Vinir Sjonna hanga á bláþræði 10. maí 2011 13:00
Coming Home, íslenska laginu í Eurovision, er spáð tíunda sæti af blaðamönnum í Dusseldorf þar sem keppnin fer fram. Felix Bergsson, sérstakur fjölmiðlafulltrúi hópsins, vitnar í þekktan frasa pólitíkusa í kosningaslag og segir drengina hafa fundið fyrir miklum meðbyr að undanförnu. „Það er mikil stemning fyrir strákunum og þeir fengu fínar undirtektir eftir æfinguna í dag [gær]." Í gærkvöldi var síðan komið að generalprufu hópsins en dómnefndir í löndunum sem Ísland er með í riðli kveða upp sinn dóm eftir þá æfingu. „Þeir voru eilítið stressaðir á æfingunni um daginn og fundu aðeins fyrir þessu. Þeir hafa tekið þetta svo létt hingað til. En það er gott að þeir séu búnir að taka stressið út fyrir kvöldið," segir Felix sem kveðst aldrei aftur ætla að fara út í Eurovision í þessu hlutverki. „Þetta er „once in a lifetime", ég er bara að gera þetta fyrir vin minn Sjonna." Mikil vinátta hefur myndast milli Íslendinga og Norðmanna sem spáð er mikilli velgengni í keppninni og Alexander Rybak, sigurvegarinn frá 2009, hefur farið fögrum orðum um Vinina og dáðst að því að þetta séu allt alvöru tónlistarmenn. Slíkt er ekki algilt í þessari keppni. „Ég fór síðan með Rybak í partý og það var ótrúleg upplifun, þeir ætluðu hreinlega að rífa hann í sig." -fgg Hér fyrir ofan má sjá myndband sem var tekið af blaðamanni í salnum á annarri æfingu Vina Sjonna á föstudag.
Lífið Mest lesið Boltamömmur í miðjumoði Gagnrýni Hvað veistu um… Karl Bretakonung? Lífið „Borgarstjórnarmeirihlutanum er ekki viðbjargandi“ Menning Nýr Bond lítur dagsins ljós von bráðar Bíó og sjónvarp Top Gun- og Alien-leikari látinn Lífið Ákærður fyrir að nauðga sautján ára stúlku en neitar sök Erlent Ótrúleg saga fólks sem valdi mildi og mannúð í stað reiði Menning Síminn stoppar ekki vegna heimildarmyndar Bíó og sjónvarp Skaddaður á höndunum og allavega þrír dagar eftir Lífið Prótein á að vera í forgangi Lífið samstarf Fleiri fréttir Dóttir ísdrottningar fetar í fótspor móðurinnar Top Gun- og Alien-leikari látinn Hvað veistu um… Karl Bretakonung? Skaddaður á höndunum og allavega þrír dagar eftir Færsluóður miðaldra höfundur: „Ég man ekki eftir að hafa gengið í þessar grúppur“ „Ég get ekki leikið lengur. Ég get ekki lesið“ Óleyst íslensk ráðgáta: Veist þú svarið? Grenjaði, veipaði og keyrði stanslaust Gengst við slúðursögu um þungunarpróf Konur æfi með líkamanum, ekki gegn honum Tólf barna móðir selur sveitadraum Rekinn úr körfuboltaliði FSU fyrir að detta í það Bólginn á höndunum skríðandi til Bessastaða Erfitt að geta ekki eytt peningunum í föt Kristófer Acox selur íbúð með potti í Urriðaholti Umdeildur hlaðvarpspabbi orðinn móðir Harry vill sættast við fjölskylduna Miðaldra kona þóttist vera sofandi í Epal Ranglega greind með MS-sjúkdóm Tískudrottning og fréttamaður selja í Vesturbæ Jennifer Lopez að hitta Ted Lasso-stjörnu Wahlberg segir flugmennina hafa bjargað lífi sínu Hvað veistu um… Nylon? Sahara Ray látin Bjarni Ben og Inga Lind gæddu sér á túnfiski Richard Riehle látinn Costanza á klakanum Gjörbreytti einbýli í Kópavoginum Píparapæja selur pent „penthouse“ Sló í brýnu milli poppara yfir Ratcliffe Sjá meira