæmi um að búnar séu til „gervikennitölur“ fyrir börn Handtekinn fyrir að ausa fúkyrðum yfir hóp fólks Aðgengið gott en gefur ekki upp synjanirnar „Eigum ekki að bíða eftir alvarlegu atviki“ Jafnlaunavottunin afnumin en starfsfólkinu fækkar ekki Halla kjörin fyrsti varaforseti ASÍ Varar við að biðraðir í Keflavík geti fækkað flugleiðum Ekki ástæða til að rýma bankann Allt virðist mega ef BDSM-orðið er notað „Ég ætla ekki að fara í nein orðaskipti við Jón“ Sjö ára dómur Nýr forseti ASÍ, umdeildur sýknudómur og snjöll markaðsbrella Sjá meira